
Reykjavíkurborg hvetur almenning til að hætta að gefa öndum brauð við Tjörnina á meðan varptími stendur sem hæst og fyrstu andarungarnir eru að klekjast út. Samkvæmt tilkynningu borgarinnar laðar brauðgjöf að sér sílamáva sem geta ógnað ungunum og haft neikvæð áhrif á afkomu þeirra.
Fjölmörg andapör hafa nú komið sér fyrir við Tjörnina, einkum stokkendur og skúfendur, og vonast er til að fjöldi unga komist á legg í sumar. Borgin bendir á að endur hafi næga náttúrulega fæðu yfir sumartímann og því sé engin þörf á viðbótarfóðrun.
Jafnframt er bent á að brauðgjöf geti haft skaðleg áhrif á vistkerfi Tjarnarinnar. Aukið magn næringarefna í vatninu getur valdið ofauðgun, sem leiðir til fjölgunar blágrænna gerla og skerðir lífsskilyrði plantna og smádýra sem fuglar reiða sig á til fæðu.
Mælt er með að brauðgjöf verði stöðvuð frá miðjum maí og fram á haust. Þegar vetur nálgast er ráðlagt að gefa fuglum fremur korn, fræ, hafra eða annað hentugt fóður.
