1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

6
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

7
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

8
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

9
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

10
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Til baka

54 einstaklingar munu ekki fá áframhaldandi starf hjá borginni

„Markmiðið er að tryggja að fjármunir borgarinnar nýtist sem best í þágu Reykvíkinga“

Hildur Björnsdóttir
Hildur BjörnsdóttirEr borgarstjóri Reykjavíkur
Mynd: BHJ

Reykjavíkurborg mun segja upp 86 starfsmönnum vegna umfangsmikilla breytinga á stjórnskipulagi velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs. Af þeim verður 32 starfsmönnum boðið nýtt eða breytt starf en 54 munu ekki fá áframhaldandi starf hjá borginni.

Þetta kemur fram í tilkynningu Reykjavíkurborgar eftir að borgarráð samþykkti í dag tillögu borgarstjóra um breytingarnar. Ný skipurit sviðanna taka gildi 1. september og á innleiðingu að vera að fullu lokið fyrir næstu áramót.

Áætlað er að breytingarnar skili um 900 milljóna króna hagræðingu á ársgrundvelli þegar þær hafa að fullu komið til framkvæmda. Sparnaðurinn verður meðal annars til vegna fækkunar stöðugilda, breytinga á stjórnskipulagi og lægri húsnæðiskostnaðar.

Með breytingunum verður stjórnendum og millistjórnendum fækkað en Reykjavíkurborg segir áherslu lagða á að verja framlínuþjónustu. Stjórnunar- og rekstrareiningum verður fækkað, verkaskipting gerð skýrari og boðleiðir styttar.

Verkefni miðstöðva, frístundamiðstöðva, Keðjunnar og Virknihúss verða færð inn í nýtt skipulag. Í stað þess að þjónusta byggist að stórum hluta á landfræðilegri hverfaskiptingu verður hún í auknum mæli skipulögð eftir faggreinum. Fagþekking á einstökum málaflokkum verður þannig sameinuð í stærri og sérhæfðari teymum.

Frá áramótum verður barna- og fjölskylduþjónusta ásamt skóla- og frístundaþjónustu með aðsetur í Borgartúni 12–14. Félags- og húsnæðisþjónusta verður hins vegar staðsett á Bíldshöfða 20. Markmiðið er meðal annars að börn og fjölskyldur geti sótt þjónustu á einn stað.

Þjónusta miðstöðvanna verður áfram veitt með óbreyttu fyrirkomulagi á meðan breytingarnar eru innleiddar, þó ekki lengur en til ársloka.

Reykjavíkurborg segir starfsemi og rekstur miðstöðvanna hafa dregist saman um 60 prósent frá því að málefni fatlaðs fólks voru færð frá miðstöðvunum til fagskrifstofu velferðarsviðs í ársbyrjun 2025.

Af þeim störfum sem hverfa eru 22 stöðugildi sem lögð verða niður þegar samningur Reykjavíkurborgar við ríkið um samræmda móttöku flóttamanna rennur út um næstu áramót.

„Með þessum breytingum erum við að einfalda skipulag borgarinnar, styrkja faglegt starf og skapa betri umgjörð um þjónustu við íbúa. Markmiðið er að tryggja að fjármunir borgarinnar nýtist sem best í þágu Reykvíkinga. Á sama tíma stöndum við vörð um þjónustuna, sem verður áfram nálægt íbúum, en að baki henni verða öflugri fagteymi, skýrari ábyrgð og styttri boðleiðir. Rekstrarstaða borgarinnar kallar á hagræðingu og því miður verður ekki komist hjá því að hún hafi áhrif á starfsfólk. Við höfum lagt megináherslu á að einfalda stjórnskipulagið og fækka stjórnendastöðugildum í miðlægri stjórnsýslu,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu
Heimur

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á
Heimur

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds
Heimur

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun

Gunnlaugur Stefánsson

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

„Það sendir vonarglætu í heim þar sem mennskan er á undanhaldi“
Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina
Pólitík

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

Loka auglýsingu