
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Meðal verkefna voru innbrot, líkamsárás, fíkniefnamál og fjölmörg umferðarlagabrot.
Tilkynnt var um innbrot og þjófnað í íbúðarhúsnæði í miðborg Reykjavíkur. Gerandi er óþekktur og málið er til rannsóknar hjá lögreglu.
Þá var tilkynnt um líkamsárás í miðborginni. Einn maður var handtekinn vegna málsins og vistaður í fangageymslu en annar var fluttur á bráðamóttöku til skoðunar.
Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir vegna hraðaksturs. Í hverfi 105 var ökumaður mældur á 83 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 50 og í Laugardalnum var ökumaður mældur á 91 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 60.
Ökumaður var einnig stöðvaður á 120 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80 í Hafnarfirði. Annar ökumaður var mældur á 113 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80 og var hann jafnframt stöðvaður fyrir að aka gegn rauðu ljósi. Ökumaður í Reykjavík var sömuleiðis stöðvaður fyrir að aka gegn rauðu ljósi.
Nokkur mál komu einnig upp þar sem ökumenn voru grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Tveir þeirra reyndust jafnframt hafa verið sviptir ökuréttindum. Þeir voru látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku.
Loks var maður handtekinn í Árbæ vegna gruns um fíkniefnamisferli. Hann var látinn laus að lokinni skýrslutöku.
