
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) varar foreldra og forráðamenn við barnaleikfanginu Baby Shake Rattle Toy frá framleiðandanum ABirdon, þar sem það getur valdið köfnunarhættu.
Um er að ræða nagleikfang með innbyggðri hringlu fyrir ung börn. Leikfangið er til í mismunandi litum og ber vörunúmerið YJ25030212.
Samkvæmt HMS er handfang leikfangsins of langt og getur farið of langt inn í munn barns. Af þeim sökum uppfyllir varan ekki gildandi öryggiskröfur sem gerðar eru til leikfanga.
Leikfangið var meðal annars selt í gegnum netverslunina Amazon og mögulega einnig hjá öðrum söluaðilum. HMS telur að varan kunni að vera í umferð á Íslandi.
Stofnunin hvetur eigendur leikfangsins til að hætta notkun þess tafarlaust, taka það úr umferð og farga því á öruggan hátt.
