
Mynd: Shutterstock
Hafsteinn Guðmundsson, bóndi í Flatey og fyrrverandi oddviti Flateyjarhrepps, er látinn 91 árs að aldri. Hann fæddist á Höllustöðum í Reykhólahreppi 4. janúar 1935 og lést á Landspítalanum 26. ágúst síðastliðinn.
Morgunblaðið greinir frá andláti hans.
Hafsteinn ólst upp hjá foreldrum sínum á Höllustöðum og síðar í Skáleyjum á Breiðafirði. Hann tók þátt í að afla heimilinu tekna frá unga aldri og stundaði meðal annars selveiðar, dúntekju og hefðbundin bústörf. Hann stundaði nám við farskólann sem fór á milli eyjanna eins og þá var í boði og nam síðar við Stýrimannaskólann í Reykjavík.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment
Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…