Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios

„Auð­sóttasta leiðin til þess er að tala við aðila sem enn hafa trú á frí­verslun.“

Pawel snýr umræðunni að ESB eftir yfirlýsingu Rubios
Pawel Bartoszek Pawel er ein­arður ESB-sinni Mynd: Víkingur

Pawel Bartoszek, þing­maður Við­reisnar og for­maður utan­rík­is­mála­nefndar Alþingis, segir að frí­versl­un­ar­samn­ingur Íslands við Banda­ríkin sé ekki lengur raun­hæfur kostur eftir nýleg ummæli Marco Rubio, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna.

Pawel gerir umræð­una að umtals­efni í Facebook-færslu þar sem hann rekur hvernig hug­myndin um frí­versl­un­ar­samn­ing við Banda­ríkin hafi þró­ast á und­an­förnum vikum.

Hann rifjar meðal ann­ars upp að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi farið í ferð til Banda­ríkj­anna og í kjöl­farið lagt til frí­versl­un­ar­samn­ing við Banda­ríkin. Þá hafi Lilja Alfreðs­dóttir, for­maður Fram­sóknar einnig lagt til slíkan samn­ing í við­tali á Útvarpi Sögu.

Pawel bendir einnig á ummæli Ólafs Ragnars Gríms­sonar í þætti á Brot­kast­inu í lok ágúst, þar sem hann sagði að það ætti að vera „til­tölu­lega auð­velt“ að ná slíkum samn­ingi við Banda­ríkin.

Síðan hafi Marco Rubio, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna komið til Íslands.

„Rubio [kom] til Íslands og lýsti því yfir að „tími frí­versl­un­ar­samn­inga væri lið­inn“,“ skrifar Pawel.

Rubio sagði á blaða­manna­fundi í Reykja­vík að tíma­bil frí­versl­un­ar­samn­inga væri að hans mati liðið og að frekar ætti að horfa til tví­hliða við­skipta­samn­inga. Hann tók þó fram að þetta væri almenn afstaða Banda­ríkj­anna en beind­ist ekki sér­stak­lega að Íslandi.

Pawel segir yfir­lýs­ingu Rubios ekki koma sér á óvart.

„Það á ekki að koma neinum á óvart sem hefur lesið nýja þjóðar­ör­ygg­is­stefnu Banda­ríkj­anna og yfir­lýs­ingar ráða­manna þar í landi,“ skrifar hann.

Þá dregur Pawel fram það sem hann telur vera ákveðna mót­sögn í umræð­unni um Banda­ríkin ann­ars vegar og Evr­ópu­sam­bandið hins vegar.

„Nei sinnar voru dug­legir að draga fram ára­tugagamlar yfir­lýs­ingar frá ESB og 10–15 ára gömul skrif í bæk­lingum til að sann­færa íslenska kjós­endur um að það væri um „ekk­ert að semja“ við Evr­ópu­sam­bandið,“ segir Pawel.

Hann heldur áfram:

„Ef þær yfir­lýs­ingar dugðu sem rök að þeirra mati, þá ættu þessar yfir­lýs­ingar utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna að loka umræð­unni um víð­tækan frí­versl­un­ar­samn­ing vestur.“

Hvað næst?

Þrátt fyrir gagn­rýni sína á hug­mynd­ina um frí­versl­un­ar­samn­ing segir Pawel að mik­il­vægt sé að halda áfram að rækta við­skipta­sam­band Íslands við Banda­ríkin.

„Það er sjálf­sagt að rækta við­skipta­tengsl við Banda­ríkin, en frí­versl­un­ar­samn­ingur er ein­fald­lega ekki á borð­inu núna,“ skrifar hann.

Hann segir jafn­framt að Íslend­ingar eigi að leita allra leiða til að bæta stöðu íslenskra fyr­ir­tækja og neyt­enda.

„Almennt þá eigum við auð­vitað að skoða allar leiðir til að tryggja okkar fram­leið­endum betri mark­aðs­að­gang og íslenskum neyt­endum lægra verð.“

Pawel telur að ein leið til þess sé að beina sjónum að Evr­ópu­sam­band­inu.

„Auð­sóttasta leiðin til þess er að tala við aðila sem enn hafa trú á frí­verslun. Einn slíkur aðili er Evr­ópu­sam­bandið,“ skrifar hann.

Hann bendir á að EES-samn­ing­ur­inn tryggi mik­inn aðgang að mörk­uðum beggja vegna, en að enn megi gera betur á ákveðnum sviðum.

„EES-samn­ing­ur­inn tryggir mik­inn aðgang í báðar áttir en ekki fullan. Við getum enn gert betur þegar kemur að land­bún­að­ar­vörum, fiski og iðn­að­ar­vörum. Við eigum að stefna að því,“ segir Pawel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum