1
Innlent

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

2
Fólk

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

3
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

4
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

5
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

6
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

7
Innlent

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag

8
Innlent

Blóðug árás í Mjóddinni

9
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

10
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

Til baka

Kári Stefánsson ósáttur við sjálfan sig og Stefán Einar

„Það var óvarlegt af mér og býsna óheiðarlegt“

Kári Stefánsson
Kári StefánssonFyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar hefur verið til umfjöllunar eftir viðtal þar sem hann gaf í skyn njósnir lyfjarisans Amgen.

Kári Stefánsson, fyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna viðtals hans við Stefán Einar Stefánsson spjallþáttarstjórnanda í Spursmálum á mbl.is.

Yfirlýsing Kára virðist vera svar hans við frétt á mbl.is upp úr viðtalinu, þar sem segir frá því að Kári hafi óttast að lyfjarisinn Amgen, sem á Íslenska erfðagreiningu, njósni um starfsfólk sitt. Kári dregur í land orð sín í viðtalinu um mögulegar njósnir Amgens á starfsfólki Íslenskrar erfðagreiningar. Kári lét orðin falla á sviði „fyrir framan 200 íhaldsmenn“ í svokölluðum bókaklúbbi Spursmála um bók George Orwell, 1984, sem fjallar um dystópískt alræðissamfélag.

„Stefán Einar Stefánsson hringdi í mig fyrir nokkrum vikum og bað mig að koma í bókaklúbb sem hann stjórnar að ræða 1984 eftir George Orwell,“ segir Kári í yfirlýsingunni.

„Ég féllst á að koma að mestu fyrir sakir forvitni en líka vegna þess að mig grunaði að þessi vetvangur yrði nýttur til þess að gagnrýna sóttvarnaraðgerðir stjórnvalda á tímum Covid 19 sem og varð raunin. Ég endaði á því að sitja uppi á sviði með Stefáni fyrir framan allt að 200 íhaldsmenn. Umræðurnar voru líflegar og að ég held nokkuð skemmtilegar og enginn, hvorki Stefán né fólk út í sal sýndi gamla sósíalistanum annað en kurteisi sem jaðraði við hlýleika. Umræðurnar voru býsna málefnalegar fyrir utan nokkrar mishepnaðar tilraunir undirritaðs til þess að vera fyndinn og óheppilegt orðalag mitt þegar ég reyndi að beina athyglinni að þeim möguleikum sem fyrirtæki og stofanir hafa til þess að fylgjast með starfsmönnum sínum á þann máta að líkist því sem lýst er í 1984.“

Kári hafði sagt í viðtalinu frá skilyrðum fyrirtækisins að tölvubúnaður kæmi frá Amgen.

„En eitt af því sem þeir kröfðust til dæmis sem ég mót­mælti var að all­ir starfs­menn Íslenskr­ar erfðagrein­ing­ar hefðu svo­kallaða Am­gen-tölvu. Og þegar ég spurði, hvað eru Am­gen-tölv­ur? Og ég fékk ekk­ert svar. Og nú eru all­ir starfs­menn í Sturlu­götu 8, með tölvu frá Am­gen, meira að segja kon­urn­ar sem vinna við að þrífa, í eld­hús­inu og svo fram­veg­is. Og hvað er þetta. Þetta eru tölv­ur sem eru með njósna­búnaði. Þetta eru tölv­ur sem eru með „spyware.“ Og þetta eru ekki bara tölv­ur, þetta eru míkra­fón­ar. Það er hægt að hlusta á allt sem talað er í kring­um þess­ar tölv­ur. Og þá geta menn sagt, er þetta ekki bara sjálfsagt, þetta er tæki sem þeir nota við vinnu sína í vinn­unni. Er eitt­hvað sem á sér stað í vinn­unni sem fyr­ir­tækið má ekki vita um og svarið við því er auðvitað nei. Auðvitað eiga þeir að fá að vita um allt. En þarna ertu kom­inn al­veg upp að lín­unni...“

„Það var óvarlegt af mér og býsna óheiðarlegt“
Kári Stefánsson

Hann útskýrir orð sín í yfirlýsingunni.

„Þegar ég á sínum tíma spurði hvaða eiginleika Amgen tölvan hefði umfram aðrar tölvur fékk ég engin svör. Þegar ég dróg í efa að svona tölva myndi gagnast þeim sem í eldhúsinu vinna var þaggað niður í mér og sagt að allir starfsmenn, án undantekingar, yrðu að hafa slíka tölvu. Það var óvarlegt af mér og býsna óheiðarlegt í annars góðum samræðum að gefa það í skyn að Amgen gæti notað tölvurnar til þess að njósna.“

Þá hrósar hann Amgen fyrir að hafa gefið Landspítalanum jáeindaskanna og segulómunartæki, auk þess að hafa aðstoðað yfirvöld í covid-faraldrium.

„Ég vil benda á að Amgen hefur gert mjög vel við starfsmenn Íslenskrar erfðagreiningar og hefur hagað sér eins og fyrirtæki með háa siðferðisstaðla og mikla samfélagslega ábyrgð,“ segir Kári nú.

Kári er þó ósáttur við þann fjölda frétta sem mbl.is hefur skrifað upp úr orðum hans.

