1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

6
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

7
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

8
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

9
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

10
Heimur

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds

Til baka

Eva segir dómarann hafa dregið „víðáttuvitlausar ályktanir“ í máli Skúla Tómasar

„Þegar niðurstaðan virðist fráleit er það vísbending um að forsendurnar séu rangar“

Eva Hauksdóttir
Eva HauksdóttirEva rífur í sig stjórnvöld í greininni
Mynd: Facebook

Lögmaðurinn Eva Hauksdóttir fer hörðum orðum um meðferð stjórnvalda og dómskerfisins á máli Skúla Tómasar Gunnlaugssonar læknis í grein sem hún birti á Vísi í gær. Hún segir að framganga ríkisvaldsins hafi verið „með ólíkindum“ og lýsir yfir alvarlegum efasemdum um stöðu réttarríkisins.

„Framganga ríkisvaldsins í þessu máli hefur verið með ólíkindum. Hvort sem litið er til löggjafans, framkvæmdarvalds eða dómsvalds, hafa viðbrögðin við máli lífslokalæknisins verið slík að ég stórefast um að við ráðum við það verkefni að halda uppi réttarríki,“ skrifar Eva en hún er dóttir Dönu Jóhannsdóttur, en Skúli Tómas var ákærður fyrir að hafa valdið dauða hennar árið 2019, þegar hún fór í hvíldarinnlögn á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Hún gagnrýnir meðal annars embætti landlæknis fyrir að hafa aðeins svipt Skúla lækningaleyfi í 15 vikur þrátt fyrir niðurstöður rannsóknar embættisins og bendir á að hann hafi síðar fengið fullt starfsleyfi á ný á meðan lögreglurannsókn stóð enn yfir.

Eva gagnrýnir einnig Landspítalann fyrir að hafa ráðið Skúla til starfa á meðan hann var til rannsóknar vegna gruns um manndráp.

„Skúli vann á Landspítalanum allt þar til héraðssaksóknari ákærði hann fyrir manndráp af ásetningi þann 30. mars síðastliðinn. Þá var hann sendur í frí en er nú kominn aftur til starfa,“ skrifar hún.

Þá segir hún heilbrigðisráðherra og Alþingi hafa brugðist tækifæri til að styrkja lagaramma um öryggi sjúklinga. Hún gagnrýnir jafnframt lögreglu og embætti héraðssaksóknara fyrir langa málsmeðferð og skort á upplýsingagjöf til aðstandenda.

Eva beinir einnig spjótum sínum að Héraðsdómi Reykjaness, sem vísaði málinu frá á þeim grundvelli að Skúli hefði þegar sætt refsikenndum viðurlögum með málsmeðferð landlæknis.

„Þegar niðurstaðan virðist fráleit er það vísbending um að forsendurnar séu rangar,“ skrifar hún og segir dómarann hafa dregið „víðáttuvitlausar ályktanir“ af fordæmum Mannréttindadómstóls Evrópu.

Eva telur líklegt að Landsréttur muni snúa þeirri niðurstöðu við.

„Þegar Landsréttur hefur skoðað málið er líklegast að undið verði ofan af ruglinu og málið sent heim í hérað til efnislegrar meðferðar,“ skrifar hún.

Að lokum bendir Eva á að dómarinn í máli Skúla sé varaformaður siðanefndar Læknafélags Íslands.

„Þess má geta að dómarinn sem vísaði málinu frá héraðsdómi er varaformaður siðanefndar Læknafélags Íslands, félags sem Í nóvember 2021 lýsti yfir stuðningi við umræddan sakborning sem var til lögreglurannsóknar vegna gruns um fjölda manndrápa í starfi.“

Skúli Tómas Gunnlaugsson hefur hafið störf á ný á Landspítalanum eftir að Héraðsdómur Reykjaness vísaði manndrápsmálinu gegn honum frá dómi. Héraðssaksóknari hefur kært frávísunarúrskurðinn til Landsréttar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu
Heimur

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á
Heimur

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds
Heimur

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun

Gunnlaugur Stefánsson

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

„Af hverju var þetta leyft?“
Íhugar að fara í mál við Sigfús
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Loka auglýsingu