Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu

„Það er svo sann­ar­lega þörf á hraða­mæl­ingum“

Lögreglumaður við störf
Lög­reglu­maður við störf Mynd: BHJ

Lög­reglan á Vest­ur­landi hefur borið kennsl á ein­stak­ling sem grun­aður er um að hafa átt við hraða­mynda­vél lög­reglu á Vest­ur­lands­vegi með þeim afleið­ingum að mynda­vélin gat ekki myndað hraðakst­urs­brot. Atvikið hefur vakið nokkra umræðu og sitt sýn­ist hverjum um stað­setn­ingu hraða­eft­ir­lits­ins.

Atvikið átti sér stað 23. októ­ber þegar hraða­mynda­véla­bif­reið Lög­regl­unnar á Vest­ur­landi var við hraða­mæl­ingar á Vest­ur­lands­vegi. Að sögn lög­reglu hafði verið límt yfir linsu mynda­vél­ar­innar og var hún því óvirk um tíma.

Lög­reglan segir á Facebook slíka hátt­semi hafa bein áhrif á umferð­ar­eft­ir­lit enda gegni hraða­mynda­vélar mik­il­vægu hlut­verki við að fylgj­ast með hraðakstri og stuðla að auknu umferð­ar­ör­yggi.

Málið sé enn alvar­legra vegna þess að flutn­inga­bif­reið hafi verið stöðvuð á akrein við gatna­mót þegar átt var við mynda­vél­ina. Þar sé umferð jafnan mikil og hröð og hafi því skap­ast hætta fyrir aðra veg­far­endur.

Lög­reglan hefur borið kennsl á þann sem grun­aður er um verkn­að­inn og er málið til rann­sóknar vegna gruns um lög­brot.

Gagnrýna staðsetningu hraðaeftirlitsins

Færsla lög­regl­unnar hefur vakið umræður á sam­fé­lags­miðlum þar sem meðal ann­ars hefur verið deilt um stað­setn­ingu hraða­mynda­vél­ar­innar.

Snorri Már Lárusson gagn­rýnir eft­ir­litið og telur aðstæður á umræddum stað skipta máli. Hann segir hámarks­hraða þar hafa verið lækk­aðan tíma­bundið vegna vega­vinnu en að hraða­mæl­ingin hafi farið fram utan vinnu­tíma.

„Ég tel ekki að um umferð­ar­eft­ir­lit sé að ræða þegar þið plantið þessum bíl þar sem hámarks­hraði hefur verið lækk­aður tíma­bundið vegna vega­vinnu og það utan vinnu­tíma,“ segir Snorri Már og bætir við að slíkt kall­ist „norna­veiðar á heið­ar­legri íslensku“.

Olafur Olafsson er ósam­mála þeirri gagn­rýni og telur fulla þörf á hraða­mæl­ingum við vinnu­svæði. Hann segir lækk­aðan hámarks­hraða meðal ann­ars vera ætl­aðan til að vernda þá sem starfa við vega­vinnu.

„Það er svo sann­ar­lega þörf á hraða­mæl­ingum á og við vinnu­svæði þar sem hámarks­hraði hefur verið tek­inn niður tíma­bundið,“ segir Olafur og bendir á að starfs­fólk við vega­vinnu geti verið í mik­illi hættu vegna öku­manna sem virði ekki aðstæður.

Ægir Eyberg gagn­rýnir einnig stað­setn­ingu hraða­mynda­vél­ar­innar og telur lög­reglu geta nýtt eft­ir­litið ann­ars staðar. Hann segir nær að stað­setja bíl­inn á köflum þar sem 90 kíló­metra hámarks­hraði gildi fremur en að „veiða fólk á 70 kafl­anum“ við verk­smiðj­urnar.

Ægir bendir jafn­framt á að lög­regla mætti beina sjónum sínum að öku­mönnum sem stöðvi bif­reiðar í útskotum við veg­inn, meðal ann­ars til að taka myndir, klappa hestum eða athuga sím­ann. Að hans sögn séu slík útskot ætluð til þess að umferð þurfi ekki að stöðvast vegna öku­tækja sem hyggj­ast beygja til vinstri.

Hann tekur þó fram að lög­reglan sé oft sýni­leg á þjóð­veg­inum á svæð­inu og segir það jákvætt.

Lög­reglan á Vest­ur­landi minnir á að hraða­eft­ir­lit sé mik­il­vægur þáttur í umferð­ar­ör­yggi og að hvers kyns tálmun á störfum lög­reglu geti haft alvar­legar afleið­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Landið

Leifar af skála frá land­náms­tíma fund­ust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp