1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

6
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

7
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

8
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

9
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

10
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

Til baka

Ferðamenn í vandræðum á hálendinu

„Fjárhagsleg martröð“

Ferðamaður í Landmannalaugum
Bílaleigubíll í Landmannalaugum„Mig minnir að einhver forsprakki tryggingafélaganna hafi sagt að tjón á bílaleigubílum sé áætlað um 40 milljarða á ári.“
Mynd: Facebook/Roman Edwardson

Það er vaxandi áhyggjuefni hversu margir ferðamenn reyna að aka á óviðeigandi bílaleigubílum inn á hálendið. Þetta getur skapað mikla hættu og breytt fríinu í fjárhagslega martröð.

Í opinberri færslu inn í hópnum Bakland ferðaþjónustunnar birtir ferðamaður sem virkar mjög sáttur með sitt ferðalag myndir af bílaleigubílnum sínum föstum út í miðri á og ofan á hrauni í Landmannalaugum.

Víst er að ævintýrið mun kosta manninn heilmikið og nefndi einn í athugasemd við færsluna að: „Það er greinilega búið að opna inní Landmannalaugar og ævintýrin byrjuð. Mig minnir að einhver forsprakki tryggingafélaganna hafi sagt að tjón á bílaleigubílum sé áætlað um 40 milljarða á ári.“

Markús Einarsson segir í athugasemdum:

„Það er ekki bannað að vera fáviti. En það kostar, “ og segir Knútur E. Knudsen alls ekki vera ánægður með þróunina:

„Svo fara þessir bílar á bílasölu og seldir Íslendingum,“ þá er Sunna hálfbuguð og segir:

„og gamanið er byrjað.“

Ferðamaður í Landmannalaugum
Mynd: Facebook/Roman Edwardson
Ferðamaður í Landmannalaugum
Mynd: Facebook/Roman Edwardson
Ferðamaður í Landmannalaugum
Mynd: Facebook/Roman Edwardson

Harðbannað að aka hefðbundnum fólksbifreiðum án fjórhjóladrifs

Það má keyra inn í Landmannalaugar þegar Vegagerðin opnar hálendisvegina á sumrin, sem er að jafnaði frá miðjum júní og fram í miðjan september. Vegirnir eru lokaðir og ófærir allan veturinn og vorin vegna snævar og aurbleytu. Nákvæm opnun fer svo algjörlega eftir veðri, snjóalögum og ástandi veganna hverju sinni.

Þá er vegfarendum bent á að harðbannað sé að aka hefðbundnum fólksbifreiðum án fjórhjóladrifs (2WD) inn á hálendissvæðið við Landmannalaugar. Vegir sem liggja að svæðinu eru flokkaðir sem F-vegir, þar sem lögum samkvæmt er einungis leyfilegt að aka fjórhjóladrifnum ökutækjum (4x4) með góða veghæð.

Eftirfarandi reglur og öryggisráðstafanir gilda um ferðalög á svæðinu:

  • Lögboðin ökutæki: Akstur á vegum eins og F208 og F225 krefst fjórhjóladrifs til að takast á við grófa malarvegi, djúpar skorningar og óbrúaðar ár.
  • Bílaleigubílar: Almennir leigusamningar bílaleiga banna með öllu akstur tvíhjóladrifinna bíla á F-vegum. Brot á þeim reglum fella allar tryggingar úr gildi og varða háum sektum.
  • Aðrir ferðamátar: Þeir sem ferðast á fólksbílum geta lagt land undir fót með því að nýta áætlunarbíla (hálendisrútur) eða lagt bifreiðum sínum á merktum bílastæðum áður en komið er að óbrúuðum ám og gengið síðasta spöl þaðan.
  • Mikilvæg vöktun: Hálendisvegir eru lokaðir yfir vetrartímann og aðstæður breytast hratt á sumrin. Ferðafólk er hvatt til að kynna sér ástand vega á Umferðin.is og öryggisviðvaranir á SafeTravel Iceland áður en lagt er af stað.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah
Heimur

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah

Skinwalkers, gátt yfir í aðra vídd og fleiri furðufrásagnir opinberaðar
Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið
Innlent

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings
Myndband
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“
Innlent

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku
Myndband
Heimur

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga
Innlent

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga

Vopnað lögreglulið kallað út vegna hótana í Bærum
Heimur

Vopnað lögreglulið kallað út vegna hótana í Bærum

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu
Landið

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“
Innlent

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“

Dóttir Noels Gallagher flutt á sjúkrahús í andnauð
Myndband
Heimur

Dóttir Noels Gallagher flutt á sjúkrahús í andnauð

Tugir missa vinnuna hjá Reykjavíkurborg
Innlent

Tugir missa vinnuna hjá Reykjavíkurborg

Nýtt bókaforlag vill efla íslenskulestur meðal fólks af erlendum uppruna
Menning

Nýtt bókaforlag vill efla íslenskulestur meðal fólks af erlendum uppruna

Landið

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu
Landið

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Vilja vernda náttúruperlu í Skriðdal
Landið

Vilja vernda náttúruperlu í Skriðdal

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA
Landið

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Loka auglýsingu