1
Minning

Hallgrímur Jónasson er fallinn frá

2
Fólk

Gamaldags en notalegt hús í Mosfellsbæ til sölu

3
Innlent

Kona Hugleiks Dagssonar var rænd

4
Heimur

Gengu í takt á þjóðhátíðardag Bandaríkjamanna með hvítar grímur

5
Innlent

Fékk vinagreiða hjá almannatengli

6
Menning

„Það er eiginlega fáránlegt hvað þetta var eitthvað næs“

7
Innlent

Eftirlýstur maður handtekinn

8
Innlent

Morðinginn Matthías kominn á Vernd

9
Heimur

Vélmenni missti stjórn á sér í miðri sýningu

10
Innlent

Maður úrskurðaður látinn á Fimmvörðuhálsi

Til baka

Fyrrum þingmaður segir grunnskóla Reykjavíkur þá lélegustu í heiminum

„Allir vita að þessi mál eru í lamasessi“

Laugalækjarskóli – myndin tengist fréttinni ekki beint
Laugalækjarskóli í LaugardalnumMyndin tengist fréttinni ekki beint.

Brynjar Níelsson, fyrrverandi Alþingsmaður og fyrrverandi héraðsdómari, er spenntur fyrir komandi borgarstjórnarkosningum ef marka má nýlega færslu hans á samfélagsmiðlum. Þá segir hann grunnskóla höfuðborgarinnar vera þá dýrustu og lélegustu í heiminum. Brynjar vísar þó ekki í nein gögn máli sínu til stuðnings.

„Af því að ég er Reykvíkingur hef ég áhuga á borgarstjórnarkosningunum í vor. Ef flokkarnir, sem eru í minnihluta núna, ætla að ná árangri í þeim kosningum þurfa þeir að leggja áherslu á málefni sem skipta íbúa borgarinnar máli og eru hluti af lögbundnu hlutverki borgarstjórnar,“ skrifar Brynjar um komandi kosningar. „Þeir sem ætla að gera gagn í borginni geta ekki eytt orkunni í ESB, loftslagsmál, skipuleggja mótmæli til stuðnings Hamas og til að úthúða Ísrael eða fyllast kvíða vegna Trump.“

Brynjar segir að allir viti að þessi mál séu í lamasessi eftir þriggja áratuga samfelldan vinstri meirihluta, hvort sem það er leik- og grunnskóli, skipulagsmál, húsnæðismál, umferðarmál eða fjármál borgarinnar. „Það verður að teljast sérstakt afrek að reka dýrasta grunnskóla í öllum heiminum en jafnframt með slakasta árangurinn. Langvarandi skortur á lóðaframboði hefur að auki kostað alla landsmenn stórfé með aukinni verðbólgu og hærri vöxtum,“ heldur hann áfram.

„Samfylkingin ætlar að bregðast við þessu ófremdarástandi, eftir að hafa stjórnað borginni í allan þennan tíma, með því að búa til nýtt lið í anda Alex Ferguson og fá nýjan stjóra frá Sjálfstæðisflokknum, sem komst nýlega að því að reynslan hafi breytt honum úr hægri manni í krata. Ég veit ekki hvað maðurinn hefur verið að gera eftir að knattspyrnuferlinum lauk en það er óskiljanlegt að reynsla geti sveigt hægri menn til vinstri,“ skrifar þingmaðurinn fyrrverandi.

„Hélt að það gæti bara gerst ef menn fengju vinnu hjá RÚV.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Sex slasaðir eftir að rúta valt í Suðursveit
Landið

Sex slasaðir eftir að rúta valt í Suðursveit

Mugison sló í gegn í Básum
Myndband
Menning

Mugison sló í gegn í Básum

Fundu lík ungs manns í vinsælu síki
Heimur

Fundu lík ungs manns í vinsælu síki

Ljósmyndir af fólki í neyð bannaðar
Heimur

Ljósmyndir af fólki í neyð bannaðar

23 létust í fangelsisóeirðum
Heimur

23 létust í fangelsisóeirðum

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi
Innlent

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi

Morðinginn Matthías kominn á Vernd
Innlent

Morðinginn Matthías kominn á Vernd

Björg strax ósátt við Hildi
Slúður

Björg strax ósátt við Hildi

Upprunaábyrgðir í felum hjá VAXA
Innlent

Upprunaábyrgðir í felum hjá VAXA

Þjófagengi herjar á ferðamenn á Kanarí
Heimur

Þjófagengi herjar á ferðamenn á Kanarí

Sögufrægt hús í hjarta Reykjavíkur til sölu
Myndir
Fólk

Sögufrægt hús í hjarta Reykjavíkur til sölu

„Tálmaði“ lögreglu í Árbænum og hótaði henni
Innlent

„Tálmaði“ lögreglu í Árbænum og hótaði henni

Hallgrímur Jónasson er fallinn frá
Minning

Hallgrímur Jónasson er fallinn frá

Innlent

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi
Innlent

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi

Amen við því
Fékk vinagreiða hjá almannatengli
Innlent

Fékk vinagreiða hjá almannatengli

Morðinginn Matthías kominn á Vernd
Innlent

Morðinginn Matthías kominn á Vernd

Upprunaábyrgðir í felum hjá VAXA
Innlent

Upprunaábyrgðir í felum hjá VAXA

„Tálmaði“ lögreglu í Árbænum og hótaði henni
Innlent

„Tálmaði“ lögreglu í Árbænum og hótaði henni

Kona Hugleiks Dagssonar var rænd
Myndir
Innlent

Kona Hugleiks Dagssonar var rænd

Loka auglýsingu