Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Forysta snýst ekki um titla heldur áhrif

Andrea Róberts­dóttir, fram­kvæmda­stjóri FKA, er reynslu­mik­ill stjórn­andi, móðir og nátt­úru­unn­andi. Hún hefur á rúm­lega tveggja ára­tuga ferli leitt fólk, byggt upp vinnu­staða­menn­ingu, stýrt breyt­ingum og tek­ist á við krefj­andi verk­efni í atvinnu­lífi, fjöl­miðlum og félaga­sam­tökum.

Forysta snýst ekki um titla heldur áhrif

Andrea Róbers­dóttir, fram­kvæmda­stjóri FKA, Félags kvenna í atvinnu­líf­inu, hefur starfað á mjög ólíkum vett­vangi en hún hefur verið fram­kvæmda­stjóri, for­stöðu­maður, mannauðs­stjóri, verk­efna­stjóri og ráð­gjafi. Þá var hún í vor til­nefnd til Stjórn­enda­verð­launa Stjórn­vísi.

„Ég hef starfað í einka­geir­anum, opin­bera geir­anum, félaga­sam­tökum og síð­ustu rúm tutt­ugu ár hef ég fengið tæki­færi til að leiða fólk í gegnum breyt­ingar, vöxt, sam­ein­ingar, upp­bygg­ingu og umbreyt­ingar. Sú reynsla hefur mótað mig sem stjórn­anda en mín reynsla er sú að hægt sé að vera bæði hlýr leið­togi og kröfu­harður leið­togi á sama tíma. Umhverfið er síbreyti­legt og áskor­anir fyr­ir­tækja og stofn­ana enda­lausar en grunn­lög­málin alltaf þau sömu eins og traust, til­gangur og skýr sýn. Hlutverk stjórn­anda er að skapa umhverfi þar sem annað fólk getur skarað fram úr og heildin nái for­skoti og svo er mik­il­vægt að hafa gaman að þessu öllu í leið­inni.

Ég hef verið að vinna með 80-20 hlut­föll og finnst átta­tíu pró­sent vera mjög gaman og gef­andi. Ég meina, það koma lægðir yfir landið í leik og starfi og þess vegna er galið að ætla sér út í lífið hald­andi að það sé alltaf gaman því sú er alls ekki raunin. Vænt­inga­stjórnun er því mik­il­væg. Það þarf að láta sér leið­ast, gera krefj­andi hluti og læra af reynsl­unni. Það er bara „beisikk“ að vera með kúlu á hausnum þegar við erum að læra nýja hluti. Það eru alltaf skaflar, risa­stór og seig verk­efni og fólk í mis­miklu stuði, enda brjálað að gera víða. Ástæða fyrir því að maður er svo að ham­ast er að það er svo gaman að upp­skera þegar þú hefur verið virkur þátt­tak­andi og haft áhrif í góðum hópi. Það er svo margt að þakka fyrir, enda er ég mikil for­rétt­indapía. Þá hef ég reynt að leggja gott til og hafa jákvæð áhrif á sam­fé­lagið í mínum störfum. Ég legg áherslu á að fólki líði þannig að það er séð og í grósku­hug­ar­fari. Ég kann að meta sköp­un­ar­kraft­inn, ferskar nálg­anir og til­raunir þegar þær eiga við en er lítið fyrir sóun og hangs hjá mér og mínu fólki. Ég fjalla gjarnan um að taka sopa úr bruna­hana til að setja álagið á stjórn­endur í mynd­rænan bún­ing og þarf veru­lega að passa mörkin mín. Það er fátt skemmti­legra en að hafa nóg að gera en það er mik­il­vægt að huga að jafn­væg­inu í víð­asta skiln­ingi þess orðs.“

Þarf að geta hlustað

Þegar Andrea er spurð hvað ein­kenni góðan leið­toga segir hún að hann þurfi auð­vitað að geta tekið ákvarð­anir, sýnt kjark og haft skýra sýn. „En hann þarf líka að geta hlustað og það er nú ástæða fyrir því að við erum með tvö eyru og einn munn. Við mættum hlusta meira á hvert annað. Þekking á starf­inu og starf­sem­inni er mik­il­væg að sjálf­sögðu og ég hugsa svo oft til þess tíma sem ég hóf störf hjá fjar­skipta­fé­lag­inu Tal hér á síð­ustu öld. Þar vorum við með skipti­daga hjá deildum og starfs­fólki þar sem for­stjór­inn fór í þjón­ustu­verið, bók­haldið upp í mastur og þannig má lengi telja. Þá dýpkaði skiln­ing­ur­inn á ólíkum störfum, and­inn varð enn betri og starfs­fólkið með til­finn­ingu fyrir hvað felst í ólíkum störfum og virði fyrir öllum störfum jókst. Það er þetta með virði starfa sem er svo mik­il­vægt að spá í að við erum ein heild eins og ólík líf­færi með ólík hlut­verk. Þá eru sum störf afar mik­il­væg eins og mót­taka þar sem fyrsta snert­ing er við fólk sem kemur, hringir og þar þarf að vera með allt í standi fyrir ímynd og ásýnd skipu­lags­heild­ar­innar og þar eru mál oft leyst í fyrstu snert­ingu. Mér finnst bestu leið­tog­arnir vera þeir sem byggja fólk upp í kringum sig. Þeir hafa ekki þörf fyrir að vera alltaf í sviðs­ljós­inu sjálfir og eru nógu öruggir til að leyfa öðrum að njóta sín - Og þeir sýna með gjörðum sínum þau gildi sem þeir tala um. „Walk the talk!“

Framúrskarandi af öllum kynjum

Stundum er talað um að munur sé á kynj­unum sem leið­togum og stjórn­endum. Hvað segir fram­kvæmda­stjóri FKA? Hver er sýn og skoðun Andreu hvað þetta varðar?

„Til að forð­ast að alhæfa of mikið vil ég segja að við verðum að tryggja að allir hæfi­leikar fái notið sín. Það er meiri munur innan kynja en milli kynja oft og tíðum og ég hef kynnst fram­úr­skar­andi leið­togum og stjórn­endum af öllum kynjum og að mínu mati bygg­ist fram­tíð atvinnu­lífs­ins á fjöl­breytt­ari for­ystu. Mögulega liggur stærsti mun­ur­inn í breyt­unni kyn vegna þeirrar menn­ingar sem við höfum mar­íner­ast í langt aftur í aldir. Þessi menn­ing í okkur hefur áhrif á hegðun, við­horf, val, vænt­ingar og kröfur. Hlut­verkin eru ólík og við­mótið sem kynin fá strax á fæð­ing­ar­deild­inni þegar þau eru sett í bleikt eða blátt. Þá hallar á stelpur og líka á stráka og karla í ein­hverjum til­fellum og ekk­ert grín fyrir neitt kyn að fæð­ast og þurfa að fara lóð­beint í fyrir fram mótað skapa­lón um hvernig þú átt að vera, hvað þú átt að gera, haga þér og velja þér í leik og starfi. Það væri dásam­legt að frelsa öll kyn frá alls konar bulli og end­ur­skoða hvað telst flott, gott og æski­legt sem er eng­inn fasti né nátt­úru­lög­mál líkt og sumir eig­in­leikar sem kynj­unum eru eign­aðir. Dæmin sína að starfs­stéttir sveifl­ast frá því að vera karla­stéttir yfir í kvenna­stéttir í sög­unni eins og kenn­ara­stéttin og sumt stenst ekki skoðun eins og að segja að karlar hafi ekki fín­hreyf­ingar þegar kemur að því að stoppa í sokka en svo eru þeir frá­bærir hjarta­skurð­læknar og vantar ekk­ert upp á fín­hreyf­ingar þar á bæ. Sam­fé­lagið mótar leið­toga­stíl okkar, hvernig sam­fé­lagið tekur á móti okkur og hvað telst flott, gott og æski­legt fyrir kynin að gera hefur mót­andi áhrif á okkur sem mann­eskjur. Góðu frétt­irnar eru að hæfni­þættir sem mest eru metnir í dag er eitt­hvað sem öll kyn geta til­einkað sér. Svo vona ég að gervi­greindin verði partur af þessu öllu sem stuðn­ingur og þró­ist þannig að fólk kom­ist til dæmis af færi­bandi yfir í skap­andi verk­efni. Það er mjög mik­il­vægt að vakta inn­byggða kynjaslag­síðu er kemur að gervi­greind­inni og þannig má lengi telja. En jú, við getum talað okkur blá í framan af hverju konur eru svona fáar sem for­stjórar í Kaup­höll­inni og af hverju kynja­hall­inn er svona mik­ill í hópi fram­kvæmda­stjóra en auð­vitað þarf að tækla þessa ólíku for­gjöf og jafna tæki­færin. Jafn­réttið ger­ist ekki af sjálfu sér og þarf oft handaflið og lög til að koma hreyf­ingu á hlut­ina sem hefur fallið mis­jafn­lega í kramið. Það þarf til dæmis að fara að gefa í er kemur að því að ráða konur í stöður fram­kvæmda­stjóra til að jafna mik­inn kynja­halla þar eins og tölur sýna. Nú, breyt­ingar taka alltaf á því fólk veit hvað það hefur en er ekki með á hreinu hvað það fær og það var ekki auð­velt fyrir þær konur sem stóðu í stafni í jafn­rétt­is­bar­átt­unni og fyrir þær er ég þakk­lát. Konur sem börð­ust fyrir rétt­indum, mann­rétt­indum fyrir okkur öll. Hvað varðar leið­toga og stjórn­endur þá er mik­il­vægt að hafa flottar fyr­ir­myndir af öllum kynjum sýni­legar fyrir kom­andi kyn­slóðir til að máta sig við. Konur eru oft að fara inn í karllæg kerfi á for­sendum karla en sem betur er það að breyt­ast og konur að koma með sitt að borð­inu. Svo­kall­aðir karllægir eig­in­leikar hafa verið meira áber­andi í for­ystu en svo er nútím­inn að kalla á eftir fleiri hæfni­þáttum, enda mjúku málin grjót­hörð. Ég per­sónu­lega er mjög áhuga­söm um inn­sæi á tímum gervi­greindar sem og sköp­un­ar­kraft­inn. Mig per­sónu­lega langar gjarnan að gera hlut­ina aðeins öðru­vísi, sjá nýja mögu­leika og prófa mig áfram. Sú sköp­un­ar­gleði hefur fylgt mér alla tíð og ég tel hana vera einn af mik­il­væg­ustu eig­in­leikum mínum sem stjórn­anda í dag. Breyt­ingar krefj­ast nefni­lega sköp­unar. Leið­togar þurfa að sjá það sem enn er ekki orðið að veru­leika. Við þurfum fjöl­breytt sjón­ar­horn, ólíka reynslu og fólk sem þorir að leiða af heil­indum. Þar liggur hinn raun­veru­legi styrkur og ég sé að tæki­fær­unum er að fjölga fyrir fólk með karakter af öllum kynjum.“

Mikilvægt afl

Andrea segir að hún hafi verið hvött til þess að sækja um starf fram­kvæmda­stjóra FKA og að hún sjái ekki eftir því vegna þess að starfið sam­eini svo margt sem hún hefur brenn­andi áhuga á. Á hvað leggur hún áherslu í núver­andi starfi?

„Að vera með opna hjarta­stöð, læra af yngra fólki, reyna að til­einka mér nýj­ungar en á sama tíma vera grjót­hörð á að fólk gleymi ekki sög­unni og þeim sigrum sem hafa unn­ist til sjávar og sveita er kemur að jafn­rétti.“

Andrea segir að FKA snú­ist um leið­toga­mál, jafn­rétti, tengsla­myndun, áhrif og fram­þróun í atvinnu­líf­inu. „Ég sá þar tæki­færi til að nýta reynslu mína úr rekstri til að styðja við sam­fé­lag kvenna sem vilja hafa áhrif. Í Félagi kvenna í atvinnu­líf­inu verður þú vitni að töfrum tengsla­nets­ins og í félag­inu skap­ast við­skipta­tæki­færi sem eftir er tekið. Þar blómstra konur og geta fengið svo mikið út úr þátt­töku en það er mjög mis­jafnt hvað konur vilja fá út úr aðild. Ég hef mik­inn metnað fyrir hönd félags­ins og FKA er mik­il­vægt afl í íslensku atvinnu­lífi og til okkar er leitað. Starfið er mjög fjöl­breytt og ég reyni að hafa áhrif á jákvæðan hátt með því að fá fólk með mér, tengja saman ólíkar hug­myndir og skapa stemn­ingu þar sem öll finna til sín. Það sem ég vissi alltaf var að mig lang­aði ekki að sitja hjá og horfa á hlut­ina ger­ast og í mínu starfi hef ég getað haft áhrif, gjarnan bak við tjöldin og skemmt mér kon­ung­lega þar. Það er margt undir húdd­inu eins og stjórn­endur vita. Ég vildi taka þátt í að gera gott félag enn betra og hafa áhrif. Ég vildi stuðla að fram­förum, hjálpa konum að ná sínum mark­miðum og nýta hæfi­leika sína. Það heill­aði mig líka hvað félagið nær til breiðs hóps kvenna. Þar mæt­ast frum­kvöðlar, sér­fræð­ingar, stjórn­endur og eig­endur fyr­ir­tækja. Slík fjöl­breytni er dýr­mæt og á meðan ég hef starfað sem fram­kvæmda­stjóri hef ég eign­ast vin­konur fyrir lífs­tíð, hér hafa lands­byggða­deildum fjölgað, félagið stækkað, alþjóða­tengsl eru góð, hér eru hreyfi­afls­verk­efni, verk­efni hafa sprungið út og það hefur verið geggjað.“

