Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum

Sagt að um 90 pró­sent ein­stak­linga í vændi vilji hætta

Helgi Áss einn ósammála leið borgarinnar í vændismálum
Helgi Áss Grét­ars­son Er með­limur Mið­flokks­ins Mynd: Víkingur

Reykja­vík­ur­borg hyggst móta sam­ræmt verk­lag til að aðstoða ein­stak­linga sem vilja kom­ast út úr vændi eða man­sali. Tillaga þess efnis var sam­þykkt á fundi vel­ferð­ar­ráðs Reykja­vík­ur­borgar í vik­unni.

Tillagan kom frá full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Fram­sókn­ar­flokks­ins og gerir ráð fyrir að sér­stakur verk­efna­hópur verði settur á lagg­irnar. Í honum eiga að sitja full­trúar vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar, Bjark­ar­hlíðar, Stíga­móta og Félags­bú­staða. Þá verður óskað eftir aðkomu lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og ann­arra hag­að­ila eftir þörfum.

Hópnum verður falið að móta skýra þjón­ustu­leið fyrir fólk sem vill kom­ast út úr vændi eða man­sali. Ábyrgð og hlut­verk hvers aðila eiga að vera skil­greind og tryggja á sam­fellu í þjón­ust­unni.

Sérstök áhersla verður lögð á að fólk fái skjótt aðgengi að öruggu hús­næði, félags­legum stuðn­ingi, áfalla­mið­aðri ráð­gjöf og öðrum nauð­syn­legum úrræðum án þess að þurfa sjálft að leita á milli stofn­ana.

Segja 90 prósent vilja hætta

Í bókun full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar, Vinstr­is­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins kemur fram að í nýlegri heim­sókn til Stíga­móta hafi verið vakin athygli á kerf­is­lægum hindr­unum sem mæti fólki sem vill kom­ast út úr vændi eða man­sali.

Þar hafi komið fram að um 90 pró­sent ein­stak­linga í vændi vilji hætta en fátækt, hús­næð­is­leysi og áföll geti gert þeim erfitt fyrir að sjá leið út úr aðstæð­unum. Þá geti skömm gert fyrsta skrefið í átt að aðstoð sér­stak­lega erfitt.

Full­trú­arnir telja að þjón­ustu­kerfið megi ekki verða önnur hindrun þegar fólk leitar sér hjálpar. Mark­miðið sé því að fólk þurfi ekki að ganga á milli stofn­ana og segja sögu sína ítrekað til að fá við­eig­andi aðstoð.

Miðflokkurinn vildi breyta tillögunni

Helgi Áss Grét­ars­son, full­trúi Mið­flokks­ins í ráð­inu, lagði fram breyt­ing­ar­til­lögu. Þar lagði hann meðal ann­ars til að í verk­efna­hópnum sætu einnig akademískur sér­fræð­ingur við Háskóla Íslands sem styður afglæpa­væð­ingu vændis og full­trúi Rauðu regn­hlíf­ar­innar, sam­taka kyn­lífs­verka­fólks á Íslandi.

Í breyt­ing­ar­til­lög­unni var jafn­framt gert ráð fyrir að þjón­ustu­leiðin beind­ist að ein­stak­lingum sem stunda vændi í skjóli mansals og vilja kom­ast út úr þeirri aðstöðu.

Breyt­ing­ar­til­lagan var felld með sex atkvæðum gegn einu.

Helgi Áss sat hjá þegar upp­haf­lega til­lagan var sam­þykkt. Í bókun sinni sagði hann fram­kvæmd stefnu stjórn­valda í vænd­is­málum fyrst og fremst vera á ábyrgð rík­is­ins en ekki sveit­ar­fé­laga. Hann sagði til­lög­una því hafa viss ein­kenni póli­tískrar sýnd­ar­mennsku.

Hann tók þó fram að félags­þjón­usta sveit­ar­fé­lags­ins ætti meðal ann­ars að ná til íbúa sem væru fórn­ar­lömb mansals. Það leiddi hins vegar ekki sjálf­krafa til þess að sveit­ar­fé­lagið ætti að aðstoða íbúa sem vildu hætta að veita kyn­lífs­þjón­ustu og taldi hann slíkt verk­efni fremur eiga heima hjá rík­is­vald­inu.

Verk­efna­hóp­ur­inn á að skila vel­ferð­ar­ráði til­lögu að verk­lagi og útfærslu fyrir 20. des­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Pólitík

Pólitík

Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

„Áfram, forsetinn minn. Ekki vera huglaus.“
  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum

  • Pólitík

    23 störf hverfa hjá Hafn­ar­fjarð­arbæ