1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

6
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

7
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

8
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

9
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

10
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

Til baka

Jim Ratcliff flaug þyrlu á rjúpnaskotsvæði sitt í stað þess að keyra

„Þeir ríkustu komast upp með allt saman en það er alþýðan sem þarf að borga brúsann.“

Jim Ratcliffe
Jim RatcliffeRatcliffe á bæði 1,4% af Íslandi og hlut í Man. Utd.
Mynd: VALERY HACHE / VARIOUS SOURCES / AFP

Breski auðjöfurinn Jim Ratcliffe notaði einkaþyrlu sína til að komast örstuttan spöl á skotsvæði sitt á Vopnafirði. Þetta kemur fram í útvarpsþættinum Þetta helst á RÚV í dag.

Ratcliff hefur sett mark sitt á Vopnafjörð og sveitina í kring frá því að hann hóf að stunda fjárfestingar á svæðinu en fyrirtæki hans, Six Rivers er meðal annars leigutaki laxveiðiánna Selár og Hofsár í Vopnafirði, auk annarra laxveiðiáa á norðausturhorninu. Þá er hann einnig stór landeigandi á svæðinu en hann á um 1,4 prósent af flatarmáli Íslands.

Undanfarin ár hafa staðið yfir miklar framkvæmdir við einkahús Ratcliffs í Ytri-Hlíð í Vesturárdal og við nýtt veiðihús við Hofsá.

Bjartur Aðalbjörnsson sveitarstjórnarmaður á Vopnafirði sagði frá áhugaverðu atviki í viðtali í þættinum, þar sem hann lýsir því þegar fjölskylda hans var í fjallgöngu upp á hina svokölluðu Sjónvarpshæð við kaupstaðinn í Vopnafirði þegar Ratcliffe flaug nokkurra kílómetra leið frá húsinu sínu og á einkaskotsvæði sitt sem er þar nokkru utar í firðinum.

„Það lýsir svo vel held ég þessari dýnamík á milli Ratcliffs og vopnfirskrar alþýðu, sagan af því þegar einn góður drengur var í sunnudagsfjallgöngu með fjölskyldunni og þau stoppuðu og fengu sér nesti. Dóttir hans var að berjast við að troða papparörina ofan í kókómjólkurfernuna á meðan að þau horfðu á Ratcliffe taka af stað á þyrlunni sinni í Ytri-Hlíð og fljúga nokkra kílómetra á skotsvæði sitt. Og ég held að þetta segi kannski alla söguna um það hvernig þetta er í heiminum, þeir ríkustu komast upp með allt saman en það er alþýðan sem þarf að borga brúsann.“

Bjartur útskýrir málið betur:

„Hann flaug frá Ytri-Hlíð og út eftir við Skógarlón svokallað en þar er jörð sem hann á þar sem hann er með skotsvæði. Það er nú eitt, þarna gátu nú Vopnfirðingar farið og æft sig að skjóta en eftir að hann keypti jörðina breytti hann því einkasvæði fyrir sig,“ segir Bjartur en aðspurður hvað auðjöfurinn skjóti á svæðinu svarar Bjartur:

„Hann er bara að æfa sig. Hann fer þangað og æfir sig áður en hann fer á rjúpnaveiðar. Og það er þannig að þegar hann fer á rjúpnaveiðar, þá er passað upp á að auglýsa það að fólk sé ekki velkomið á jarðirnar hans á rjúpnaveiðar.“ Áður fyrr tíðkaðist það að veiðimenn á Vopnafirði fengu leyfi til að veiða rjúpur á því landi sem nú er undir eign Ratcliffs en nú er öldin önnur.

Bjartur heldur áfram með söguna af þyrluflugi Ratcliffs.

„Grenadier-jeppinn hans hefur ekki verið nógu góður fyrir þessa nokkra kílómetra, það er betra að fara á þyrlunni,“ og á þá við jeppa sem fyrirtæki Ratcliffs, Ineos framleiðir. Bætir hann við að lokum að Vopnfirðingar taki lítið eftir sjálfur Ratcliffe en heyri oft í þyrlu hans.

„Það er nú þannig, satt best að segja, að við vitum lítið af sjálfum Jim Ratcliffe, hann einhvern veginn svífur bara skýjum ofar hérna. Það er helst að maður heyri í þyrlunni þegar hún er að fara yfir þorpið. En fyrir alþýðu Vopnafjarðar þá hefur hann rosalega lítil áhrif á þeirra daglega líf.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði
Innlent

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði

„Sú ákvörðun er hjá framkvæmdastjórn ESB sem hefur ekki beitt þeirri heimild gegn Ísrael“
Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön
Fólk

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön

Nú er komið að þér, Krist­rún!
Skoðun

Svanur Már Snorrason

Nú er komið að þér, Krist­rún!

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah
Heimur

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið
Innlent

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings
Myndband
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“
Innlent

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku
Myndband
Heimur

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga
Innlent

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga

Vopnað lögreglulið kallað út vegna hótana í Bærum
Heimur

Vopnað lögreglulið kallað út vegna hótana í Bærum

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu
Landið

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“
Innlent

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“

Landið

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu
Landið

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Vilja vernda náttúruperlu í Skriðdal
Landið

Vilja vernda náttúruperlu í Skriðdal

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA
Landið

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Loka auglýsingu