Áhrifamikið tengslanet

Það var fyrir rúmum ald­ar­fjórð­ungi sem Jónína Bjartmarz fór fyrir litlum hópi sem átti frum­kvæðið og veg og vanda að und­ir­bún­ingi og fram­kvæmd stofn­fundar FKA. Allt konur sem vildu vera á eigin for­sendum og láta taka sig alvar­lega og hefur FKA verið hreyfi­afl frá árinu 1999 þegar félagið var stofnað. Félagið hét fyrst Félag kvenna í atvinnu­rekstri, FKA, en var seinna breytt í Félag kvenna í atvinnu­líf­inu. Skamm­stöf­unin FKA hélst sú sama eftir breyt­ing­una en nýja nafnið end­ur­speglar víð­tæk­ari hóp kvenna - ekki bara þær sem reka eigin fyr­ir­tæki, heldur stjórn­endur, leið­toga og athafna­konur úr öllum greinum atvinnu­lífs­ins.

„Öllum þessum árum síðar skyldi maður ætla að ekki væri lengur þörf fyrir félag af þessu tagi og við gætum öll verið sam­mála um að jafn­rétti hefði náðst. FKA var stofnað af hópi kvenna með það mark­mið að efla stöðu kvenna í íslensku atvinnu­lífi. Áherslan var á að skapa vett­vang fyrir konur til að tengj­ast, læra hver af annarri og þróa leið­toga- og stjórn­un­ar­hæfi­leika sína. Í FKA í dag eru lands­byggða­deildir og hreyfi­afls­verk­efni eins og Jafn­vægis­vogin, Við­ur­kenn­ing­ar­há­tið og Mentor­verk­efni svo eitt­hvað sé nefnt. FKA á að vera leið­andi afl í að opna fleiri tæki­færi og auka jafn­vægi og fjöl­breyti­leika í atvinnu­líf­inu. Sýni­leika­dagur og fleiri lyk­il­við­burðir nefnda og deilda byggja upp og styrkja konur og auka áhrif þeirra í atvinnu­líf­inu. FKA hefur margs konar áhrif á íslenskt atvinnu­líf, ekki bara með hefð­bundnu félags­starfi heldur er félagið áhrifa­mikið tengsla­net og hags­muna­fé­lag kvenna á Íslandi. Félagið var stofnað með það mark­miði að efla stöðu kvenna í atvinnu­líf­inu í víðum skiln­ingi og mér finnst það hafa tek­ist á löngum köflum. Alltaf er ég stolt af þeim sem hófu þessa veg­ferð og eru steypu­styrkt­ar­járn félags­ins en það er enn verk að vinna. Þegar litið er til stöðu dags­ins í dag erum við að mörgu leyti til fyr­ir­myndar og fremst í heim­inum í jafn­rétti og vel­sæld. Það er samt víða þó nokkuð í land er kemur að kynja­jafn­rétti og má þá nefna ólíka for­gjöf kynja, virði starfa, þriðju vakt­ina á heim­ilum, laun, Kaup­höll­ina og fleira. Launa­mun­ur­inn fylgir okkur út lífið og mik­il­vægt er að varða sína leið og gæta að rétt­indum sínum og hags­munum til fram­tíðar og eftir árum er kemur að líf­eyr­is­málum – og líka heils­unni til að geta síðan notið þess alls.“

Jafnvægisvogin

Andrea segir að stærstu sigrar FKA síð­ustu ár sé vöxtur félags­ins á lands­byggð­inni og flugið sem nokkur verk­efni hafa farið á og má nefna Jafn­vægis­vog FKA í þessu sam­bandi.

„Við erum með deildir á Norð­ur­landi, Aust­ur­landi, Suð­ur­landi, Suð­ur­nesjum og Vest­ur­landi. Það eru öfl­ugir leið­togar á lands­byggð­unum sem greina þarfir á svæðum og leiða öfl­ugt starf undir regn­hlíf FKA. Jafn­vægis­vogin er öfl­ugt áhrifa­verk­efni félags­ins þar sem unnið er með mögn­uðum sam­starfs­að­ilum, verk­efni sem var sett á lagg­irnar árið 2018 með það skýra mark­mið að stuðla að auknu jafn­vægi kynja í efsta lagi stjórn­unar í íslensku atvinnu­lífi. Verk­efnið var frá upp­hafi hugsað sem hreyfi­afl, ekki laga­skylda heldur hvati, byggt á þeirri ein­földu stað­reynd að jafn­rétti ger­ist ekki af sjálfu sér. Það er afleið­ing með­vit­aðra ákvarð­ana, mæl­inga og gagn­sæis. Jafn­vægis­vogin mælir kynja­hlut­föll í efsta lagi stjórn­unar og hefur skapað bæði umræðu og aukið aðhald varð­andi þátt­töku kvenna í stjórn­un­ar­stöðum. Mark­miðið er að hlut­fall hvors kyns verði að lág­marki 40% í efsta lagi stjórn­unar fyr­ir­tækja, opin­berra stofn­ana, líf­eyr­is­sjóða og sveit­ar­fé­laga. Auðvitað hvetjum við vinnu­staði til að ganga til liðs við verk­efnið með und­ir­ritun vilja­yf­ir­lýs­ingar sem finna má á heima­síðu FKA, setja sér skýr mark­mið og fylgja þeim eftir. Jafn­vægis­vogin stendur jafn­framt fyrir grein­ingum, fræðslu og við­burðum, fylgist með þróun kynja­jafn­vægis og veitir árlega við­ur­kenn­ingar til þeirra þátt­tak­enda sem hafa náð mark­mið­inu. FKA hefur einnig unnið mark­visst að því að auka sýni­leika kvenna í fjöl­miðlum og opin­berri umræðu og félags­konur kall­aðir til sem sér­fræð­ingar, stjórn­endur og álits­gjafar sem er frá­bært. Svo er það vöxtur hverrar konu sem setur sig á dag­skrá og tekur þátt í starf­inu sem er alveg magn­aður. Þátttaka í Mentor­verk­efni FKA hefur til dæmis hjálpað fjölda kvenna að taka næstu skref á sínum starfs­ferli, þær hafa til dæmis fengið kjarkinn og hvatn­ingu til að taka stökkið. Með því að tengja saman reynda leið­toga og yngri konur hefur skilað sér í auknu sjálfs­trausti, sterk­ari tengslum fyrir bæði mentor og menti og skilað fleiri konum í ábyrgð­ar­stöður. Allt sem félagið er að gera mótar þetta sam­fé­lags­lega afl sem við erum. Við höfum líka verið að stækka og opna dyr, byggja brýr með nýjum nefndum eins og Nýja Íslend­inga (New Icelanders) og margs konar sam­starfi sem hefur gert félagið fjöl­breytt­ara en áður.“

Jafnrétti er ákvörðun

Andrea hefur kynnst mörgum konum í við­skipta­líf­inu og atvinnu­líf­inu í gegnum núver­andi starf. Eru konur komnar í gegnum gler­þakið fræga?

„Nokkrar, þeim fer fjölg­andi en það gengur hægt að fjölga þeim og gler­þakið er þarna enn og smá þykkt­ar­munur á því eftir sviðum. Marglaga og margs konar ástæður fyrir stöð­unni og tölur sýna að mark­miði um kynja­jafn­rétti verður náð í fyrsta lagi eftir hálfa öld miðað við hraða í nýráðn­ingum í stjórn­un­ar­stöðum. Kynja­lögin um árið höfðu áhrif og lög eru mjög mik­il­væg, við sjáum það á fyr­ir­tækjum sem lögin eiga við. Lang­flestir for­stjórar eru karl­menn, mun fleiri karlar eru í fram­kvæmda­stjóra­stöðum og sem stjórn­ar­for­menn og þar fram eftir göt­unum. Þar sem skýrar reglur hafa verið settar hefur orðið raun­veru­leg breyt­ing og er alveg ljóst að jafn­rétti er ákvörðun. Forysta er enn veru­lega eins­leit og það er okkur að breyta stöð­unni. Mér finnst mik­il­vægt að halda áfram að skapa tæki­færi, tala um fyr­ir­myndir og tryggja að hæfi­leikar kvenna fái notið sín. Sem fyrr segir taka breyt­ingar á. Við munum til dæmis raunir ráð­herra sem setti lög um að banna reyk­ingar á skemmti­stöðum. Það var hel­víti á jörðu fyrir ráð­herra um tíma, umræðan og mót­spyrnan, en öll sjáum við að það er eina vitið í dag. Það er stundum sem fólki finnst líka lög og reglur vera for­ræð­is­hyggja en ég vil kalla það umhyggju. Sjáið til dæmis með reglur um örygg­is­beltin í bílum sem bjarga lífum. Auðvitað var geggjað að vera laus í skott­inu hjá reykj­andi for­eldrum og eng­inn í belti en við sjáum að þetta var glóru­laust þegar við lítum til baka. Fólk þarf tíma. Fólk þarf upp­lýs­ingar. Fólk þarf að skilja til­gang­inn.“

Reynslumiklar og rosalegar

Þegar Andrea er spurð hvað henni finn­ist ein­kenna íslenskar konur sem náð hafa langt í við­skipta­líf­inu segir hún: „Mér finnst þær almennt svaka­legir töffarar. Svo eru þær oft teflon­húð­aðar. Mér finnst þær með mikla inni­stæðu og dásam­legt að verða vitni að því þegar þær fara í hlut­verk mentora. Þær eru nefni­lega margar hættar að vera ungar og efni­legar heldur eru reynslu­miklar og rosa­legar. Það er gjarnan tæki­færi fyrir félags­konur FKA að tengj­ast þessum fyr­ir­myndum á dýpri hátt.“ Hvar er pottur brot­inn á meðal kvenna í við­skipta­líf­inu og atvinnu­líf­inu?

„Það er þörf á að breyta sam­fé­lag­inu en ekki konum og fleiri háskóla­gráður er það sem konur þurfa alls ekki. Nóg af þeim. Með fæð­ing­ar­tíðn­ina eins og hún er í dag er mik­il­vægt að fara að skoða hlut­ina heild­stætt og setja okkur í stell­ingar um hvernig við getum öll haft tæki­færi í atvinnu­líf­inu en á sama tíma við­haldið okkur sem þjóð. Binda þannig um hnút­ana að fólk eign­ist börn, sam­fé­lagið styðji við það og konum sé ekki refsað fyrir að standa í því að eign­ast blessuð börnin sem við elskum enda­laust og skil­yrð­is­laust. Svo er það nú þannig að þegar bar­áttan er horfin úr lif­andi minn­ingu þá er þörf á að standa vakt­ina því það er stutt í bakslag og stöðnun þegar fólk áttar sig ekki á að það hefur verið barist fyrir þessum rétt­indum með svita, blóði og tárum.“

Hverju vill Andrea ná í núver­andi starfi og eru ein­hverjar nýj­ungar fram undan?

„Ég held áfram að byggja upp fólk og verk­efni á meðan ég er í FKA. Félagið er með eitt þús­und og fimm­hund­ruð félags­konur úr öllum greinum atvinnu­lífs­ins og að reka slíkt félag, sam­ræma stjórnir, deildir, nefndir, sam­starfs­að­ila og við­burði krefst mik­illar lagni og það er alltaf mark­miðið að gera betur í dag en í gær. Það þarf seiglu að halda utan um eitt stærsta kven­leið­toga­net lands­ins og það er gert með öfl­ugri stjórn og virkum félags­konum. Þá eru verk­efni sem snúa að starf­sem­inni inn á við og út á við ávallt í þróun. Það er stöðugt verið að þjón­usta atvinnu­lífið, félags­konur og margir við­burðir eru fram undan. Við erum að fara að aug­lýsa eftir til­nefn­ingum fyrir Við­ur­kenn­ing­ar­há­tíð­ina okkar sem verður í jan­úar og við­ur­kenn­ing­ar­at­höfn Jafn­vægis­vog­ar­innar er 14. októ­ber næst­kom­andi. Jafn­vægis­vog FKA hefur vaxið úr verk­efni yfir í mik­il­vægan mæli­kvarða íslensks atvinnu­lífs í höndum á öfl­ugu Jafn­vægis­vog­ar­ráði og verk­efna­stjóra og við stoltar af því. Stærra og hrað­ara er ekki endi­lega alltaf best en á sann­ar­lega við þegar þú vilt ná árangri í jafn­rétt­is­málum og bæta sam­fé­lagið. Innan félags­ins höldum við áfram að byggja upp kær­leik­drifna menn­ingu sem kemur konum inn á radar með kass­ann út. Ég vil skilja eftir mig vinnu­stað, verk­efni og sam­fé­lag í betra ástandi en þegar ég kom að þeim. Fyrir mér er það kjarni góðrar for­ystu. Þegar ég hugsa um fram­tíð­ina hugsa ég fyrst og fremst um áhrif en ekki stöðu. Ef ég get skilið eftir mig vinnu­staði sem eru sterk­ari, fólk sem trúir meira á eigin getu og sam­fé­lag sem er aðeins rétt­lát­ara en það var áður þá tel ég að ég hafi náð miklu.“

Reynslunni ríkari

Andrea á tvo syni og mann og býr fjöl­skyldan í Garðabæ.

