Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Dýraverndarsambandið fordæmir minkasleppinguna í Mosfellsdal

„Sambandið styður ekki slíka nálgun.“

Mosfellsdalur
Mos­fells­dalur Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint Mynd: Stig Nygaard

Dýraverndar­samband Íslands (DÍS) segir það vera alvarlegt dýra­velferðarmál að hundruðum minka hafi verið sleppt úr loðdýrabúi í Mosfellsdal og varar við afleiðingum fyrir bæði lífríki og dýrin sjálf.

Í yfir­lýsingu sambandsins kemur fram að minkar séu afkasta­mikil rándýr og að sá mikli fjöldi sem var sleppt geti valdið verulegum skaða á lífríki svæðisins, ekki síst fuglalífi.

Jafnframt bendir DÍS á að verknaðurinn geti haft alvarleg áhrif á velferð minkanna sjálfra.

„Þessi verknaður varðar einnig velferð minkanna sjálfra þar sem dýr sem hafa verið alin innandyra geta reynst bjargar­laus í nátt­úrunni,“ segir í yfir­lýsingunni.

Sambandið tekur undir hvatningu Matvæla­stofnunar um að dýra­eigendur gæti öryggis dýra sinna og hvetur jafnframt almenning til að halda sig frá leitar­svæðinu.

„Fólk er hvatt til að fara ekki á svæðið í þeim tilgangi að taka þátt í leit eða föngun minkanna. Sú vinna er alfarið á ábyrgð og á vegum fagaðila sveitar­félagsins,“ segir þar.

Dýraverndar­sambandið leggur jafnframt áherslu á að allar aðgerðir vegna minkanna verði framkvæmdar á mannúð­legan hátt og að aflífun, þar sem hún reynist óhjá­kvæmileg, fari fram í samræmi við lög um velferð dýra.

Lögregla rannsakar nú málið og hefur enn ekki staðfest hver eða hverjir stóðu að því að sleppa minkunum eða hver tilgangurinn var.

Að lokum segir DÍS að ef verknaðurinn hafi verið framinn í nafni dýra­velferðar sé hann til þess fallinn að skaða málstað dýra­verndar.

„Dýraverndar­sambandið vill árétta að hafi verið um að ræða aðgerð í nafni dýra­velferðar skaðar slíkt aðeins málstað dýra. Sambandið styður ekki slíka nálgun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum