1
Peningar

15 tekjukóngar Garðabæjar afhjúpaðir

2
Minning

Steinn Ármann Magnússon er fallinn frá

3
Fólk

Gullfallegt hús með afþreyingaraðstöðu til sölu

4
Heimur

30 manns létust í ruslaslysi

5
Fólk

Jón Þór fær starf hjá Samherja

6
Stjórnandinn

Intróvertinn sem þurfti að verða extróvert

7
Peningar

Sýn og Síminn ekki í eina sæng

8
Innlent

Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild

9
Heimur

Lögreglan rannsakar grunsamlegt andlát Þjóðverja á Kanarí

10
Innlent

Segja Nýja Landspítalann tilbúinn árið 2029

Til baka

Lilja Dögg og Gylfi Þór á eftirsóttum lista

Ekki allir sem komast á þennan lista

Lilja Dögg Jónsdóttir 2
Lilja Dögg JónsdóttirEr framkvæmdastjóri Almannaróms
Mynd: Aðsend

Ráðgjafarfyrirtækið Góð samskipti, í eigu almannatengilsins Andrésar Jónssonar, hefur birt lista yfir 40 efnilega stjórnendur í íslensku viðskiptalífi árið 2026 sem eru 40 ára og yngri.

Þetta er í fimmta sinn sem listinn er gefinn út, en fyrirtækið hefur það að markmiði að birta hann á tveggja ára fresti. Tilgangurinn er að vekja athygli á ungu stjórnendafólki sem hefur skarað fram úr í störfum sínum og gæti átt eftir að gegna lykilhlutverkum í íslensku atvinnulífi á komandi árum.

Í grein sem birt var á miðlinum Medium kemur fram að listinn sé ætlaður til að heiðra einstaklinga sem hafi staðið sig vel í krefjandi stjórnunarhlutverkum og jafnframt gefa vísbendingar um hverjir kunni að verða meðal áhrifamestu stjórnenda landsins í framtíðinni.

Samkvæmt Andrési bárust fjölmargar ábendingar við valið að þessu sinni. Við matið var meðal annars horft til þess hversu langt einstaklingar hafa náð í kröfuhörðu starfsumhverfi og hvort þeir gegni stöðum sem fela í sér mikla ábyrgð innan íslenskra fyrirtækja.

Listinn hefur vakið athygli undanfarin ár og er ætlað að draga fram nýja kynslóð leiðtoga sem markar sífellt sterkari spor í íslensku atvinnulífi.

Listinn:

  • Agnar Úlfsson (35), Regional Vice President, EMEA Sales hjá BlueCat
  • Alexandra Diljá Bjargardóttir (37), Markaðsstjóri hjá Fenris Creations
  • Anna Guðrún Gunnlaugsdóttir (34), löggiltur endurskoðandi og yfirverkefnastjóri hjá KPMG
  • Ásgeir Hallgrímsson (33), fjármála- og rekstrarstjóri Apótekarans
  • Ásta María Marinósdóttir (36), framkvæmdastjóri Special Tours
  • Atli Þór Jóhannsson (37), framkvæmdastjóri Borgarverks
  • Benedikt Kristján Magnússon (36), framkvæmdastjóri veitukerfa HS Veitna
  • Birkir Ágústsson (38), framkvæmdastjóri miðla Símans
  • Birkir Guðmundarsson (36), framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Elkem
  • Björn Eyþór Benediktsson (40), fjármálastjóri Heima
  • Dagbjört Vestmann (39), forstöðumaður verslunarsviðs ELKO
  • Dagný Ósk Ragnarsdóttir (37), forstöðumaður viðskiptagreiningar og þróunar markaða hjá Landsvirkjun
  • Daníel Freyr Hjartarson (34), framkvæmdastjóri Magna
  • Diljá Rudolfsdóttir (38), forstöðumaður alþjóðasviðs upplýsingatækni Embla Medical
  • Einar Pétursson (40), fjármálastjóri Securitas
  • Elín Edda Angantýsdóttir (39), fjármálastjóri Fastus
  • Elvar Þór Karlsson (35), forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans
  • Frímann Snær Guðmundsson (36), forstöðumaður í fyrirtækjaráðgjöf Deloitte
  • Gauti Geirsson (33), framkvæmdastjóri Háafells
  • Guðjón Ingi Guðlaugsson (38), forstöðumaður sérhæfðra lánveitinga Arion banka
  • Guðrún Olsen (33), forstöðumaður stefnu og umbreytinga Icelandair
  • Guðrún Valdís Jónsdóttir (32), forstöðumaður ráðgjafarsviðs Syndis
  • Gísli Kristjánsson (38), framkvæmdastjóri Vignis G. Jónssonar
  • Gylfi Þór Sigurðsson (37), forstöðumaður gagna og greininga Varðar
  • Heiða Halldórsdóttir (38), starfandi forstjóri Orkusölunnar
  • Hjalti Már Hauksson (39), forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Arion banka
  • Hlynur Ólafsson (38), framkvæmdastjóri FnF ehf.
  • Hrefna Sif Jónsdóttir (36), framkvæmdastjóri Tixly
  • Inga Lára Jónsdóttir (40), framkvæmdastjóri þjónustu og snjallra lausna HS Veitna
  • Ísak Pálmason (35), fjármálastjóri Hagkaups
  • Lilja Dögg Jónsdóttir (37), framkvæmdastýra Almannaróms
  • Lilja Ólafsdóttir (40), framkvæmdastjóri Straums
  • Lára Hrafnsdóttir (36), markaðsstjóri Sjóvá
  • Maren Lind Másdóttir (39), framkvæmdastjóri flugvallarþróunar og innviða hjá Isavia
  • Margrét Sveinsdóttir (35), forstöðumaður rekstrar og þróunar á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði Arion banka
  • Mímir Hafliðason (32), forstöðumaður viðskiptaþróunar Haga
  • Sandra Rán Ásgrímsdóttir (36), framkvæmdastjóri tæknisviðs COWI
  • Snorri Tómasson (32), forstöðumaður leiðakerfis- og áætlunardeildar Icelandair
  • Vala Hrönn Guðmundsdóttir (37), forstöðumaður fjármögnunar Kviku banka
  • Vordís Eiríksdóttir (37), forstöðumaður vindorku hjá Landsvirkjun
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Sýn og Síminn ekki í eina sæng
Peningar

Sýn og Síminn ekki í eina sæng

Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild
Innlent

Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild

Lögreglan rannsakar grunsamlegt andlát Þjóðverja á Kanarí
Heimur

Lögreglan rannsakar grunsamlegt andlát Þjóðverja á Kanarí

30 manns létust í ruslaslysi
Heimur

30 manns létust í ruslaslysi

Segja Nýja Landspítalann tilbúinn árið 2029
Innlent

Segja Nýja Landspítalann tilbúinn árið 2029

Jón Þór fær starf hjá Samherja
Fólk

Jón Þór fær starf hjá Samherja

Intróvertinn sem þurfti að verða extróvert
Viðtal
Stjórnandinn

Intróvertinn sem þurfti að verða extróvert

15 tekjukóngar Garðabæjar afhjúpaðir
Peningar

15 tekjukóngar Garðabæjar afhjúpaðir

Steinn Ármann Magnússon er fallinn frá
Minning

Steinn Ármann Magnússon er fallinn frá

Gullfallegt hús með afþreyingaraðstöðu til sölu
Myndir
Fólk

Gullfallegt hús með afþreyingaraðstöðu til sölu

Ragnar Þór skipar nýja nefnd
Pólitík

Ragnar Þór skipar nýja nefnd

Ólafur Ragnar og heyrúllurnar
Slúður

Ólafur Ragnar og heyrúllurnar

Kristín skipuð í glænýtt embætti
Innlent

Kristín skipuð í glænýtt embætti

Peningar

Sýn og Síminn ekki í eina sæng
Peningar

Sýn og Síminn ekki í eina sæng

Eyfi lifir í draumi í nýju fyrirtæki
Peningar

Eyfi lifir í draumi í nýju fyrirtæki

15 tekjukóngar Garðabæjar afhjúpaðir
Peningar

15 tekjukóngar Garðabæjar afhjúpaðir

16 sem finnst gott að búa í Kópavogi og græða pening
Peningar

16 sem finnst gott að búa í Kópavogi og græða pening

17 tekjuhæstu Reykvíkingarnir opinberaðir
Peningar

17 tekjuhæstu Reykvíkingarnir opinberaðir

Kranakall skattakóngur 2025 á Íslandi
Peningar

Kranakall skattakóngur 2025 á Íslandi

Loka auglýsingu