1
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

2
Heimur

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára

3
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

4
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

5
Heimur

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar

6
Heimur

Klámstjarnan Bonnie Blue stöðvuð af lögreglu

7
Heimur

Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga

8
Heimur

Höfundur South Park nafngreinir hópnauðgara við Cornell-háskóla

9
Fólk

Halla og Skjöldur setja á markað íslenska förðunarmerkið Just Makeup

10
Innlent

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi

Til baka

Kærleiksherferð kennd við Bryndísi Klöru

„Við þurfum aukna samkennd“

Bryndís Klara
Kærleiksherferðin sett á laggirnarÍ minningu Bryndísar Klöru
Mynd: Aðsend

Svokallaðri kærleiksherferð verður hrint af stað síðdegis og er markmiðið að safna fyrir Bryndísarhlíð, sem er nýtt geðheilbrigðisúrræði fyrir börn sem eru þolendur ofbeldis.

Kærleiksherferðin er kennd við Bryndísi Klöru Birgisdóttur, sem lést eftir hnífaárás á Menningarnótt á síðasta ári.

Kærleiksherferðin miðast að söfnun fyrir húsnæði fyrir Bryndísarhlíð, en það mun hýsa geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn sem eru þolendur ofbeldis.

Fyrirhugað er að þjónusta Bryndísarhlíðar verði þverfagleg og verði sinnt af heilbrigðisstarfsfólki er hefur sérfræðiþekkingu hvað varðar málefni barna.

Átak þetta verður sett á laggirnar í Iðnó í kvöld klukkan 17:30, en þar mun Halla Tómasdóttir forseti Íslands ávarpa gesti og Alma Möller heilbrigðisráðherra mun kynna áform ráðuneytisins um stuðning við Bryndísarhlíð.

Sviðsstjóri lýðheilsusviðs hjá embætti landlæknis, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, situr í stjórn Minningarsjóðs Bryndísar Klöru.

Hún segir Bryndísarhlíð eiga að vera lágþröskuldaúrræði fyrir börn, sambærilegt og Bjarkarhlíð er fyrir fullorðna.

„Það er mikilvægt að þetta úrræði sé viðbót. Það komi ekki í staðinn fyrir eitthvað annað heldur nái til fleiri barna. Þannig að við grípum öll börn sem þurfa á aðstoð að halda, sem búa við ofbeldi, þannig að við komumst upp úr því en festumst ekki í einhverjum vítahring.“

Verkefnið er í þróun í samstarfi við stjórnvöld. Leitað verður leiða til að vinna betur að forvörnum gegn ofbeldi.

Stefan er því sú að Minningarsjóður Bryndísar Klöru safni fyrir húsnæði og stjórnvöld muni svo sjá um rekstur þjónustunnar.

„Ég tel svo mikilvægt að starfsemin verði tryggð áfram af hinu opinbera og sé hluti af kerfinu en standi ekki fyrir utan kerfið.“

Enn er ekki fullkomlega ljóst hver heildarkostnaðurinn muni verða, en þarfagreining stendur yfir. Greint verði frá niðurstöðu hennar síðar.

Það eru margir sem leggja verkefninu lið, með fjáröflun eða vitundarvakningu. Embla Bachman og Kári Einarsson, fyrrum skólafélagar Bryndísar Klöru, ætla til dæmis að fara í hringferð um landið og ætla að skapa svokallaðan kærleikshring.

Segist Dóra Guðrún finna mikinn meðbyr með verkefninu. Að stefnt sé að opnun Bryndísarhlíðar strax á næsta ári.

„Okkur dreymir um að fyrir lok næsta árs verði þetta komið af stað. Við finnum fyrir miklum meðbyr. Það hefur aldrei verið jafn auðvelt að leita til fólks, það eru allir að gefa vinnuna sína og allir tilbúnir að styðja þetta málefni. Við þurfum aukna samkennd og kærleika, að vinna gegn ofbeldi og við þurfum þetta úrræði.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

Karlmaður á fimmtugsaldri í haldi lögreglu.
Svara versnandi líðan barna
Innlent

Svara versnandi líðan barna

Ný barnabók kennir börnum að greina á milli góðra og vondra leyndarmála
Myndir
Menning

Ný barnabók kennir börnum að greina á milli góðra og vondra leyndarmála

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum
Innlent

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás
Heimur

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás

Erlendum nemendum fjölgar á meðan færri Íslendingar fara utan
Innlent

Erlendum nemendum fjölgar á meðan færri Íslendingar fara utan

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára
Heimur

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga
Heimur

Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga

Íranar vara við orkuskorti í vetur eftir árásir Bandaríkjanna og Ísraels
Heimur

Íranar vara við orkuskorti í vetur eftir árásir Bandaríkjanna og Ísraels

Öllu starfsfólki NetApp á Íslandi sagt upp
Innlent

Öllu starfsfólki NetApp á Íslandi sagt upp

Ísland dælir milljörðum í menntakerfið en kennslutíminn mun styttri en erlendis
Innlent

Ísland dælir milljörðum í menntakerfið en kennslutíminn mun styttri en erlendis

Sala sýklalyfja fyrir dýr jókst um rúm 21 prósent
Innlent

Sala sýklalyfja fyrir dýr jókst um rúm 21 prósent

Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

Karlmaður á fimmtugsaldri í haldi lögreglu.
Ísland dælir milljörðum í menntakerfið en kennslutíminn mun styttri en erlendis
Innlent

Ísland dælir milljörðum í menntakerfið en kennslutíminn mun styttri en erlendis

Svara versnandi líðan barna
Innlent

Svara versnandi líðan barna

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum
Innlent

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum

Erlendum nemendum fjölgar á meðan færri Íslendingar fara utan
Innlent

Erlendum nemendum fjölgar á meðan færri Íslendingar fara utan

Öllu starfsfólki NetApp á Íslandi sagt upp
Innlent

Öllu starfsfólki NetApp á Íslandi sagt upp

Loka auglýsingu