Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Hávaðinn var minnsta vandamálið þegar lögreglan mætti

Lögreglumaður að störfum
Lög­reglu­maður að störfum Mynd: Lára Garðarsdóttir

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Meðal verkefna voru slagsmál, líkams­árás, fíkniefnamál, þjófnaður og nokkur mál vegna gruns um akstur undir áhrifum.

Lögregla var meðal annars kölluð til vegna hávaða­kvörtunar. Þegar lögreglu­menn komu á vettvang fundu þeir mikla kannabis­lykt. Þrír voru hand­teknir, grunaðir um sölu og dreifingu fíkniefna, og vistaðir í fanga­klefa í þágu rann­sóknar málsins.

Í öðru tilviki var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna slagsmála. Einn var hand­tekinn, meðal annars grunaður um að hafa beitt piparúða, og vistaður vegna rann­sóknarinnar. Þá var tilkynnt um líkams­árás fyrir utan skemmtistað í miðborg Reykja­víkur. Málið er í rannsókn.

Lögregla þurfti einnig að hafa afskipti af einstaklingi sem var í tökum dyravarða. Samkvæmt dagbók lögreglu hafði viðkomandi verið til ama og veist að fólki. Hann neitaði að gefa upp nafn sitt að kröfu lögreglu og var vistaður í fanga­klefa.

Nokkur umferðarmál komu einnig á borð lögreglu. Einn ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og lyfja, akstur á göngugötu og akstur sviptur ökuréttindum. Hann var jafnframt grunaður um vörslu fíkniefna og var látinn laus að lokinni blóð­sýnatöku.

Í öðru máli stöðvaði lögregla ökumann eftir ábendingu um mögulegan fíkniefna­akstur. Ökumaðurinn reyndist grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og voru bæði hann og farþegi bifreiðarinnar grunuð um nytja­stuld og vörslu fíkniefna. Þau voru vistuð í þágu rann­sóknar.

Fleiri ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Þá óskaði matvöru­verslun eftir aðstoð lögreglu vegna þjófnaðar og var málið afgreitt samkvæmt hefð­bundnu ferli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Halla Tómasdóttir segir að margir karlar glími við einmanaleika og óvissu um hlutverk sitt í samfélaginu.

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja