1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

3
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

4
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

5
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

6
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu

7
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

8
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

9
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

10
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

Til baka

Gunnsteinn Rúnar Gíslason er látinn

Kerti
Mynd: Shutterstock

Gunnsteinn Rúnar Gíslason, sem um áratuga skeið gegndi lykilhlutverki í samfélaginu í Árneshreppi á Ströndum, er látinn, 93 ára að aldri. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi þann 13. apríl síðastliðinn. Mbl.is sagði frá andlátinu.

Gunnsteinn fæddist 4. desember 1932 í Steinstúni í Norðurfirði og var sonur hjónanna Gísla Guðlaugssonar og Gíslínu Vilborgar Valgeirsdóttur. Hann átti þrjá albræður, þá Guðlaug, Ólaf Andrés og Ágúst, auk þess sem Trausti Magnússon og Hilmar Hjartarson ólust upp með honum.

Ungur að árum hóf Gunnsteinn nám, fyrst í Reykjaskóla í Hrútafirði á árunum 1950 til 1952 og síðar í Samvinnuskólanum haustið 1952. Kennarastarf varð hans fyrsta starfsvettvangur, en hann kenndi við Finnbogastaðaskóla í Árneshreppi í fimm ár frá 1955.

Ævistarf hans mótaðist þó einkum af störfum í verslun og sveitarstjórn. Hann var kaupfélagsstjóri Kaupfélags Strandamanna í yfir þrjá áratugi, frá 1960 til 1993, og síðar útibússtjóri Kaupfélags Steingrímsfjarðar í Norðurfirði til ársins 2009.

Gunnsteinn tók sæti í sveitarstjórn Árneshrepps árið 1958 og gegndi embætti oddvita frá 1971. Hann lét af störfum árið 2006 eftir 48 ára samfellt starf í sveitarstjórn. Auk þess sinnti hann ýmsum öðrum störfum í heimabyggð, meðal annars sem hafnarstjóri í Norðurfirði og rekstraraðili gistiheimilisins Bergistanga í aldarfjórðung.

Hann var jafnframt virkur í kirkjustarfi og gegndi formennsku í sóknarnefnd Árnessóknar í áratugi, frá 1986 til 2021. Þá stundaði hann útgerð um langt skeið og gerði út trillur til grásleppu-, skak- og hákarlaveiða allt fram til ársins 2019.

Eiginkona hans var Margrét Jónsdóttir frá Stóru-Ávík, fædd 1939. Þau eignuðust fimm börn: Jón Unnar, Gíslínu Vilborgu, Guðrúnu, Gísla Baldvin og Álfheiði Hildi.

Síðustu ár ævinnar bjuggu Gunnsteinn og Margrét á Akranesi. Minningarathöfn verður haldin í Akraneskirkju næstkomandi mánudag klukkan 13 og útför fer fram í Árneskirkju á Ströndum 23. apríl, á sumardaginn fyrsta, klukkan 14.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Rússar sprengdu tvo strætisvagna fulla af fólki
Heimur

Rússar sprengdu tvo strætisvagna fulla af fólki

Lík lágu á víð og dreif um götuna eftir árásina
Úrelt orðalag lifir góðu lífi í reglugerð frá 1999
Innlent

Úrelt orðalag lifir góðu lífi í reglugerð frá 1999

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum
Innlent

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum

Ferjusamgöngur til Eyja fá ekki sömu stöðu og þjóðvegir
Innlent

Ferjusamgöngur til Eyja fá ekki sömu stöðu og þjóðvegir

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings
Innlent

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag
Pólitík

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars
Innlent

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði
Heimur

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife
Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum
Innlent

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi
Minning

Tveir látnir eftir árekstur á Austur­landi

Dagný Ósk Vestmann er látin
Minning

Dagný Ósk Vestmann er látin

Flosi Kristinsson er fallinn frá
Minning

Flosi Kristinsson er fallinn frá

Sigurður Hafstein er fallinn frá
Minning

Sigurður Hafstein er fallinn frá

Árni Þór Grétarsson er fallinn frá
Minning

Árni Þór Grétarsson er fallinn frá

Loka auglýsingu