1
Fólk

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu

2
Innlent

Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi

3
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

4
Fólk

Fimmtán ára stóð Andrea í hárinu á glæpamönnum og gafst ekki upp

5
Heimur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig

6
Fólk

Fimm fatamistök sem geta gert flugferðina verri

7
Heimur

Sjötíu og sjö prósent líkur á eldgosi á Kanaríeyjum

8
Fólk

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið

9
Fólk

Landsliðsmaður Íslands á von á barni

10
Fólk

Gróinn sælureitur í Vaðlaheiði með eigin skógi til sölu

Til baka

Hafnaði viðreynslu og var myrt af „pirruðum“ manni

Iðrunin kom síðar.

Nikki Loffredo myrt
Hafnaði viðreynsluNikki Loffredo var 42 ára þegar hún lést eftir að hafa sagt manni að hypja sig.
Mynd: Lögreglan í Des Moines

Nikki Loffredo, 42 ára, lést eftir að hafa verið skotin ítrekað að morgni 29. júlí 2024, á gangstétt í íbúðahverfi í Des Moines í Iowa í Bandaríkjunum. Hún var á leið heim eftir að hafa keypt sér snarl þegar skotárásin átti sér stað. Árásarmaðurinn, James Johnson, 43 ára, hafði aldrei hitt Loffredo áður. Hann hefur nú verið dæmdur.

Vitni og upptökur frá eftirlitsmyndavélum sýndu gullitaðan sportjeppa hringsóla um svæðið áður en hann nálgaðist Loffredo, stöðvaði í örfáar sekúndur og ók svo í burtu á miklum hraða. Loffredo hné þá til jarðar, með skotsár á báðum lærum. Eitt skotið fór í gegnum lærleggsslagæð hennar og olli miklum blóðmissi. Hún lést nokkrum dögum síðar á sjúkrahúsi.

Loffredo náði að lýsa árásarmanninum og bíl hans fyrir fyrstu lögreglumönnum sem komu á vettvang. Lögregla hafði innan klukkustundar fundið út hver skotmaðurinn var. Rannsóknin leiddi í ljós að vinur Johnsons hafði útvegað honum skotvopn, og DNA hans fannst á byssunni. Einnig stemmdi kúluhylki á vettvangi við byssuna samkvæmt skotfærarannsóknum.

Að sögn saksóknarans, Levi Grove, „var Johnson að leita að tilefni til að nota byssuna.“ Ákæruvaldið hélt því fram að Johnson hefði skotið af ásetningi til að drepa, og tókst að sannfæra kviðdóm um að um morð af ásetningi væri að ræða. Johnson var sakfelldur 9. apríl 2025 fyrir morð af yfirlögðu ráði.

Johnson viðurkenndi sjálfur að hafa verið maðurinn sem skaut, en hélt því fram að hann hefði aðeins ætlað að hræða hana, ekki meiða. Hann lýsti því fyrir dómi að hann hefði verið undir áhrifum maríjúana og kókaíns og verið reiður eftir rifrildi við kærustu sína. Hann sagðist hafa ekið um hverfið án tilgangs og séð Loffredo nokkrum sinnum. Þegar hann reyndi að daðra við hana út um bílgluggann, svaraði hún með blótsyrðum.

„Það pirraði mig,“ sagði Johnson fyrir dómi. „Mér fannst ég vera vanvirtur.“

Hann sagðist þá hafa dregið upp byssu sem hann mátti ekki hafa í fórum sínum, og skotið fjórum skotum í átt að gangstéttinni til að hræða hana. Hann sagðist ekki hafa áttað sig á því að hún hefði orðið fyrir skoti, fyrr en síðar.

Þrátt fyrir ítrekuð ósannindi í yfirheyrslum í upphafi játaði Johnson síðar ábyrgð sína. Í skilaboðum sem hann sendi kærustu sinni úr fangelsi í mars lýsti hann mikilli iðrun.

„Ég vildi aldrei bera ábyrgð á einhverju svona,“ sagði Johnson í réttarhöldunum, með tárin í augunum. „Mér líður illa, mér líður hræðilega. Ég ætlaði ekki að meiða hana – og ég ætlaði alls ekki að drepa hana.“

Johnson á yfir höfði sér lífstíðardóm og verður refsing ákvörðuð 20. júní næstkomandi.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Yfirmaður bresku leyniþjónustunnar varar við nýrri öld ógnar
Heimur

Yfirmaður bresku leyniþjónustunnar varar við nýrri öld ógnar

McCallum segir Rússland vera helstu ógnina við öryggi Bretlands, en Íran væri skammt undan.
Sjúklingi ekið 180 kílómetra í ranga átt frá heimili sínu
Heimur

Sjúklingi ekið 180 kílómetra í ranga átt frá heimili sínu

Karen segir innflytjendur gerða að blórabögglum í Frakklandi
Innlent

Karen segir innflytjendur gerða að blórabögglum í Frakklandi

Salmonella greindist í innfluttu kryddi
Innlent

Salmonella greindist í innfluttu kryddi

„Menn gera það ekki í fjandskap við stjórnvöld“
Pólitík

„Menn gera það ekki í fjandskap við stjórnvöld“

Hlutverkabreytingar innan Viðreisnar
Pólitík

Hlutverkabreytingar innan Viðreisnar

Heimsþekktir kizomba-dansarar kenna á Íslandi í október
Myndband
Menning

Heimsþekktir kizomba-dansarar kenna á Íslandi í október

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið
Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið

Lögregla leitar konu sem ók á barn og flúði vettvang
Innlent

Lögregla leitar konu sem ók á barn og flúði vettvang

Breskum verðlaunablaðamanni meinaður aðgangur að Ísrael
Heimur

Breskum verðlaunablaðamanni meinaður aðgangur að Ísrael

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið
Heimur

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið

Ragnheiður, Guðmundur og Leifur dusta rykið af perlunum
Menning

Ragnheiður, Guðmundur og Leifur dusta rykið af perlunum

Heimur

Yfirmaður bresku leyniþjónustunnar varar við nýrri öld ógnar
Heimur

Yfirmaður bresku leyniþjónustunnar varar við nýrri öld ógnar

McCallum segir Rússland vera helstu ógnina við öryggi Bretlands, en Íran væri skammt undan.
Grunur um skipulagt ofbeldi gegn yngri nemendum í sænskum skóla
Heimur

Grunur um skipulagt ofbeldi gegn yngri nemendum í sænskum skóla

Sjúklingi ekið 180 kílómetra í ranga átt frá heimili sínu
Heimur

Sjúklingi ekið 180 kílómetra í ranga átt frá heimili sínu

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið
Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið

Breskum verðlaunablaðamanni meinaður aðgangur að Ísrael
Heimur

Breskum verðlaunablaðamanni meinaður aðgangur að Ísrael

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið
Heimur

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið

Loka auglýsingu