„Ég vil hins vegar leggja á það áherslu að ekkert í samræðum mínum við Stefán benti til þess að hann mydi skreyta mbl.is með bitum af bókspjallinu á hverju degi í heila viku og hann bar enga af fréttunum sem hann skrifaði upp úr því undir mig.“

Yfirlýsing Kára í heild

Stefán Einar Stefánsson hringdi í mig fyrir nokkrum vikum og bað mig að koma í bókaklúbb sem hann stjórnar að ræða 1984 eftir George Orwell. Ég féllst á að koma að mestu fyrir sakir forvitni en líka vegna þess að mig grunaði að þessi vetvangur yrði nýttur til þess að gagnrýna sóttvarnaraðgerðir stjórnvalda á tímum Covid 19 sem og varð raunin. Ég endaði á því að sitja uppi á sviði með Stefáni fyrir framan allt að 200 íhaldsmenn. Umræðurnar voru líflegar og að ég held nokkuð onkemmtilegar og enginn, hvorki Stefán né fólk út í sal sýndi gamla sósíalistanum annað en kurteisi sem jaðraði við hlýleika. Umræðurnar voru býsna málefnalegar fyrir utan nokkrar mishepnaðar tilraunir undirritaðs til þess að vera fyndinn og óheppilegt orðalag mitt þegar ég reyndi að beina athyglinni að þeim möguleikum sem fyrirtæki og stofanir hafa til þess að fylgjast með starfsmönnum sínum á þann máta að líkist því sem lýst er í 1984. Í 1984 er lýst tæki sem var komið fyrir í ívörustöðum allra manna sem fylgdist með því sem gerðu og sögðu. Í hita umræðunnar um ráðstjórnina sem er lýst í bókinni sagði ég frá því að Amgen krafðist þess að allir starfsmenn Íslenskrar erfðagreiningar væru með fartölvu sem þeir útvega, svo kallaða Amgen tölvu. Þegar ég á sínum tíma spurði hvaða eiginleika Amgen tölvan hefði umfram aðrar tölvur fékk ég engin svör. Þegar ég dróg í efa að svona tölva myndi gagnast þeim sem í eldhúsinu vinna var þaggað niður í mér og sagt að allir starfsmenn, án undantekingar, yrðu að hafa slíka tölvu. Það var óvarlegt af mér og býsna óheiðarlegt í annars góðum samræðum að gefa það í skyn að Amgen gæti notað tölvurnar til þess að njósna. Ég hef ekkert í höndunum sem bendir til þess að Amgen hafi notað tölvurnar til þess að njósna eða hafi slikt í huga og ég er handvissum að þeir standa í þeirri trú að svona tölva geri jafnvel kótilettiurnar betri á bragið. Ég vil hins vegar leggja á það áherslu að ekkert í samræðum mínum við Stefán benti til þess að hann mydi skreyta mbl.is með bitum af bókspjallinu á hverju degi í heila viku og hann bar enga af fréttunum sem hann skrifaði upp úr því undir mig.

Ég vil benda á að Amgen hefur gert mjög vel við starfsmenn Íslenskrar erfðagreiningar og hefur hagað sér eins og fyrirtæki með háa siðferðisstaðla og mikla samfélagslega ábyrgð. Sem dæmi: 1.Amgen gaf Landspítalaum jáeindaskann, 2. Amgen keypti kraftmikið segulómunartæki sem er á Landspítalanum, 3. þegar ég leitaði til yfirmanna Amgen í Covid leyfðu þeir mér að breyta Íslenskri erfðagreiningu í veirustofnum til þess að aðstoða sóttvarnaryfirvöld, 4. Amgen hefur leyft Íslenskri erfðagreiningu að raðgreina sýni í greiningarskyni fyrir Landspítalann fyrir hundruðir milljóna á ári hverju.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Styrkja Mannlíf

Má bjóða þér að styrkja starfsemi Mannlífs með mánaðarlegu framlagi?


Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nýjar Google Earth-myndir sýna umfang eyðileggingarinnar á Gaza
Heimur

Nýjar Google Earth-myndir sýna umfang eyðileggingarinnar á Gaza

„Þetta er eins og risar hafi rifið og tætt allt sem eitt sinn lifði hér“
Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar
Heimur

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar

Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honum
Heimur

Braust yfir hundrað sinnum inn til konu sem hafnaði honum

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi
Innlent

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi

Umfangsmikil leit að ungum manni í Haugasundi
Heimur

Umfangsmikil leit að ungum manni í Haugasundi

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum
Fólk

Sjö merki þess að innra barnið sé enn að stýra samböndunum þínum

Fimm ungir Bretar handteknir í umfangsmikilli hryðjuverkarannsókn
Heimur

Fimm ungir Bretar handteknir í umfangsmikilli hryðjuverkarannsókn

„Gervigreindin getur valdið dauða milljarða manna“
Heimur

„Gervigreindin getur valdið dauða milljarða manna“

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja
Innlent

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

Drottning poppsins snýr aftur með látum
Myndband
Heimur

Drottning poppsins snýr aftur með látum

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

Innlent

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi
Innlent

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi

„Skelfilegast er þó þegar þessar konur eru þvingaðar til þess að verða óléttar“
VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja
Innlent

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

Kjúklingakaupin enduðu með níu mánaða fangelsisdómi
Innlent

Kjúklingakaupin enduðu með níu mánaða fangelsisdómi

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

Loka auglýsingu