„Við vildum vera hluti af sveita­sam­fé­lagi og bjuggum fyrstu ár eldri stráks­ins í Kjós í stórum skógi á land­bún­að­ar­lóð en fluttum svo í Garða­bæ­inn til ömmu ald­ar­innar, mömmu minnar, sem hefur verið ein mesta stoð og stytta í líf­inu. Það er engu líkt að eign­ast börn og dreng­ina elska ég enda­laust. Það er dásam­legt að sjá þá þroskast og verða sjálf­stæða. Það er svo magnað að hugsa til þess að störfin sem þeir fara að vinna þegar þeir verða full­orðnir er ekki einu sinni búið að finna upp. Það eru svo mörg tæki­færi hjá ungu fólki og ég get lært svo margt af þeim. Með mann­inum mínum finnst mér best að vera í iðn­að­ar­manna­gall­anum eða á fjöllum. Yngri dreng­ur­inn minn er 15 ára og stóri strák­ur­inn minn nýorð­inn 18 ára og því miklar breyt­ingar. Við höfum alltaf lagt áherslu á að hafa síma­lausa sam­veru við mat­ar­borðið og borða saman kvöld­mat. Við höfum gaman að því að ferð­ast, hlusta á tón­list og fara í sund. Þá er ekki eins spenn­andi að vera með mér eins mikið og áður en þeir segja að ég sé besta mamman. Það er mín mesta gæfa að hafa unnið mömmu­lottóið og fengið dreng­ina í mitt líf – þeir eru skóla­stjór­arnir í líf­inu og ævin­týra­ráð­herrar.“

Andrea er spurð um lífs­reynslu sem hefur mótað hana og nefnir hún ævin­týr­lega ferð. Hinn stóri heimur heill­aði og árið 2006 seldi hún bíl­inn og íbúð­ina og fór ein í bak­poka­ferða­lag í nokkra mán­uði um Suð­austur-Asíu.

„Það var eins og að krækja sér í eina ef ekki tvær meistara­gráður. Það gat verið mjög flókið að vera ung kona ein á ferð með allt á bak­inu en eins og alltaf, án þess að vaða út í ein­hverja vit­leysu, þá vil ég ekki láta ótt­ann skemma fyrir mér og fór í þessa mögn­uðu ferð. Ég gisti á far­fugla­heim­ili og gisti­heim­ilum og ferð­að­ist til nokk­urra landa og kom heim læs­ari á ólíka menn­ingu og reynsl­unni rík­ari. Ég kynnt­ist alls konar fólki, borð­aði alls konar mat, gisti á furðu­legum stöðum, skoð­aði ótal staði og and­aði að mér fram­andi menn­ingu. Þetta bak­poka­ferða­lag er eitt af því sem kemur upp í hug­ann þegar ég er spurð um lífs­reynslu sem hefur mótað mig. Annað sem kemur upp í hug­ann er þegar ég 15 ára og Hrund vin­kona mín 16 ára vorum að vinna sem rekstr­ar­stjórar á ham­borg­ara­stað myrkr­anna á milli til að safna fyrir ferð til Ibiza. Við vorum búnar kaupa miða til að fara einar út í frí og fjör en síðan fengum við ekki útborgað. Nú eins og bestu vin­konur gera á gelgj­unni er að fá sér lög­fræð­ing. Við fengum okkur lög­fræð­ing til að fá launin og án þess að fara í mála­rekst­ur­inn og alla sól­ar­sög­una þá end­uðum við í eft­ir­minni­legri ferð einar á Ibiza um sum­arið eins og til stóð. Þegar ég sé fimmtán ára ung­linga í dag þá sé ég alltaf betur hvað við vorum seigar að fá okkur lög­fræð­ing og standa í hár­inu á glæpa­mönnum. Ef ég væri lög­fræð­ingur og fengi okkur vin­kon­urnar inn á skrif­stofu myndi ég espast öll upp og vilja allt fyrir þessi krútt gera. Ég er svo stolt af þessum stelpum að hafa fengið sér lög­fræð­ing og mér finnst við svo hug­rakkar. Það er þetta með hug­rekkið, það er smit­andi og það er svo gaman að hafa víkkað þæg­inda­hring­inn og haft kjark til þess snemma á lífs­leið­inni. Ég er þakk­lát fyrir vin­átt­una.“

Föðurmissir

Þegar kemur að erf­ið­leikum sem hafa mótað Andreu segir hún að nokkur atriði komi upp í huga sinn en hafa þurfi í huga að hún er heppin kona hér á Íslandi. „Ég hef vatn, fjöl­skyldu, vini og hér er ekki stríð. Ég hef öll vitin til að sækja í og er almennt heilsu­hraust. Það eru alltaf ein­hverjar áskor­anir hjá öllum en það sem kemur upp í huga mér núna er missir, að missa pabba minn um jólin. Það eina sem er öruggt í þessu lífi er svo dauð­inn en mikið ógur­lega er erfitt að missa for­eldri. Pabbi minn lést, var með krabba­mein og það voru mikil átök fyrir hann að fella grímuna, játa sig sigr­aðan og tapa svo bar­átt­unni. Hann var stór­glæsi­legur maður, ávallt mik­ill ævin­týra­maður og virkur nátt­úru­unn­andi og að sjá hann missa kraft­inn til að lifa líf­inu lif­andi, hætta að geta spilað á gít­ar­inn og séð um sig sjálfur mun hafa áhrif á mig út lífið. Það varð til þess að ég hef nú í eitt ár hugað betur að heils­unni í von um að vera sjálf­bjarga út lífið og efla mig nú og leggja inn í von um að halda styrk til að gera þá hluti sem mér finnst sjálf­sagt að gera í dag. Það á svo allt eftir að koma í ljós en þetta hefur verið hvati til þess að rífa mig upp og fara loks­ins í leik­fimi nokkra morgna í viku. Það er betra að vera elstur í rækt­inni en yngstur á hjúkr­un­ar­heim­ili eins og ein góð kona sagði. Svo held ég áfram að ganga á fjöll eins mikið og ég get, tek stig­ana í vinn­unni og held mér virkri. Svo líður mér að sjálf­sögðu betur og kem alltaf glað­ari út í dag­inn eftir leik­fimi. „Þér verður að líka vel við þig,“ sagði Vigdís Finn­boga­dóttir einu sinni og það er mikið til í því. Þú verður svo glöð með þig þegar þú gerir sem þú seg­ist ætla að gera eins og að mæta í rækt­ina.“

Súrefnið ekki ofmetið stöff

Andrea talar um að það sé svo margt erfitt á meðan á erf­ið­leikum í líf­inu stendur.

„Mér finnst ég almennt hafa og hef haft kjark til að taka erf­iðar ákvarð­anir og ég er umburð­ar­lynd­ari gagn­vart sjálfri mér með árunum. Þetta hefur ein­faldað lífið og gert það betra og fækkað erf­ið­leikum. Þrjósk bjart­sýni ein­kennir mig sem gerir glasið almennt hálf­fullt en svona almennt þá hef ég minni þol­in­mæði fyrir leið­indum og er almennt sátt­ari en ekki síður sterk­ari og styrkur snýst ekki um að vera alltaf sterk. Styrkur snýst stundum um að við­ur­kenna tak­mark­anir sínar, leita sér stuðn­ings og byrja aftur.“

Þegar álag og streita gera vart við sig fer Andrea gjarnan á sumrin út í garð og reitir arfa í blóma­beði og fær mold undir negl­urnar eða þá að hún fer í göngutúr. „Þar hef ég oft fundið bestu lausn­irnar við erf­iðum verk­efnum og þar fæ ég gjarnan nýjar hug­myndir. Í nátt­úr­unni hleð ég batt­er­íin og svo finnst mér sund og vatnið heilandi. Í nátt­úr­unni hef ég alltaf fundið ró, jafn­vægi og ákveðna jarð­teng­ingu. Valin ein­vera hentar mér mjög vel og þá sér­stak­lega undir miklu álagi. Súrefnið er ekki ofmetið stöff og að anda djúpt gerir mikið en í stressi öndum við grunnt og við förum á sjálf­stýr­ingu og þannig á mis við margt, enda álag og streita í of stórum skömmtum snar­hættu­legt ástand. Ef ég er pirruð þá eru miklar líkur á að ég er svöng og ætti að vinda mér í að borða. Að hækka í tón­list gerir mér ávallt gott, enda tón­list mikið meðal. Svo er það nátt­úran sem gerir allt betra þegar eitt­hvað er erfitt og stífla í kerf­inu og svefn er eitt­hvað sem hefur alltaf góð áhrif og gagn­ast öllum. Þá elska ég að fara á mynd­lista­sýn­ingar og söfn, enda hef ég safnað sam­tíma­list í þrjá­tíu og fimm ár. Það var ógeðs­lega gaman með öllum mið­aldra og gömlu körlunum á mynd­lista­upp­boðum hér á síð­ustu öld.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Stjórnandinn

Viðtal
Stjórnandinn

Breyttur heimur sem verður aldrei eins

Kristinn Árni Lár Hróbjartsson er músíkalskur viðskiptafræðingur sem hefur meðal annars unnið hjá Plain Vanilla, Gangverki og uppboðsfyrirtækinu Sothebys. Í fyrrahaust stofnaði hann ásamt Davíð Helgasyni frumkvöðli hugveituna Vörðu sem leggur áherslu á þjóðaröryggi og viðnámsþrótt. Varða stendur meðal annars reglulega fyrir viðburðum og hélt fyrstu alþjóðlegu ráðstefnuna sína á Íslandi í sumar – Reykjavik Security Forum
Viðtal
Stjórnandinn

Intró­vert­inn sem þurfti að verða extró­vert

Viðtal
Stjórnandinn

Rík af reynslu og auð­mjúk eftir röð áfalla