1
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

2
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

3
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

4
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

5
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

6
Heimur

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni

7
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

8
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

9
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

10
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Til baka

Blöskrar getuleysi lögreglunnar

Getuleysi eða nennuleysi?

Steinar Sveinsson
Steinar Sveinsson, stjórnandi Facebook-hópsins: Báknið burt
Mynd: Facebook/Steinar Sveinsson

Steinar Sveinsson sem sér um hópinn Báknið burt á Facebook lýsir yfir mikilli óánægju með lögreglustjórann í Reykjavík.

„Ég hef hér áður birt innlegg um hversu ömurlega lögreglustjórinn í Reykjavík stendur sig i að rannsaka augljósar blekkingar og fjársvik sem ég varð fyrir.“

Ástæða þessarar óánægju er færsla sem ónefndur birti inni í hópnum Bakland ferðaþjónustunnar. Í færslunni eru, að sögn þessa ónefnda,

„sígunaræflar“ sakaðir um vasaþjófnað á vinsælum ferðamannastöðum. Þar er því lýst að þjófnaðurinn hafi verið tilkynntur til lögreglu sem að þeirra sögn hefur ekki brugðist við.

„Starfsmenn lögregluembættisins hafa gert allt í þessu máli nema að vinna vinnuna sína og rannsaka málið.

Lögreglan hefur fellt málið niður án þess að rannsaka það á nokkurn hátt. Ríkissaksóknari gerði lögreglu að rannsaka málið eftir kæru mína en jafnvel það virðist ekki koma þessu handónýta starfsfólki til meðvitundar. Ég mun þó vinna þetta mál að lokum.

Starfsfólk lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins hefur eytt meiri tíma í að reyna að koma málinu frá sér og rannsaka það ekki, með því að senda mér ,,rökstutt” erindi um niðurfellingu málsins og ,,rökstyðja” árangurslaust ákvörðun sína gagnvart ríkissaksóknar, en að rannsaka málið sjálft.

Samt sem áður er málið borðleggjandi, lögmaður minn lagði málið upp í kæru og ég skilaði ítarlegum gögnum. Lögregla þurfti í raun lítið að gera sjálfstætt í málinu en réði þó ekki einu sinni við það.

Hér er annað dæmi um hversu vonlaus lögreglan er. Þjófagengi hafa stundað hér í lengri tíma vasaþjófnað í miðborg Reykjavíkur og á vinsælum ferðamannastöðum.

Lögregla lýsir því yfir í fjölmiðlum að það sé óskaplega erfitt að eiga við þetta, lýsir því yfir nánast með aðdáun að um mikla fagmenn sé að ræða, en segist samt hafa sent óeinkennisklædda lögreglumenn til að ráfa um ferðamannastaðina og reyna að sjá vasaþjófana - án árangurs.

En svo er málið svo borðleggjandi, augljóst og einfalt, að það er á almannavitorði hvar hinir erlendu vasaþjófar búa á meðan þeir eru á landinu, hvaða bílum þeir aka, og hvert þeir fara helst, sjá mynd.

Og borgarar ræða um að gera eitthvað í málinu byggt á þessum almennu upplýsingum en lögregla þykist ráðalaus, og dáðalaus, en ráfar í þoku árangurslaust um ferðamannastaði.

Er nema von að mörgum blöskri getuleysi lögreglunnar og löggæsluyfirvalda? Þetta lögreglubákn er vonlaust og fólk virðist gera sitt versta til að vinna alls ekki vinnuna sína - og komast upp með það.“

Undir færslu Steinars eru margir sammála. Netverjar ausa yfir reiði sína, ekki bara vegna þjófnaðarins heldur líka yfir störfum kvenkyns lögreglumanna.

Kvörtun inn á Bakland ferðaþjónustu
Mynd: Facebook/Bakland Ferðaþjónustunnar
Athugsemd inn á FB
Mynd: Facebook/Bakland Ferðaþjónustunnar
Athugasemd inn á FB
Mynd: Facebook/Bakland Ferðaþjónustunnar
Athugasemd inn á FB
Mynd: Facebook/Bakland Ferðaþjónustunnar
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Hildi sagt upp hjá borginni
Ný frétt
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

Er „sár og leið og reið og vonsvikin“ eftir langan starfsferil.
Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani
Innlent

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani

María Lilja rekin af Samstöðinni
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm
Innlent

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO
Myndir
Innlent

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO

Sjö ára stúlka sem særðist í skotárás í skóla komin af gjörgæslu
Heimur

Sjö ára stúlka sem særðist í skotárás í skóla komin af gjörgæslu

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði
Innlent

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön
Fólk

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön

Nú er komið að þér, Krist­rún!
Skoðun

Svanur Már Snorrason

Nú er komið að þér, Krist­rún!

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah
Heimur

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið
Innlent

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings
Myndband
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni
Ný frétt
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

Er „sár og leið og reið og vonsvikin“ eftir langan starfsferil.
Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði
Innlent

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani
Innlent

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani

María Lilja rekin af Samstöðinni
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm
Innlent

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO
Myndir
Innlent

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO

Loka auglýsingu