1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

6
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

7
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

8
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

9
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

10
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Til baka

Landssamband eldri borgara mótmælir nýju komugjaldi í sjúkraþjálfun

„Það virðist vera stefna núverandi ríkisstjórnar að sverfa að eldra fólki“

Alma Möller
Alma MöllerLEB mótmælir fyrirhuguðu komugjaldi heilbrigðisráðherra
Mynd: Heimildin/Golli

Landssamband eldri borgara (LEB) mótmælir harðlega fyrirhuguðu komugjaldi í sjúkraþjálfun sem heilbrigðisráðherra hefur boðað að taki gildi 1. september. Samkvæmt áætluninni mun hver heimsókn kosta 1.000 krónur.

Í ályktun frá LEB segir að gjaldtakan muni gera stórum hópi eldra fólks erfiðara fyrir að sækja nauðsynlega sjúkraþjálfun, sérstaklega þeim sem þurfa á meðferð að halda oftar en einu sinni í mánuði.

Sambandið bendir á að margir eldri borgarar muni ekki ráða við aukinn kostnað og nefnir að um 20 prósent eldra fólks á Íslandi búi enn við tekjur sem séu undir lágmarkstaxta á almennum vinnumarkaði.

LEB gagnrýnir jafnframt stefnu ríkisstjórnarinnar og segir að í stað þess að byggja upp kerfi sem stuðli að sjálfstæði og bættri heilsu eldra fólks sé verið að auka fjárhagslegar byrðar þess.

„Við þurfum á því að halda þegar fjöldi eldra fólks í samfélaginu fer hækkandi að horfa til framtíðar og í lausnum sem þjóna samfélaginu til langs tíma. Það virðist vera stefna núverandi ríkisstjórnar að sverfa að eldra fólki í stað þess að leitast við að byggja upp kerfi sem styrkir eldra fólk til sjálfstæðis og betri heilsu,“ segir í ályktuninni.

Að lokum skorar Landssamband eldri borgara á heilbrigðisráðherra að endurskoða ákvörðunina og falla frá áformum um komugjaldið.

Ályktunin er undirrituð af Birni Snæbjörnssyni, formanni LEB, og Sigurði Á. Sigurðssyni, varaformanni sambandsins.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu
Heimur

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á
Heimur

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds
Heimur

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun

Gunnlaugur Stefánsson

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

„Það sendir vonarglætu í heim þar sem mennskan er á undanhaldi“
Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina
Pólitík

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

Loka auglýsingu