Gjá er á milli Viðreisnar og Miðflokksins. Þar skilur mest á milli útlendingaótti og afstaðan til Evrópusambandsins. Einnig andar köldu milli Samfylkingar og Miðflokksins. Þegar oddvitinn Ari Edwald bauð sig fram í Reykjavík rifjaðist upp hvernig hann stóð að brottrekstri Sigmundar Ernis Rúnarssonar, nú þingmanns Samfylkingarinnar, og Elínar Sveinsdóttur frá Stöð 2 árið 2009.
Ari var forstjóri 365, Sigmundur Ernir fréttastjóri og Elín var útsendingarstjóri þegar þau voru bæði rekin. Á sama tíma höfðu hjónin fengið þær fréttir að dóttir þeirra væri dauðvona. Málið þótti lýsa miskunnarleysi. Víst er að honum verður seint fyrirgefið í þeim ranni.
Reynsla Ara af rekstraraðhaldi gæti þó nýst honum ef hann ratar í meirihlutasamstarf með Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, sem hefur lofað að fækka millistjórnendum hjá Reykjavíkurborg ...
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir