Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Heimsþekktir kizomba-dansarar kenna á Íslandi í október

Ekki nauðsynlegt að mæta með dans­félaga.

Jesus og Anni
Jesus og Anni Dansinn er hið hulda tungu­mál sál­ar­innar, sam­kvæmt Mörthu Graham Mynd: YouTube-skjáskot

Spænska dansparið Jesus og Anni kemur til Íslands dagana 24. og 25. október til að kenna urban kizomba. Námskeiðið fer fram í The Dance Space við Höfða­bakka og lýkur með dans­kvöldi á Mama Reykjavík á sunnudags­kvöldinu.

Kizomba er paradans sem á rætur sínar að rekja til Angóla og hefur stundum verið líkt við afrískan tangó. Urban kizomba er nútímalegri útgáfa dansins sem þróaðist í París og sækir áhrif í fleiri dansstíla.

Jesus og Anni hafa kennt dans í rúm átta ár og eru búsett í Madrid. Þau kenna reglulega á Spáni og ferðast um heiminn til að taka þátt í dans­hátíðum og halda námskeið. Jesus stundaði fótbolta í tvo áratugi áður en hann sneri sér að dansi, en Anni hefur dansað frá fimm ára aldri.

Í kennslunni leggja þau áherslu á dans­tækni, nákvæmni og skýrar hreyfingar. Námskeiðið er ætlað fólki með mismikla reynslu og verður aðlagað að getu þátt­takenda. Ekki er nauðsynlegt að mæta með dans­félaga, þar sem reglulega verður skipt um pör. Þeir sem mæta saman geta þó valið að dansa eingöngu við hvort annað. Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu.

Kennslan fer fram laugar­daginn 24. október og sunnu­daginn 25. október, báða dagana frá klukkan 13 til 16. Danskvöld verður síðan haldið á Mama Reykjavík á sunnudag frá klukkan 20 til 23.

Hægt er að sjá viðburðinn hér.

Hér fyrir neðan má svo sjá Jesus og Anni sýna dans­hæfileika sína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Áhorfandi sagði táningsstúlku sem dæmdi leikinn að drepa sig.
Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Stefnir í rólegt stuð

Dóttir.x tilnefnd til Music Moves Europe-verð­launanna 2027