
Snörp jarðskjálftahrina hófst um 60 kílómetrum suðvestur af Eldey upp úr klukkan fimm í morgun. Samkvæmt mælingum Veðurstofu Íslands hafa nokkrir skjálftar í hrinunni náð eða farið yfir stærðina 3,0.
Stærsti skjálfti hrinunnar til þessa mældist 3,4 að stærð laust fyrir klukkan hálf sex í morgun. Nokkrir aðrir skjálftar af svipaðri stærðargráðu hafa fylgt í kjölfarið á þessum slóðum.
Í athugasemd jarðvísindamanns á vef Veðurstofunnar kemur fram að atburðarás sem þessi sé dæmigerð fyrir svæðið. Jarðskjálftahrinur og einstakir skjálftar af þessari stærðargráðu teljast algengir á þessum hluta Reykjaneshryggjarins og gefa ekki tilefni til óvenjulegra ráðstafana að svo stöddu. Vísindamenn fylgjast náið með þróun mála.
