1
Heimur

Flugvél á leið frá Tenerife sneri við eftir hópslagsmál um borð

2
Heimur

Orrustuþota hrapaði skammt frá Moskvu

3
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

4
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

5
Heimur

Dómari skipar Trump að afhenda gögn

6
Heimur

Dánarorsök Kaylee Hottle staðfest eftir banaslys

7
Heimur

Móðir Ben Needham hafnar kenningu lögreglu

8
Heimur

Gagnrýnendur hrósa nýrri þáttaröð Klovn

9
Fólk

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum

10
Heimur

Karlmenn flykkjast í háreyðingu eftir að stuttbuxur voru leyfðar í vinnunni

Til baka

Fluttu inn kók í steyptu borði

Var sent til Íslands frá Bandaríkjunum

Héraðsdómur Reykjavíkur
Héraðsdómur Reykjavíkur sá um málið
Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo menn til fangelsisvistar fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots vegna innflutnings á rúmu kílói af kókaíni sem falið var í steyptu borði og sent til Íslands frá Bandaríkjunum með póstsendingu árið 2024.

Annar mannanna, Audrius Ablingis, var dæmdur í 20 mánaða fangelsi en Jonas Mockevicius hlaut 18 mánaða fangelsisdóm.

Samkvæmt ákæru og niðurstöðu dómsins stóðu mennirnir saman að innflutningi á 1.003,59 grömmum af kókaíni sem hafði mjög mikinn styrkleika. Fíkniefnin voru ætluð til dreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Tollgæsla stöðvaði sendinguna við komuna til landsins og lögregla fjarlægði fíkniefnin áður en sendingin var afhent. Í staðinn var komið fyrir gerviefnum ásamt eftirfarar- og hlustunarbúnaði.

Dómurinn rekur að skráður móttakandi hafi sótt sendinguna á pósthús í Reykjavík 4. september 2024 og flutt hana á bifreiðaverkstæði við Eldshöfða. Þaðan sótti Ablingis pakkann og fór með hann í bílskúr við Álfheima sem hann hafði á leigu ásamt Mockevicius.

Lögregla fylgdist með ferðum mannanna þann dag og taldi hegðun þeirra bera með sér að þeir væru mjög varir um sig. Meðal annars fóru þeir í akstur til að kanna hvort fylgst væri með þeim og sneru síðar aftur á reiðhjólum til að nálgast bílskúrinn. Þegar þeir opnuðu pakkann náðist hljóðupptaka úr búnaði lögreglu þar sem tveir menn ræddu saman um innihald sendingarinnar og þann búnað sem þar fannst.

Mockevicius neitaði sök og hélt því fram að hann hefði ekki vitað hvað væri í sendingunni. Dómurinn taldi þó sannað að hann hefði fylgst með ferðum pakkans og tekið virkan þátt í framkvæmd brotsins. Þá þótti það einnig þungt vega að hann lagði á flótta þegar lögregla hafði afskipti af honum.

Mennirnir voru jafnframt dæmdir til að greiða verulegan sakarkostnað og málsvarnarlaun verjenda sinna.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Krefst rannsóknar á tengslum Barrons Trump við Tate-bræðurna
Heimur

Krefst rannsóknar á tengslum Barrons Trump við Tate-bræðurna

Donald Trump segist ekki ætla að skipta sér að framsalsmáli bræðranna
Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu
Pólitík

Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu

Þrettán ára drengur ákærður fyrir skotárás í Svíþjóð
Heimur

Þrettán ára drengur ákærður fyrir skotárás í Svíþjóð

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum
Myndir
Fólk

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum

Halla Tómasdóttir í góðum gír á Hömrum
Myndir
Landið

Halla Tómasdóttir í góðum gír á Hömrum

Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio
Pólitík

Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu
Myndband
Heimur

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu

Daði og fjölskylda á ferð um landið
Myndband
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni
Myndir
Innlent

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi
Landið

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi

Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Auðjöfurinn er styrktaraðili sjóðs sem styður ólöglegar landnemabyggðir
Íranska samfélagið skorar á Ísland að fordæma aftökur ungra mótmælenda
Innlent

Íranska samfélagið skorar á Ísland að fordæma aftökur ungra mótmælenda

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni
Myndir
Innlent

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela
Innlent

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands
Innlent

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands

Loka auglýsingu