1
Fólk

Aníta Briem sögð hafa sofið hjá meðleikara

2
Innlent

Varað við neyslu á nautakjötsrétti

3
Minning

Kristinn V. Jóhannsson er látinn

4
Innlent

„Enn eitt skipulagsslysið í Reykjavík“

5
Innlent

Segir verið að ræna regnbogafánann merkingu sinni

6
Fólk

Ástarsamband án skuldbindinga

7
Fólk

„Hann öskraði af kvölum“

8
Pólitík

Hjálmtýr spyr: „Hvaða Ísrael er verið að verja?“

9
Heimur

Vísundur fleygði afa nokkra metra upp í loftið

10
Heimur

Létust með 42 mínútna millibili

Til baka

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Sat áður inni fyrir manndrápstilraun

Héraðsdómur Reykjavíkur
Héraðsdómur ReykjavíkurDómurinn yfir Lárusi er skilorðsbundinn
Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Lárus Má Hermannsson í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á lögreglumann í fangageymslu lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu í Reykjavík aðfaranótt 3. febrúar 2024.

Samkvæmt dómnum var Lárus handtekinn vegna annars máls og var þá undir verulegum áhrifum áfengis. Þegar lögreglumenn voru að færa hann inn í fangaklefa streittist hann á móti, setti hendur á milli hurðar og stafs og veittist síðan að lögreglumanni. Hann sló til lögreglumannsins, reif fjarskiptabúnað af höfði hans og olli rispu aftan á hálsi hans.

Lárus neitaði fyrir dómi að hafa ætlað að meiða lögreglumanninn. Hann sagðist hafa fallið á áfengisbindindi sínu eftir átta ára edrúmennsku vegna erfiðra aðstæðna í kjölfar andláts móður sinnar og muna lítið sem ekkert eftir atvikunum. Hann viðurkenndi þó að hafa reynt að koma í veg fyrir að fangaklefanum yrði lokað og sagðist hafa fundið fyrir innilokunarkennd.

Dómurinn taldi hins vegar framburð þriggja lögreglumanna trúverðugan og studdan eftirlitsmyndavélum úr fangageymslunni. Þar sjáist ákærði slá í átt að lögreglumanninum áður en hann var yfirbugaður og færður aftur inn í klefann.

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn meðal annars til þess að rúm tvö ár voru liðin frá atvikinu og að dráttur á meðferð málsins væri ekki þeim ákæra að kenna. Einnig var litið til þess að hann hefði ekki gerst sekur um önnur brot frá því atvikið átti sér stað.

Refsingin var því ákveðin 30 daga fangelsi en fullnustu hennar frestað til tveggja ára, að því gefnu að hann haldi almennt skilorð. Þá var honum gert að greiða verjanda sínum, Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni lögmanni, 706.800 krónur í málsvarnarlaun.

Sat áður inni fyrir manndrápstilraun

Lárus Már var árið 2005 dæmur fyrir tilraun til manndráps en þá hafði hann veist að fyrrverandi sambýliskonu sinni með felgulykli og veitt henni alvarlega áverka á höfði, á heimili hennar á Akranesi.

Hlaut Lárus Már fimm og hálfs ár fangelsi og var fyrrverandi sambýliskonu hans greiddar 700.000 krónur í miskabætur.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kristófer Þorleifsson geðlæknir er fallinn frá
Minning

Kristófer Þorleifsson geðlæknir er fallinn frá

Leik- og söngkona rifjar upp leynilegt ástarsamband við Eðvarð prins
Heimur

Leik- og söngkona rifjar upp leynilegt ástarsamband við Eðvarð prins

Drengur stakk fimm ára stúlku í Svíþjóð og hringdi svo á 112
Heimur

Drengur stakk fimm ára stúlku í Svíþjóð og hringdi svo á 112

Létust með 42 mínútna millibili
Heimur

Létust með 42 mínútna millibili

Eiríkur sakar ESB-andstæðinga um fölsun
Pólitík

Eiríkur sakar ESB-andstæðinga um fölsun

Fimm svæði þar sem streita safnast upp og æfingar til að losa um spennuna
Fólk

Fimm svæði þar sem streita safnast upp og æfingar til að losa um spennuna

Sjórinn við Kanaríeyjar getur ógnað heilsu ferðamanna
Heimur

Sjórinn við Kanaríeyjar getur ógnað heilsu ferðamanna

Faðir lést við að bjarga börnum sínum frá drukknun
Heimur

Faðir lést við að bjarga börnum sínum frá drukknun

„Enn eitt skipulagsslysið í Reykjavík“
Innlent

„Enn eitt skipulagsslysið í Reykjavík“

Afinn sem vísundurinn réðist á nafngreindur
Heimur

Afinn sem vísundurinn réðist á nafngreindur

Mygla fannst í húsnæði Kristnesspítala
Landið

Mygla fannst í húsnæði Kristnesspítala

Kristinn V. Jóhannsson er látinn
Minning

Kristinn V. Jóhannsson er látinn

„Hann öskraði af kvölum“
Viðtal
Fólk

„Hann öskraði af kvölum“

Innlent

„Enn eitt skipulagsslysið í Reykjavík“
Innlent

„Enn eitt skipulagsslysið í Reykjavík“

„Þessi turn er svo sannarlega ekki innleggið sem þurfti til að gera þetta betra“
Heildarendurskoðun á reglum útlendingalaga
Innlent

Heildarendurskoðun á reglum útlendingalaga

Hagkaups kokteilsósa innkölluð
Innlent

Hagkaups kokteilsósa innkölluð

Segir verið að ræna regnbogafánann merkingu sinni
Innlent

Segir verið að ræna regnbogafánann merkingu sinni

Varað við neyslu á nautakjötsrétti
Innlent

Varað við neyslu á nautakjötsrétti

Loka auglýsingu