Skemmtistaða- og áfengisverslunareigandinn Sverrir Einar Eiríksson hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir meiriháttar skattalagabrot í rekstri fjögurra einkahlutafélaga.
Sverrir Einar var ákærður fyrir að hafa ekki staðið skil á tæplega 60 milljónum króna í opinber gjöld. Brot hans tengdust meðal annars B Reykjavík ehf., sem hélt utan um rekstur skemmtistaðar í Bankastræti.
Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi Sverri Einar á föstudag og dæmdi hann í 24 mánaða fangelsi. Þar af eru 21 mánuður skilorðsbundinn til þriggja ára og þarf hann því að afplána þrjá mánuði. Þá var honum gert að greiða tæplega 105 milljónir króna í sekt.
Dómurinn hafnaði kröfu héraðssaksóknara um þriggja ára bann við þátttöku Sverris Einars í stjórnun félaga.
Sverrir Einar hefur áður verið dæmdur fyrir skattalagabrot. Árið 2022 hlaut hann tíu mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm vegna sambærilegra brota tengdum rekstri þriggja félaga.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir