1
Fólk

Björk komin með kærustu

2
Heimur

Getur misst af tveimur milljörðum eftir mistök í verslun

3
Heimur

Kona og karl drukknuðu á Kanarí

4
Fólk

Aukin sálarró á miðjum aldri: 8 atriði sem hjálpa

5
Heimur

Hermannaveiki herjar á New York-búa

6
Pólitík

„Nú verður að stöðva vitleysuna“

7
Heimur

Rutte krafinn svara eftir þögn við hlið Trump

8
Heimur

Maður sem sýndi HM-leiki á Gaza drepinn af Ísraelum

9
Innlent

Straumhvörf í endómetríósugreiningu

10
Pólitík

„Er „Áfram Ísland!“ í raun og veru „Stopp nú, Ísland!“ hreyfingin?“

Til baka

Íslenski hesturinn fær stærri sess

„Íslenski hesturinn er hluti af sjálfsmynd þjóðarinnar“

Rannsóknarsetrið á Hólum
Hestastudd þjónusta og lýðheilsa„Það er vel við hæfi að Háskóli Íslands stofni rannsóknarsetur íslenska hestsins á Hólum í Hjaltadal í góðu samstarfi við ríki og sveitarfélag“
Mynd: Stjórnarráðið/Jón Örn Guðbjartsson

Viljayfirlýsing um stofnun nýs rannsóknaseturs um íslenska hestinn var undirrituð í gærkvöldi við setningu Landsmóts hestamanna á Hólum í Hjaltadal. Nýja rannsóknasetrið verður staðsett við Háskóla Íslands á Hólum og verður það fjórtánda setrið innan Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands.

„Íslenski hesturinn er hluti af sjálfsmynd þjóðarinnar, atvinnulífi, ferðaþjónustu, íþróttum, sögu og menningu. Hann er líka viðfangsefni sem kallar á vandaðar rannsóknir, þverfaglega nálgun og öfluga miðlun þekkingar,” sagði Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við undirritunina. „Það er vel við hæfi að Háskóli Íslands stofni rannsóknarsetur íslenska hestsins á Hólum í Hjaltadal í góðu samstarfi við ríki og sveitarfélag. Þannig verður sérstaða svæðisins að uppsprettu nýrrar þekkingar fyrir samfélagið allt og út í heim.“

Rannsóknarsetrin öflug uppspretta nýrrar þekkingar

Breytingin tengist nýrri háskólasamstæðu Háskóla Íslands og Háskóla Íslands á Hólum, sem tók gildi samkvæmt nýjum lögum þann 1. júlí síðastliðinn. Sveitarfélagið Skagafjörður styður verkefnið með 7,5 milljóna króna framlagi á næstu þremur árum og stefnt er að því að tveir fastir starfsmenn starfi við setrið innan fárra ára.

Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, fagnaði þessum áfanga og benti á mikilvægi setursins fyrir vísindasamfélagið. „Rannsóknasetrin okkar eru öflug uppspretta nýrrar þekkingar. Þau tengja saman fræðafólk, atvinnulíf og samfélag, skapa tækifæri til alþjóðlegs samstarfs og gera vísindafólki okkar kleift að hafa áhrif langt út fyrir landsteinana. Um leið felst í þessari viljayfirlýsingu sem nú var undirrituð mikilvæg skuldbinding um að styrkja Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands til framtíðar.“

Áhersla á heilbrigðisvísindi og hestastudda þjónustu

Rannsóknasetrið verður það fyrsta sinnar tegundar sem tengist íslenska hestinum og jafnframt það fyrsta sem mun hafa bein tengsl við Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands.

Hólmfríður Sveinsdóttir, forseti HÍ á Hólum, greindi frá því að fyrst um sinn verði rannsóknaráherslur setursins eftirfarandi:

  • Hestastudd þjónusta og lýðheilsa
  • Reiðkennslufræði
  • Hestaferðaþjónusta
  • Ganghestajárningar og kynbótafræði
  • Saga og miðlun í samstarfi við Sögusetur íslenska hestsins

„Það er afar mikilvægt að við Íslendingar höldum áfram að sinna því forystuhlutverki sem við höfum haft í rannsóknum og menntun um íslenska hestinn og byggjum undir þessa starfsemi með rannsóknum og öflugu fólki, íslenska hestinum til heilla,“ sagði Hólmfríður.

Framtíðaruppbygging og fagleg markmið rannsóknasetursins verða áfram mótuð í nánu samstarfi við Hestafræðideild skólans ásamt helstu hagaðilum greinarinnar, þar á meðal Landssambandi hestamannafélaga, Félagi hrossabænda, Félagi tamningamanna og Bændasamtökum Íslands.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Lífshakkarinn“ Bryan Johnson með ólæknandi sjálfsofnæmissjúkdóm
Heimur

„Lífshakkarinn“ Bryan Johnson með ólæknandi sjálfsofnæmissjúkdóm

„Þetta er dásamlegt“
Reynslusaga móður sem leitaði út fyrir landsteinana eftir hjálp fyrir son sinn
Innlent

Reynslusaga móður sem leitaði út fyrir landsteinana eftir hjálp fyrir son sinn

Sonur Netanyahu breytir um nafn
Heimur

Sonur Netanyahu breytir um nafn

Bragi Hannesson er fallinn frá
Minning

Bragi Hannesson er fallinn frá

„Nú verður að stöðva vitleysuna“
Pólitík

„Nú verður að stöðva vitleysuna“

Hermannaveiki herjar á New York-búa
Heimur

Hermannaveiki herjar á New York-búa

Íran sakar Bandaríkin um árás á virkt kjarnorkuver
Heimur

Íran sakar Bandaríkin um árás á virkt kjarnorkuver

„Er „Áfram Ísland!“ í raun og veru „Stopp nú, Ísland!“ hreyfingin?“
Pólitík

„Er „Áfram Ísland!“ í raun og veru „Stopp nú, Ísland!“ hreyfingin?“

Netglæpum fjölgar á Íslandi
Innlent

Netglæpum fjölgar á Íslandi

Maður skar af sér liminn og bar eld að
Heimur

Maður skar af sér liminn og bar eld að

Enginn hefur hlaupið hraðar yfir Ísland
Innlent

Enginn hefur hlaupið hraðar yfir Ísland

Getur misst af tveimur milljörðum eftir mistök í verslun
Heimur

Getur misst af tveimur milljörðum eftir mistök í verslun

Innlent

Reynslusaga móður sem leitaði út fyrir landsteinana eftir hjálp fyrir son sinn
Innlent

Reynslusaga móður sem leitaði út fyrir landsteinana eftir hjálp fyrir son sinn

Í þættinum er fjallað um alvarlegar ásakanir um börn í vanda
Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Íslenski hesturinn fær stærri sess
Innlent

Íslenski hesturinn fær stærri sess

Netglæpum fjölgar á Íslandi
Innlent

Netglæpum fjölgar á Íslandi

Enginn hefur hlaupið hraðar yfir Ísland
Innlent

Enginn hefur hlaupið hraðar yfir Ísland

Straumhvörf í endómetríósugreiningu
Innlent

Straumhvörf í endómetríósugreiningu

Loka auglýsingu