1
Heimur

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára

2
Heimur

Höfundur South Park nafngreinir hópnauðgara við Cornell-háskóla

3
Heimur

Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga

4
Fólk

Halla og Skjöldur setja á markað íslenska förðunarmerkið Just Makeup

5
Innlent

Tveir ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Vopnafirði

6
Heimur

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás

7
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

8
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

9
Innlent

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum

10
Innlent

Öllu starfsfólki NetApp á Íslandi sagt upp

Til baka

Meta getur nú lesið einkaskilaboð notenda Instagram

Fyrirtækið hætti að bjóða upp á enda-til-enda dulkóðun í gær.

Mark Zuckerberg
Mark Zuckerberg, framkvæmdarstjóri METAZuckerberg er afar umdeildur milljarðamæringur
Mynd: WALLY SKALIJ / GETTY IMAGES VIA AFP

Notendur Instagram geta ekki lengur sent svokölluð ofurörugg einkaskilaboð eftir að fyrirtækið ákvað að slökkva á enda-til-enda dulkóðun (E2EE) í skilaboðakerfi appsins um allan heim, í gær. Þetta kemur fram í frétt BBC.

Ákvörðunin markar mikla stefnubreytingu hjá móðurfélaginu Meta sem hafði áður lýst tækninni sem gullstaðli í persónuvernd á netinu.

Enda-til-enda dulkóðun er talin öruggasta form netsamskipta þar sem einungis sendandi og móttakandi geta lesið skilaboðin. Gagnrýnendur hafa þó lengi haldið því fram að tæknin geri yfirvöldum erfiðara fyrir að stöðva dreifingu skaðlegs eða ólöglegs efnis á netinu.

Með breytingunni mun Instagram nú geta nálgast innihald einkaskilaboða notenda, þar á meðal myndir, myndbönd og hljóðskilaboð.

Meta hafði árið 2019 lofað að innleiða enda-til-enda dulkóðun á samskiptakerfi Facebook Messenger og Instagram undir slagorðinu „framtíðin er prívat“. Kerfið var tekið í notkun á Messenger árið 2023 og síðar boðið sem valkostur á Instagram með það að markmiði að gera það sjálfgefið síðar meir.

Nú hefur fyrirtækið hins vegar hætt við þá áætlun eftir sjö ára þróunarvinnu. Framvegis verður aðeins boðið upp á hefðbundna dulkóðun á Instagram, sambærilega þeirri sem notuð er í þjónustum á borð við Gmail.

Skiptar skoðanir

Barnaverndarsamtök hafa fagnað ákvörðuninni. NSPCC, sem hefur lengi varað við áhættu tengdri enda-til-enda dulkóðun, segir tæknina geta auðveldað gerendum að fela misnotkun barna.

Persónuverndarsinnar hafa hins vegar gagnrýnt breytinguna harðlega. Big Brother Watch segir ákvörðunina vera skref aftur á bak og óttast að Meta sé að gefa eftir fyrir þrýstingi stjórnvalda.

Meta tilkynnti breytinguna ekki opinberlega heldur uppfærði skilmála Instagram hljóðlega í mars. Þar kemur fram að enda-til-enda dulkóðuð skilaboð verði ekki lengur studd eftir 8. maí 2026.

Fyrirtækið segir ástæðuna vera þá að of fáir notendur hafi kosið að virkja eiginleikann. Sérfræðingar benda þó á að notkun valfrjálsra öryggiseiginleika sé oft lítil þar sem notendur þurfi sjálfir að virkja þá sérstaklega.

Sumir sérfræðingar telja einnig að ákvörðunin tengist aukinni áherslu Meta á þróun gervigreindar. Victoria Baines, prófessor í upplýsingatækni við Gresham College, segir samskiptagögn notenda geta verið afar verðmæt við þjálfun gervigreindarlíkana.

Meta hefur áður sagt að einkaskilaboð á Instagram séu ekki notuð til að þjálfa gervigreind fyrirtækisins.

Á meðan halda mörg önnur skilaboðaforrit áfram að nota enda-til-enda dulkóðun sjálfgefið, þar á meðal Signal, WhatsApp, iMessage frá Apple og Google Messages frá Google.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar
Innlent

Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar

„Ávísun á aukin félagsleg vandamál“
Skellur í september – Verðbólgan í hæstu hæðir í meira en tvö ár
Innlent

Skellur í september – Verðbólgan í hæstu hæðir í meira en tvö ár

Chad Lowe og Kim Painter syrgja 13 ára dóttur sína
Heimur

Chad Lowe og Kim Painter syrgja 13 ára dóttur sína

Gripinn við „afbrigðilega hegðun“ í Breiðholti
Innlent

Gripinn við „afbrigðilega hegðun“ í Breiðholti

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

Svara versnandi líðan barna
Innlent

Svara versnandi líðan barna

Ný barnabók kennir börnum að greina á milli góðra og vondra leyndarmála
Myndir
Menning

Ný barnabók kennir börnum að greina á milli góðra og vondra leyndarmála

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum
Innlent

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás
Heimur

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás

Erlendum nemendum fjölgar á meðan færri Íslendingar fara utan
Innlent

Erlendum nemendum fjölgar á meðan færri Íslendingar fara utan

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára
Heimur

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára

Heimur

Chad Lowe og Kim Painter syrgja 13 ára dóttur sína
Heimur

Chad Lowe og Kim Painter syrgja 13 ára dóttur sína

„Systur hennar dýrkuðu hana og hún var innilega elskuð af foreldrum sínum. Í raun var hún ljósið í lífi okkar“
James Acaster fékk kvíðakast við tökur á Celebrity Traitors
Heimur

James Acaster fékk kvíðakast við tökur á Celebrity Traitors

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás
Heimur

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára
Heimur

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára

Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga
Heimur

Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga

Íranar vara við orkuskorti í vetur eftir árásir Bandaríkjanna og Ísraels
Heimur

Íranar vara við orkuskorti í vetur eftir árásir Bandaríkjanna og Ísraels

Loka auglýsingu