1
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

2
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

3
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

4
Heimur

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi

5
Minning

Hörður Torfa kveður Megas

6
Sport

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu

7
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

8
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

9
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

10
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Til baka

Albert Einstein gengur laus

Talinn hafa skipulagt stórfellt fíkniefnasmygl með Norrænu.

Norræna - Smyril line
NorrænaÞrír hafa verið dæmdir í fangelsi í málinu
Mynd: Shutterstock

Þrír erlendir ríkisborgarar hafa hlotið fimm ára óskilorðsbundna fangelsisdóma fyrir tilraun til að smygla um 10 kílóum af kókaínklóríði til landsins með Norrænu í nóvember á síðasta ári. Skipulagning smyglsins var rakin til aðila sem notaði dulnefnið Albert Einstein, en hver sá aðili er hefur ekki verið upplýst. Þetta kemur fram í frétt Austurfréttar.

Fíkniefnin fundust í bifreið sem einn mannanna flutti til Seyðisfjarðar eftir ferð frá Frakklandi. Við hefðbundna greiningarvinnu lögreglu kviknaði grunur um ólöglegan farm og var óskað eftir aðstoð lögreglu á höfuðborgarsvæðinu. Bíllinn var í kjölfarið tekinn til ítarlegrar skoðunar við komuna til landsins.

Á meðan skoðun fór fram hélt ökumaðurinn til í bænum. Hann bar síðar fyrir dómi að hann hefði fengið pakka frá manni að nafni Albert og grunað að eitthvað væri óeðlilegt við innihaldið. Hann kaus þó að svara ekki spurningum nema í gegnum verjanda sinn.

Í ljós kom að efnið var falið í tveimur rauðvínsbeljum sem virtust eðlilegar við fyrstu sýn. Úr efninu hefði mátt vinna um 6,2 kíló af kókaíni og var áætlað að markaðsvirði þess næmi að minnsta kosti 100 milljónum króna.

Eftir að bifreiðin hafði verið haldin í um fjórar klukkustundir var henni skilað til ökumanns. Hann og tengiliðir hans skiptust þá á skilaboðum um að „skipið væri lent“, án þess að vita að lögregla hafði þegar skipt efninu út fyrir gerviefni og komið fyrir hlerunar- og eftirfararbúnaði. Ökumaðurinn hélt í kjölfarið til Reykjavíkur og gisti þar á hóteli.

Daginn eftir afhenti hann öðrum manni rauðvínsbeljurnar. Þeir heilsuðust og kvöddust með handabandi, sem vakti athygli lögreglu sem fylgdist með aðgerðinni. Sá maður fór síðan til móts við þriðja manninn og voru þeir allir handteknir skömmu síðar í umfangsmikilli lögregluaðgerð.

Tveir mannanna höfðu ferðast til Íslands frá Spáni um Ítalíu. Þeir sögðust hafa ferðast saman þar sem annar þekkti landið betur og þeir hefðu viljað deila kostnaði og verkefnum.

Yngri maðurinn sagðist hafa verið beðinn um að taka við pakka og afhenda hann síðar. Hann vísaði einnig til samskipta við aðila sem notuðu dulnefnin Albert Einstein og Mad Drugs á samskiptaforritinu Signal, en talið er að þeir hafi skipulagt smyglið. Hann kvaðst hafa grunað að um fíkniefni væri að ræða, en talið líklegra að um MDMA væri að ræða fremur en kókaín.

Dómurinn tók fram að framburður mannanna væri mismunandi trúverðugur. Sá sem flutti efnið til landsins þótti almennt trúverðugur, þó talið væri að hann hefði ekki sagt allt. Yngri maðurinn þótti einnig trúverðugur að hluta, einkum í skýrslutökum lögreglu. Framburður elsta mannsins var hins vegar talinn ótrúverðugur og í andstöðu við gögn málsins.

Dómurinn lagði áherslu á að þrátt fyrir mismunandi hlutverk hefði öllum mátt vera ljóst að þeir væru þátttakendur í innflutningi ólöglegra fíkniefna. Ekki skipti máli hvort þeir hefðu vitað nákvæmlega hvaða efni var um að ræða, enda hefðu þeir að minnsta kosti sýnt af sér kæruleysi gagnvart því.

Málið var talið bera öll einkenni skipulagðrar og lagskiptrar brotastarfsemi þar sem fleiri aðilar komu að verki. Af þeim sökum var ekki gerður greinarmunur á sök mannanna þriggja.

Þrátt fyrir að tveir þeirra hefðu sýnt iðrun og góða hegðun hafði það ekki áhrif til lækkunar refsingar. Allir þrír voru dæmdir í fimm ára fangelsi. Auk þess voru þeir dæmdir til að greiða verjendum sínum á bilinu 3,5 til 3,9 milljónir króna hver og sameiginlega tæplega hálfa milljón í sakarkostnað.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi
Heimur

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Katie Couric missti minnið tímabundið
Heimur

Katie Couric missti minnið tímabundið

Björgvin Franz kominn með kærustu
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu
Sport

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi
Heimur

Lík móður og tveggja barna hennar fundust í ensku þorpi

Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Myndefni sýnir tvo menn sem lögreglan leitar nú að.
Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar
Innlent

Ugla Stefanía fordæmir skemmdarverk á eign kirkjunnar

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum
Innlent

Tíu hafa réttarstöðu sakborninga vegna brunans á Stuðlum

Loka auglýsingu