Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi

„Veðrið þá var víst ógurlegt“

Einar Sveinbjörnsson
Einar Svein­björns­son

Veður­fræðingurinn Einar Sveinbjörnsson segir á Facebook-síðu sinni ástæðu til að fylgjast grannt með öflugri lægð sem gæti nálgast Ísland um miðja viku. Nýjustu spár gera ráð fyrir meiri dýpkun hennar en fyrri spár höfðu sýnt.

Einar greinir frá þessu í færslu á samfélags­miðlum og birtir jafnframt myndir sem sýna áætlaða þróun og feril lægðarinnar. Samkvæmt honum sýnir nýjasta spá Evrópsku reikni­miðstöðvarinnar lægð sem kemur frá austan­verðum Banda­ríkjunum og sveigir norð­austur yfir Atlantshafið með stefnu á Ísland.

„Breyting frá spám gærdagsins er sú að dýpkunin er meiri en áður var gert ráð fyrir. Síðdegis á miðvikudag má þannig töluna 936 hPa skammt undan Horna­firði,“ skrifar Einar.

Hann segir svo djúpar lægðir vera fáséðar hér við land og rifjar upp sögulegt veður í því samhengi.

„Í október er aðeins einu sinni vitað til þess að loftvog hafi fallið niður fyrir 940 hPa í mælingu. Það gerðist 1963 þann 19. 938,4 hPa á Stórhöfða. Veðrið þá var víst ógurlegt.“

Einar segir skýringuna á mikilli dýpkun lægðarinnar meðal annars vera þá að hún gleypi aðra og minni lægð. Við það magnist hringhreyfingin og dýpkunin verði enn ákafari.

„Sjálf dýpkunin reiknast 44 hPa frá kl. 12 á morgun, þriðjudag, til kl. 12 á miðvikudag,“ segir Einar.

Þetta er breyting frá fyrri spám. Í keyrslum frá deginum áður hafi aðal­lægðin ýtt þeirri minni á undan sér og lægða­orkan því ekki nýst að fullu.

Einar segir mikilvægt að fylgjast mjög náið með þróuninni.

„Grannt þarf að fylgjast með þessari þróun næstu tvo til þrjá sólar­hringa. Mjög djúpar lægðir eins og sú sem nú er í pípunum valda langoftast óskunda hér og stundum verulegum vandræðum og með eigna­tjóni.“

Enn er þó töluverð óvissa um nákvæman feril og styrk lægðarinnar. Einar slær því ákveðinn varnagla við spána og bendir á að margt geti breyst áður en hún nálgast landið.

„En það er enn langur vegur frá Atlanta til Akureyrar!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum