
Mánuður er liðinn frá því að tveir mannskæðir jarðskjálftar riðu yfir Venesúela og hafa Barnaheill – Save the Children lýst yfir þungum áhyggjum af stöðu þúsunda barnshafandi kvenna og nýbakaðra mæðra á hamfarasvæðunum.
Í fréttatilkynningu frá samtökunum kemur fram að aðgangur að mæðravernd, næringarríkri fæðu og öruggu skjóli sé verulega takmarkaður eftir að fjöldi heilsugæslustöðva og heilbrigðisstofnana skemmdist eða varð óstarfhæfur í skjálftunum sem urðu 24. júní.
Samkvæmt upplýsingum Sameinuðu þjóðanna urðu um 21 þúsund manns heimilislausir í hamförunum og hafast nú margir við í neyðarskýlum eða undir berum himni. Á meðal þeirra eru um 37 þúsund barnshafandi konur, þar af um fjögur þúsund sem eiga von á barni á næstu vikum.
Stærsta fæðingarsjúkrahúsið lokað
Barnaheill segja að stærsta fæðingarsjúkrahúsið í La Guaira-héraði hafi þurft að loka vegna skemmda á burðarvirki byggingarinnar. Þar sé nú aðeins hægt að veita grunnþjónustu en öllum flóknari tilfellum sé vísað til höfuðborgarinnar Caracas.
Samtökin vara við því að skortur á næringarríkum mat, þurrmjólk fyrir ungbörn og mæðravernd geti leitt til vannæringar hjá nýburum auk þess sem hættan á fyrirburafæðingum og lágri fæðingarþyngd aukist.
Regntíminn eykur hættuna
Aðstæður hafa enn versnað þar sem regntíminn er hafinn í Venesúela. Fjölskyldur sem búa í tjöldum glíma við blaut og erfið lífsskilyrði og nýfædd börn eru í aukinni hættu á að veikjast alvarlega.
Barnaheill benda einnig á að börn og fjölskyldur séu útsett fyrir sjúkdómum á borð við beinbrunasótt og sika-veiru sem berast með moskítóflugum.
Jafnframt segir að margar mæður upplifi mikla streitu og kvíða vegna aðstæðna sinna og eigi erfitt með að útvega bleyjur og aðrar nauðsynjar fyrir börn sín.
Kalla eftir aukinni mannúðaraðstoð
Barnaheill – Save the Children segja brýnt að barnshafandi konur, konur með börn á brjósti og ung börn fái forgang í mannúðaraðstoð og endurreisnarstarfi á hamfarasvæðunum.
Að mati samtakanna verður það aðeins tryggt með góðri samhæfingu, fullnægjandi fjármögnun og markvissum aðgerðum.
Samtökin styðja um þessar mundir færanlegar heilsugæslustöðvar á skjálftasvæðunum þar sem ungar mæður og verðandi mæður geta fengið nauðsynlega heilbrigðisþjónustu.
