1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

4
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

5
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

6
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

7
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

8
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

9
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

10
Innlent

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu

Til baka

Inga búin að skrifa undir símabannið

„Börnin okkar eiga rétt á því að skólinn sé staður þar sem þau geta einbeitt sér“

Alþingi 71. grein
Inga SælandEr mennta- og barnamálaráðherra.
Mynd: Víkingur

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskólum og á frístundaheimilum. Með reglugerðinni eru í fyrsta sinn settar samræmdar reglur um símabann í grunnskólum landsins.

Markmið reglugerðarinnar er að auka námsfrið, efla vellíðan og félagsleg tengsl barna og stuðla að jákvæðum skólabrag. Reglugerðin kemur í kjölfar lagabreytingar sem Alþingi samþykkti fyrr á árinu.

„Börnin okkar eiga rétt á því að skólinn sé staður þar sem þau geta einbeitt sér, talað saman, leikið sér og notið samveru án stöðugs áreitis frá símanum,“ segir Inga. Hún segir símabann ekki snúast um að snúa baki við tækninni heldur að setja velferð barna í fyrsta sæti.

Samkvæmt reglugerðinni verður notkun síma og snjalltækja, sem ekki eru í eigu eða umsjá skóla eða frístundaheimilis, óheimil á skólatíma. Tækin skulu ekki vera aðgengileg nemendum og verða geymd samkvæmt fyrirkomulagi sem hver skóli eða frístundaheimili ákveður.

Reglurnar taka til alls skólatímans, þar á meðal frímínútna, matarhléa, vettvangsferða og annarra ferða á vegum skólans. Þær ná einnig til frístundaheimila og tómstunda- og félagsstarfs sem telst hluti af daglegu skólastarfi.

Undanþágur verða þó heimilar þegar notkun tækis er nauðsynleg vegna heilsufars, fötlunar, sérþarfa eða námsþarfa nemenda. Þá verður áfram heimilt að nota síma og snjalltæki í eigu eða umsjá skóla þegar það þjónar kennslufræðilegum tilgangi.

Skólastjórar bera ábyrgð á innleiðingu reglnanna í grunnskólum og forstöðumenn frístundaheimila á sínum vettvangi. Nemendur skulu fá tækifæri til að taka þátt í innleiðingunni og taka skal tillit til sjónarmiða þeirra eftir aldri og þroska.

Reglugerðin verður birt í Stjórnartíðindum á næstu dögum og öðlast þá gildi. Mennta- og barnamálaráðuneytið hyggst jafnframt gefa út leiðbeiningar um framkvæmdina í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga og skólasamfélagið.

Ráðuneytið mun fylgja framkvæmd reglugerðarinnar sérstaklega eftir frá 1. janúar 2027 og verður hún síðar endurskoðuð með hliðsjón af reynslu skólanna og þróun rannsókna á þessu sviði.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu
Heimur

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á
Heimur

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds
Heimur

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun

Gunnlaugur Stefánsson

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

„Það sendir vonarglætu í heim þar sem mennskan er á undanhaldi“
Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina
Pólitík

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

Loka auglýsingu