Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Kyrkti sambýliskonuna og barði ítrekað í andlitið

Héraðs­dómur Vestur­lands dæmdi í fyrradag karlmann í þriggja og hálfs árs fangelsi

Héraðsdómur Vesturlands er í Borgarnesi
Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands er í Borg­ar­nesi Mynd: Wikipedia/Chensiyuan

Héraðs­dómur Vestur­lands dæmdi í fyrradag karlmann í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir stórfellt brot í nánu sambandi og alvarlega líkams­árás gegn sambýlis­konu sinni. Maðurinn hafði verið ákærður fyrir tilraun til manndráps en var sýknaður af þeim hluta ákærunnar.

Árásin átti sér stað á heimili parsins. Samkvæmt framburði konunnar sparkaði maðurinn upp hurð að svefn­herbergi þar sem hún hafði læst sig inni. Hann réðst síðan á hana í rúminu, sló hana ítrekað í andlitið, reif í hár hennar, hélt fyrir munn hennar og nef og tók hana kyrkingar­taki.

Nágranni kallaði til lögreglu eftir að hafa heyrt öskur og ógnandi karl­mannsrödd. Þegar lögreglu­menn komu á vettvang var konan í miklu uppnámi og með sjáanlega áverka. Blóð­slettur fundust í svefn­herberginu auk hárlokks og eyrna­lokks konunnar.

Maðurinn neitaði sök og hélt því fram að konan hefði ráðist á sig. Dómurinn taldi framburð hans hins vegar ótrú­verðugan en frásögn konunnar studda læknis­fræðilegum gögnum og öðrum gögnum málsins.

Áverkar á hálsi konunnar bentu til þess að verulegur kraftur hefði verið notaður við kyrkinguna. Réttar­læknir sagði slíkt kyrkingartak geta skapað lífs­hættulegt ástand.

Ekki var þó talið full­sannað að maðurinn hefði haft ásetning til að bana konunni og var hann því ekki sakfelldur fyrir tilraun til manndráps.

Við ákvörðun refsingar var meðal annars horft til þess að maðurinn hafði áður verið dæmdur fyrir ofbeldi gegn sömu konu. Dómurinn lýsti árásinni sem hrottalegri.

Manninum var einnig gert að greiða konunni 1,2 milljónir króna í miska­bætur og rúmar 4,1 milljón króna í sakar­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Innlent

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fólk sem finnur fyrir vanlíðan vegna slyssins hvatt til að leita stuðnings.

Hótað með eggvopni í ráni á höfuð­borgar­svæðinu

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana