Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Ummæli Stefáns Einars koma starfsfólki fæðingardeildar í opna skjöldu

Stefán Einar Stef­áns­son, spjall­þátta­stjórn­andi Morg­un­blaðs­ins, lýsti meintu ófremd­ar­á­standi vegna múslima á fæð­ing­ar­deild Land­spít­al­ans.

Ummæli Stefáns Einars koma starfsfólki fæðingardeildar í opna skjöldu
Stefán Einar Stef­áns­son Frétta­maður Morg­un­blaðs­ins kom í hlað­varp Sölva Tryggva­sonar og ræddi inn­flytj­endur. Mynd: Skjáskot / mbl.is

Stefán Einar Stef­áns­son, frétta­maður og þátta­stjórn­andi Spurs­máls, ræddi um inn­flytj­enda­mál við Sölva Tryggva­son í nýjasta hlað­varps­þætti Sölva.

Í við­tal­inu fjall­aði Stefán Einar um meinta fram­göngu múslima í íslensku sam­fé­lagi. Þar hélt Stefán Einar því fram að á fæð­ing­ar­deild Land­spít­al­ans væri „stand­andi vanda­mál“ vegna kven­fyr­ir­litn­ingar og yfir­gangi frá hópi karl­manna. „Gríð­ar­lega ljót fram­koma gagn­vart starfs­fólki og mjög ljót fram­koma gagn­vart kon­unum með nýfædd börn, vegna þess að þetta eru hópar manna sem fyr­ir­líta konur,“ sagði Stefán Einar í mynd­bands­broti sem er nú í dreif­ingu á sam­fé­lags­miðlum. Fjallað var um frá­sagnir Stefáns Einars af fæð­ing­ar­deild­inni á frétta­vef DV og Nútímans.

Stefán Einar hélt því fram að ekki væri rætt um málin, vegna ótta stars­fólks. „Þetta er veru­leik­inn, en heil­brigð­is­starfs­fólkið myndi aldrei mæta í svona við­tal og ræða opin­skátt um það. Það ætlar ekki að lenda í þessum hnífa­mönnum eða þessum yfir­gangs­seggjum, sem telja að þeir geta komið hér eins og fínir menn og vaðið yfir sam­fé­lagið á skítugum skónum.“

Kannast ekki við sögur Stefáns

„Þessi ummæli komu starfs­fólki kvenna­deildar sem ég hef rætt við í opna skjöldu. Þau kann­ast ekki við þessar lýs­ingar,“ segir Hulda Hjart­ar­dóttir, yfir­læknir á fæð­ing­ar­deild Land­spít­al­ans, í svari við fyr­ir­spurn Mannlífs um hvort frá­sögn Stefáns Einars sam­svari reynslu starfs­fólks­ins.

„Fæðing er stór­við­burður í lífi fjöl­skyldna og oft fylgja áhyggjur, streita og þreyta hjá aðstand­endum þó að oft­ast sé ríkj­andi til­finn­ingin gleði. Starfs­fólk deild­ar­innar þarf stöku sinnum að leið­beina aðstand­endum fæð­andi kvenna við að hemja til­finn­ingar sínar og hefur til þess ýmsar leiðir og er því yfir­leitt vel tekið. Þetta á jafnt við um aðstand­endur af báðum kynjum og er óháð trú og upp­runa. Afar sjald­gæft er að aðstand­endur sýni hegðun sem telja má ógn­andi og ekki hefur verið tekið eftir aukn­ingu á slíkum til­vikum,“ segir Hulda.

Eiríkur Bergmann Ein­ars­son stjórn­mála­fræð­ingur hefur rann­sakað sér­stak­lega upp­gang hægri öfga­fólks, þjóð­ern­ispopúl­isma og sam­sær­is­kenn­ing í Evrópu.

„Ég veit ekki í hvað hann er að vísa nákvæm­lega en það er hins vegar alveg klass­ískt að lýsa inn­flytj­endum sem fram­andi verum sem aðhyll­ast síður gildi lands­ins sem þeir koma til og séu ein­hvern vegin ógn við frið og stöð­ug­leika,“ segir Eiríkur Bergmann í sam­tali við Mannlíf.

Stefán Einar Stef­áns­son og Sölvi Tryggva­son ræddu um mein­tan kyn­þátta­hatur múslima gegn hvítum Íslend­ingum og tóku fyrir dæmi bæði í Breið­ar­holt­skóla og á Kvenna­deild Land­spít­al­ans.

„Við höfum séð að það er mjög gjarnan alið á ótta í garð útlend­inga og inn­flytj­enda í vest­rænum sam­fé­lögum og þetta er að koma hingað með sama hætti og alls ann­ars staðar,“ segir Eiríkur. Hann lýsir hvernig lítil atvik eru gerð að stórum málum og verða vopn í höndum fólks með for­dóma. „Árekstr­arnir eru blásnir upp og oft er reykur sem verður að miklum eldi,“ segir Eiríkur og heldur síðan áfram. „Í vest­rænum sam­fé­lögum er þetta oft blásið upp úr öllu valdi og mjög margt tekið úr sam­hengi við raun­veru­leik­ann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Myndir
Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti