
Birta Karen Tryggvadóttir hefur verið ráðin til starfa sem hagfræðingur á málefnasviði Viðskiptaráðs en þetta kemur fram í tilkynningu hjá félaginu.
Hún er með B.S.-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og er nú á lokaspretti meistaranáms í hagfræði við Erasmus School of Economics í Hollandi.
Áður starfaði Birta Karen sem hagfræðingur hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi í þrjú ár, þar sem hún sinnti greiningum á íslenskum sjávarútvegi. Hún hefur einnig starfað sem blaðamaður á Viðskiptablaðinu og var sumarstarfsmaður hjá Íslandsbanka.
Í nýju starfi sínu hjá Viðskiptaráði mun Birta Karen leggja megináherslu á málefnastarf og útgáfu, þar á meðal hagfræðilegar greiningar, skýrslugerð, skrif og þátttöku í fjölbreyttum verkefnum ráðsins.

Komment