Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani

„Þessi við­brögð bisk­ups Íslands eru í meira lagi und­ar­leg“

Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani
Stefán Einar Stef­áns­son Mynd: BHJ

Blaða­mað­ur­inn Stefán Einar Stef­áns­son gagn­rýnir í færslu á Facebook harð­lega við­brögð bisk­ups Íslands vegna heim­sóknar pakist­anska trú­ar­leið­tog­ans og fyrr­ver­andi dóm­ar­ans Muhammad Taqi Usmani hingað til lands. Usmani flutti trú­ar­legan fyr­ir­lestur í Stór­mosk­unni við Bústaða­veg í síð­ustu viku.

Stefán Einar fjallar um málið í færslu þar sem hann vísar til við­bragða bisk­ups við frétt sem hann skrif­aði sjálfur. Þar hafði meðal ann­ars verið fjallað um umdeildar trú­ar­legar og sam­fé­lags­legar skoð­anir sem Usmani hefur látið í ljós.

Stefán Einar gerir einkum athuga­semd við þann fyr­ir­vara bisk­ups að þær skoð­anir sem eign­aðar hafa verið Usmani stang­ist á við boð­skap og gildi kirkj­unnar og íslensks sam­fé­lags „reyn­ist“ þær réttar.

„Þessi við­brögð bisk­ups Íslands eru í meira lagi und­ar­leg þegar heim­sókn pakist­anska dóm­ar­ans og trú­ar­leið­tog­ans Usmani eru bornar undir hann,“ skrifar Stefán Einar.

Segir viðbrögðin ekki ganga nógu langt

Í skrifum sínum vísar Stefán Einar til þess að Usmani hafi meðal ann­ars varið harðar refs­ingar sam­kvæmt íslömskum rétti. Hann gagn­rýnir að biskup hafi ekki tekið afdrátt­ar­laus­ari afstöðu til heim­sókn­ar­innar og fyr­ir­lestr­ar­ins.

„Af hverju for­dæmir bisk­upinn ekki þetta fyr­ir­lestra­hald eða að menn með þessar skoð­anir séu boðnir vel­komnir til þess að ausa úr skálum visku sinnar yfir söfnuð sinn við Bústaða­veg?“ spyr hann.

Stefán Einar ber við­brögðin saman við afstöðu bisk­ups í umræðu um rétt­indi hinsegin fólks og harðn­andi orð­ræðu gagn­vart sam­kyn­hneigðum erlendis. Hann telur að þar hafi biskup tekið skýr­ari afstöðu.

Hann gengur jafn­framt lengra og heldur því fram að ástæða við­bragð­anna sé sú að það sem hann kallar „vók“ hug­mynda­fræði hafi haft áhrif á Þjóð­kirkj­una. Að hans mati geri ótti við að ýta undir útlend­inga­andúð kirkj­unni erf­ið­ara fyrir að gagn­rýna umdeildar skoð­anir innan íslams.

Stefán Einar tengir málið einnig við stöðu Þjóð­kirkj­unnar og spyr hvort það sé að undra að hlut­fall þjóð­ar­innar innan hennar fari minnk­andi.

Stórmoskan segist ekki hafa boðið Usmani til landsins

Stór­moskan við Bústaða­veg hefur á sama tíma sagt að hún hafi ekki boðið Usmani til Íslands heldur hafi hann komið á eigin vegum. Þá hafi ekk­ert sér­stakt mat verið lagt á umdeildar skoð­anir hans áður en hann flutti trú­ar­legan fyr­ir­lestur í mosk­unni.

Fram­kvæmda­stjóri Stór­mosk­unnar sagði einnig við Mannlíf að Morg­un­blaðið hafi ekki haft sam­band við mosk­una vegna þeirra frétta sem blaðið hefur birt um fyr­ir­lest­ur­inn.

Málið hefur því vakið umræðu bæði um skoð­anir Usmani og hvernig staðið var að heim­sókn hans og fyr­ir­lestri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi