Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Hæðst að frétt Morgunblaðsins

„Hafa blaðamenn ekkert hugarflug lengur?“

Morgunblaðið
Morg­un­blaðið Athuga­semd­ar­kerfi frétta loga oft af ýmsum ástæðum. Mynd: Víkingur

Jón Viðar Jónsson, leikhús- og samfélags­rýnir fer fremstur í flokki fólks sem nú hæðist að frétt Morgun­blaðsins frá í morgun en þar er sagt frá „dulurfullum ljós­bletti“ sem náðist á ljósmynd í Barkárdal.

Fjölmargir skrifuðu athugasemd við frétt mbl.is af því sem lýst er sem „dular­fullum ljós­bletti“ sem náðist í Barkárdal en flestum þykir nokkuð augljóst að um sé að ræða endur­speglun á linsu. Í fréttinni er reyndar rætt við Pál Stef­ánsson ljós­myndara sem telur einmitt að um slíkt sé að ræða. Það kemur þó ekki í veg fyrir hæðnislegar athuga­semdir við fréttina.

Árni Tryggvarson skrifar til að mynda: „Með ólíkindum að ljós­myndarar á Morgun­blaðinu (kannski er líka búið að reka þá alla) hafi ekki verið spurðir álits áður en þetta grín var sett á miðilinn. Hver einasti maður með vott af þekkingu á ljós­myndum veit að þetta er sk. „flare“ eða ljósbrot í linsunni.“

Stefán H. Kristinsson tjáir sig líka: „Er engin eftir á mogganum sem hefur eitthvað smá vit á ljós­myndun?“

Þá spyr Sigurþór Hjörleifsson: „Kallast þetta ekki bara sól?“

Jón Viðar Jónsson, leikhús­gagnrýnandi gekk þó skrefinu lengra en aðrir og skrifaði heila Facebook-færslu um fréttina. Þar fullyrðir hann að það sé svokölluð gúrkutíð hjá Morgun­blaðinu. Spyr hann einnig hvort blaðamenn hafi ekkert ímyndunarafl lengur.

„Ansi mikil gúrkutíð á Mogganum! En auðvitað er mun líklegra að þetta sé FFH (UFO) eða eitthvað þess háttar en eitthvað svo óskáldlegt og prósaískt eins og þeir halda: endur­speglun á linsu. Aldrei má neitt vera dular­fullt og yfir­náttúrulegt í friði. Svo dettur þeim auðv ekki í hug að þetta gætu verið linsuljós frá huldu­fólkinu sem dalurinn er ugglaus fullur af. Hafa blaðamenn ekkert hugarflug lengur?“

Til gamans má geta að téð frétt er þegar þetta er skrifað níunda mest lesna fréttin á mbl.is í dag, þannig að einhverjir hafa þó áhuga á henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum