1
Fólk

„Jónsson fullkomnaði fjölskylduna“

2
Heimur

Dánarorsök Sam Neill kunngjörð

3
Heimur

Fyrrverandi eiginkona Eminem flutt á sjúkrahús eftir sjálfsvígstilraun

4
Fólk

Sanna sælleg og sæt í sólinni

5
Innlent

Íslendingar nældu sér í gullverðlaun

6
Fólk

Átta leiðir til að stórbæta líðan innikatta

7
Innlent

Bestu og verstu rökin gegn Evrópusambandsaðild Íslands

8
Innlent

Vill ekki fagna opnun gyðingamiðstöðvar fyrr en rabbíninn svarar um Gaza

9
Innlent

Ógeðfelldar athugasemdir látnar falla síendurtekið

10
Heimur

Ásakanir um rasisma, sögufölsun og „woke“-pólitík

Til baka

Krefjast þess að leyfi til blóðmerahalds verði fellt úr gildi

Átta alþjóðleg dýraverndarsamtök skrifa undir yfirlýsingu tveggja íslenskra dýraverndarsamtaka.

blóðmerahald
BlóðmerarKrafist er að leyfi til blóðmerahalds verði fellt úr gildi
Mynd: © Animal Welfare Foundation.

Dýraverndarsamband Íslands og Samtök um dýravelferð á Íslandi hafa, ásamt átta alþjóðlegum dýraverndarsamtökum, sent atvinnuvegaráðuneytinu formlega kvörtun þar sem þess er krafist að leyfi Matvælastofnunar (MAST) til blóðmerahalds verði fellt úr gildi.

Meðal þeirra erlendu samtaka sem standa að kvörtuninni eru Eurogroup for Animals, Animal Welfare Foundation, Animal Justice, Italian Horse Protection og Welfarm.

Samtökin krefjast þess að ákvörðun MAST um að veita skilyrt tveggja ára starfsleyfi fyrir blóðtöku úr fylfullum hryssum verði felld úr gildi. Til vara fara þau fram á að umsóknin verði tekin til meðferðar á ný í samræmi við reglugerð um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni, sem byggir á Evróputilskipun sem Ísland ber að fylgja samkvæmt EES-samningnum.

Leyfið heimilar blóðtöku úr allt að 4.900 fylfullum hryssum árlega til framleiðslu á PMSG- eða eCG-hormóni sem notað er í frjósemislyf fyrir búfé, einkum gyltur í verksmiðjubúskap.

Í yfirlýsingunni halda samtökin því fram að hormónið geti haft neikvæð áhrif á velferð dýra þar sem notkun þess geti leitt til stærri og veikbyggðari grísagota, sem auki líkur á dauða grísa.

Þá telja samtökin að blóðtakan gangi langt umfram alþjóðleg viðmið og hafi veruleg áhrif á heilsu og velferð hryssanna. Einnig sé meðferð þeirra við blóðtöku óviðunandi þar sem um sé að ræða lítið tamin eða hálfvillt hross sem verði fyrir mikilli streitu og ótta.

Samtökin benda á að fagráð um velferð dýra hafi veitt umsókninni neikvæða umsögn í febrúar en að MAST hafi engu að síður veitt starfseminni skilyrt leyfi í maí. Jafnframt gagnrýna þau að leyfið hafi verið veitt á meðan áhættumat Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) á velferð blóðmera sé enn ólokið.

Í kvörtuninni er einnig bent á að samkvæmt reglugerð um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni skuli nota aðrar aðferðir en lifandi dýr þegar það er mögulegt. Samtökin segja að bæði séu til lyfjalegir valkostir sem skili sambærilegum árangri og PMSG-hormónið og að hægt sé að auka frjósemi búfjár með öðrum aðferðum í búfjárrækt án hormónanotkunar.

Að mati samtakanna er því óásættanlegt að MAST hafi veitt leyfi fyrir starfseminni þegar notkun lifandi dýra sé hvorki nauðsynleg né ómissandi samkvæmt þeim reglum sem gilda.

Samtökin fara fram á að ákvörðun MAST verði felld úr gildi í heild sinni eða endurskoðuð í samræmi við lög um velferð dýra og reglugerð um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni.

Yfirlýsing - Leyfi til blóðmerahalds verði fellt úr gildi

Dýraverndarsamband Íslands og Samtök um dýravelferð á Íslandi ásamt Anima, Animals’ Angels Inc., Animal Justice, Animal Welfare Foundation, Dier&Recht, Ekō, Eurogroup for Animals, Italian Horse Protection og Tierschutzbund Zürich og Welfarm hafa sent kvörtun til atvinnuvegaráðuneytisins. 

Þar er þess krafist að ákvörðun Matvælastofnunar (MAST) um veitingu leyfis til blóðmerahalds verði fellt úr gildi. Jafnframt er þess krafist að MAST taki umsóknina til meðferðar á ný í fullu samræmi við kröfur reglugerðar um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni sem er Evróputilskipun og Íslandi ber að fylgja sem aðili að EES samningnum.

Leyfið heimilar blóðtöku úr allt að 4.900 fylfullum hryssum árlega í þeim tilgangi að framleiða PMSG/eCG-hormón til notkunar í dýrafrjósemislyfjum, aðallega fyrir gyltur í verksmiðjubúskap. Hormónið hefur neikvæð áhrif á velferð dýranna þar sem notkun þess getur leitt til stærri og veikbyggðari grísagota, sem eykur hættuna á grísadauða.

Blóðtaka í blóðmerahaldi fer langt umfram alþjóðleg viðmið og gengur nærri heilsu og velferð hryssanna. Einnig er meðferð hryssnanna við blóðtöku, sem eru að jafnaði lítið tamdar, með öllu óviðunandi. Ekki er unnt að taka blóð úr hálfvilltum hrossum án þess að valda þeim verulegri streitu og ótta eða án þess að beita þvingunum.

Fagráð um velferð dýra veitti leyfisumsókn fyrir blóðmerahaldi neikvæða umsögn í febrúar síðastliðnum. Þrátt fyrir það fór MAST gegn áliti ráðsins og veitti starfseminni skilyrt leyfi til tveggja ára í maí. Það vekur einnig furðu að leyfi hafi verið veitt á meðan yfirstandandi áhættumat Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) er varðar velferð blóðmera er enn ólokið.

Reglugerð um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni gerir skýra kröfu um að þegar það er mögulegt skuli nota aðrar aðferðir í stað lifandi dýra. Til eru staðgöngulyf sem skila sambærilegum árangri og PMSG hormónið við að samstilla gangmál búfjár. Einnig er unnt að auka frjósemi og samstilla gangmál búfjár án lyfjanotkunar með ráðstöfunum í búfjárrækt sem getur komið í stað hormónsins. Það er óásættanleg niðurstaða að MAST veiti leyfi fyrir notkun á dýrum til lyfjaframleiðslu þegar skýrt er að það sé ekki nauðsynlegt eða ómissandi eins og reglugerðin gerir kröfu um.

Samtökin krefjast þess að ákvörðun MAST um að veita leyfi til blóðtöku úr fylfullum hryssum, þvert á umsögn fagráðs um velferð dýra, verði felld úr gildi í heild sinni eða til vara að hún verði endurskoðuð í samræmi við kröfur reglugerðar nr. 460/2017 um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni og laga nr. 55/2013 um velferð dýra.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Alvarleg staða í stærðfræðikennslu á Íslandi
Innlent

Alvarleg staða í stærðfræðikennslu á Íslandi

Kerfisvandi frekar en bókaskortur
15 fæðutegundir sem vinna gegn einkennum breytingaskeiðsins
Fólk

15 fæðutegundir sem vinna gegn einkennum breytingaskeiðsins

Starfslok slökkviliðsstjóra tengjast fjárreiðum
Innlent

Starfslok slökkviliðsstjóra tengjast fjárreiðum

Breska glæpakvendið handtekið á Tenerife
Heimur

Breska glæpakvendið handtekið á Tenerife

Rithöfundur hrósar Yellowstone fyrir að þyrma vísundi eftir árás á ferðamann
Heimur

Rithöfundur hrósar Yellowstone fyrir að þyrma vísundi eftir árás á ferðamann

Ógeðfelldar athugasemdir látnar falla síendurtekið
Innlent

Ógeðfelldar athugasemdir látnar falla síendurtekið

JD Vance viðurkennir mistök vegna birtingar Epstein-skjalanna
Heimur

JD Vance viðurkennir mistök vegna birtingar Epstein-skjalanna

Vill ekki fagna opnun gyðingamiðstöðvar fyrr en rabbíninn svarar um Gaza
Innlent

Vill ekki fagna opnun gyðingamiðstöðvar fyrr en rabbíninn svarar um Gaza

Ásakanir um rasisma, sögufölsun og „woke“-pólitík
Heimur

Ásakanir um rasisma, sögufölsun og „woke“-pólitík

Stríðið við Íran hefur minnkað vopnabirgðir Bandaríkjanna verulega
Heimur

Stríðið við Íran hefur minnkað vopnabirgðir Bandaríkjanna verulega

Íslendingar nældu sér í gullverðlaun
Innlent

Íslendingar nældu sér í gullverðlaun

FIFA lengir hálfleik úrslitaleiksins á HM
Sport

FIFA lengir hálfleik úrslitaleiksins á HM

Fyrrverandi eiginkona Eminem flutt á sjúkrahús eftir sjálfsvígstilraun
Heimur

Fyrrverandi eiginkona Eminem flutt á sjúkrahús eftir sjálfsvígstilraun

Innlent

Alvarleg staða í stærðfræðikennslu á Íslandi
Innlent

Alvarleg staða í stærðfræðikennslu á Íslandi

Kerfisvandi frekar en bókaskortur
Íslendingar nældu sér í gullverðlaun
Innlent

Íslendingar nældu sér í gullverðlaun

Starfslok slökkviliðsstjóra tengjast fjárreiðum
Innlent

Starfslok slökkviliðsstjóra tengjast fjárreiðum

Ógeðfelldar athugasemdir látnar falla síendurtekið
Innlent

Ógeðfelldar athugasemdir látnar falla síendurtekið

Krefjast þess að leyfi til blóðmerahalds verði fellt úr gildi
Innlent

Krefjast þess að leyfi til blóðmerahalds verði fellt úr gildi

Vill ekki fagna opnun gyðingamiðstöðvar fyrr en rabbíninn svarar um Gaza
Innlent

Vill ekki fagna opnun gyðingamiðstöðvar fyrr en rabbíninn svarar um Gaza

Loka auglýsingu