Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Kvörtun föður hafnað án þess að málið væri rannsakað nægilega

Barn í strætóskýli
Barn í strætó­skýli Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Umboðs­maður Alþingis telur að ákvörðun Gæða- og eftirlits­stofnunar velferðar­mála vegna meðferðar barna­verndar­þjónustu á tilkynningu um meint andlegt ofbeldi gegn barni hafi ekki verið reist á fullnægjandi grund­velli.

Málið laut að kvörtun föður sem hafði tilkynnt barna­verndar­þjónustu um meint andlegt ofbeldi móður gegn barni þeirra. Barna­verndar­þjónustan hafði meðal annars litið til þess að forsjármál vegna barnsins væri á sama tíma rekið fyrir dómstólum.

Faðirinn leitaði í kjölfarið til Gæða- og eftirlits­stofnunar velferðar­mála og kvartaði yfir meðferð barna­verndar­þjónustunnar. Stofnunin komst hins vegar að þeirri niður­stöðu að erindi hans uppfyllti ekki skilyrði til að vera tekið til frekari meðferðar. Taldi stofnunin að meðferð barna­verndar­þjónustunnar hefði augljós­lega ekki falið í sér ámælis­verða háttsemi.

Umboðs­maður Alþingis féllst ekki á þá niður­stöðu.

Taldi rannsóknina ófullnægjandi

Í áliti umboðs­manns kemur fram að það sjónarmið að forsjármál væri rekið fyrir dómstólum gæti ekki, eitt og sér og án frekara samhengis, talist málefna­legur grund­völlur fyrir niður­stöðu í málinu.

Umboðs­maður taldi jafnframt að Gæða- og eftirlits­stofnun velferðar­mála hefði ekki haft nægar forsendur til að slá því föstu að meðferð barna­verndar­þjónustunnar á tilkynningu föðurins hefði augljós­lega ekki falið í sér ámælis­verða háttsemi. Til þess hefði þurft að afla frekari upplýsinga frá barna­verndar­þjónustunni.

„Það er niður­staða mín að ákvörðun Gæða- og eftirlits­stofnunar velferðar­mála hafi ekki verið reist á fullnægjandi grund­velli,“ segir í áliti umboðs­manns.

Umboðs­maður beindi þeim tilmælum til stofnunarinnar að taka erindi föðurins til nýrrar meðferðar, óski hann eftir því, og leysa þá úr málinu í samræmi við þau sjónarmið sem rakin eru í álitinu.

Þá var stofnuninni jafnframt gert að taka framvegis mið af sömu sjónar­miðum þegar sambærileg mál koma til úrlausnar.

Umboðs­maður lauk málinu með áliti 10. september 2026. Álitið var birt á vef embættisins 19. október.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

„Ég er búin að fá svo margar fallegar kveðjur og sendingar“
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Halla Tómasdóttir segir að margir karlar glími við einmanaleika og óvissu um hlutverk sitt í samfélaginu.

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja