1
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

2
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

3
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

4
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

5
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

6
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan rafbíl vegna slysahættu

7
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

8
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

9
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

10
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

Til baka

Hanna var mögulega handtekin daginn áður en hún hvarf

Gallabuxur hennar fundust fyrir tilviljun

Hanna
Mynd: Lögreglan í Uddevalla

Sama dag og hin 18 ára Hanna týndist í Uddevalle í Svíþjóð, var ringluð ung kona handtekin í klukkutíma akstursfjarlægð frá Uddevalle, grunuð um tilraun til innbrots í einbýlishús. Henni var síðan sleppt síðdegis sama dag í Uddevalle.

Samkvæmt hverfisgrúppu Norra Grundsund-svæðisins, þar sem hin unga kona var handtekin, var um að ræða Hönnu, sem síðdegis 6. janúar, var lýst eftir en hún sást síðast við lestarstöðina í Uddevalle. Færslunni í hverfisgrúppunni hefur nú verið eytt.

Innbrot daginn áður

Í grein í hverfisblaðinu Bohusläningen.se kemur fram að þegar eigendur einbýlishúss í Lyse, sem er á Norra Grundsund-svæðinu, þar sem Hanna á ættingja, komu heim síðdegis mánudaginn 5. janúar, hafi kjallaradyrnar staðið opnar og rúða í útihurð verið brotin. Í símtali til lögreglunnar klukkan 16:54 þann 5. janúar, sögðust íbúar hafa komið heim eftir að hafa skroppið frá í stutta stund og fundið glerbrot frá lítilli rúðu í útihurðinni, sem hafði verið brotin. Þar hafi hamar einnig legið rétt við dyrnar. Þá kom einnig í ljós að kjallaradyrnar voru opnar. Sögðust þau einnig hafa séð konu sem hagaði sér undarlega og að þau hefðu fengið slæma tilfinningu gagnvart henni og grunað hún gæti tengst málinu.

„Við fórum á vettvang og í nærliggjandi svæði gátum við fundið konu sem samsvaraði þeirri lýsingu sem við höfðum fengið. Konan er á efri unglingsárum og er nú grunuð um tilraun til innbrots,“ sagði Adam Isaksson Samara, upplýsingafulltrúi lögreglunnar. Aðspurður hvort einhverju hafi verið stolið úr húsinu, sagði Adam að það væri eitthvað sem væri verið að rannsaka.

Á þriðjudagsmorgun greindi lögreglan frá því að unga konan hefði verið handtekin, grunuð um tilraun til innbrots.

„Hún hefur verið handtekin að beiðni saksóknara og verður yfirheyrð í viðurvist verjanda síns,“ sagði Sanna Leissner, rannsóknarstjóri á vakt hjá lögreglunni í vesturhluta Fyrbodal.

Síðdegis á þriðjudag ákvað saksóknari hins vegar að láta konuna lausa.

„En hún er áfram grunuð,“ sagði Jonni Andersson, rannsóknarstjóri á vakt.

Eins og áður segir var því haldið fram í hverfisgrúppu á svæðinu að unga konan sem handtekin var og síðan sleppt daginn eftir, væri stúlkan sem nú er leitað að í Uddevalle. Lögreglan hefur ekki staðfest að um sömu stúlku sé að ræða en á sænsku spjallsíðunni flashback.org hefur skapast gríðarmikil umræða um málið. Þar kemur meðal annars fram að líkurnar á að tvær ungar stúlkur á svo strjábýlu svæði kæmust í fréttirnar fyrir vandræði á sama tíma, séu afar litlar. Það er þó auðvitað ekki ómögulegt.

Gallabuxur fundust fyrir tilviljun

Mannlíf hefur fjallað um málið en það þykir hið dularfyllsta. Nokkru eftir að lýst var eftir Hönnu, fundust föt í eigu hennar en ljósmynd af gallabuxum sem hengu á tré var birt í hverfisgrúppu og spurði sá sem tók myndina hvort einhver hefði týnt gallabuxum. Það kom svo síðar í ljós að um væri að ræða gallabuxur Hönnu en fleiri klæði fundust á svæðinu, en ekki hefur verið gefið upp hvaða föt það eru.

Gallabuxurnar
Mynd: Facebook

Gríðarleg leit hefur staðið yfir af Hönnu en nýlega hætti hópur sjálfboðaliða að leita þar sem ekki væri taldar miklar líkur á að hún fyndist á lífi og því væri um lögreglumál að ræða. Við leitina hafa verið notaðar gröfur og drónar, auk lögreglumanna og hunda.

Hér fyrir neðan má sjá myndskeið frá leitinni að Hönnu, tekin á dróna.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Rússar sprengdu tvo strætisvagna fulla af fólki
Heimur

Rússar sprengdu tvo strætisvagna fulla af fólki

Lík lágu á víð og dreif um götuna eftir árásina
Úrelt orðalag lifir góðu lífi í reglugerð frá 1999
Innlent

Úrelt orðalag lifir góðu lífi í reglugerð frá 1999

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum
Innlent

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum

Ferjusamgöngur til Eyja fá ekki sömu stöðu og þjóðvegir
Innlent

Ferjusamgöngur til Eyja fá ekki sömu stöðu og þjóðvegir

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings
Innlent

Kylfa, ketamín og kannabis fundust í bíl Breiðhyltings

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag
Pólitík

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars
Innlent

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði
Heimur

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife
Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum
Innlent

Lögreglan leitar vitna eftir skemmdarverk á þremur bílum

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

Heimur

Rússar sprengdu tvo strætisvagna fulla af fólki
Heimur

Rússar sprengdu tvo strætisvagna fulla af fólki

Lík lágu á víð og dreif um götuna eftir árásina
Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði
Heimur

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife
Heimur

Uppþornað og vel varðveitt lík fannst á Tenerife

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“
Heimur

Þóttist vera afleysingakennari því henni „leiddist“

Loka auglýsingu