1
Peningar

15 tekjukóngar Garðabæjar afhjúpaðir

2
Minning

Steinn Ármann Magnússon er fallinn frá

3
Fólk

Gullfallegt hús með afþreyingaraðstöðu til sölu

4
Heimur

30 manns létust í ruslaslysi

5
Fólk

Jón Þór fær starf hjá Samherja

6
Stjórnandinn

Intróvertinn sem þurfti að verða extróvert

7
Peningar

Sýn og Síminn ekki í eina sæng

8
Innlent

Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild

9
Heimur

Lögreglan rannsakar grunsamlegt andlát Þjóðverja á Kanarí

10
Innlent

Segja Nýja Landspítalann tilbúinn árið 2029

Til baka

Móðurfélag Ölgerðarinnar hagnaðist gríðarlega

Samdráttur í kjarnarekstri og boðaðar verðhækkanir

Ölgerðin
Rekstur eldri hluta samstæðunnar, Ölgerðarinnar og Danól, var undir væntingum stjórnenda en sala þeirra jókst aðeins um 1,2 prósent.
Mynd: Skjáskot/ja.is

Bera, móðurfélag Ölgerðarinnar, hagnaðist um 398 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi fjárhagsársins og jókst hagnaðurinn lítillega á milli ára. Samkvæmt nýbirtu árshlutauppgjöri jókst sala samstæðunnar um tæp 15 prósent og rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) um 26 prósent, sem nemur 1.225 milljónum króna.

Vöxturinn skýrist hins vegar alfarið af nýjum kaupum, en félögin Gæðabakstur og Kjarnavörur bættust við samstæðuna í desember sl. og lögðu til 285 milljónir króna í rekstrarhagnað. Ef þessi félög eru undanskilin nam EBITDA eldri hluta samstæðunnar 940 milljónum króna, sem er samdráttur úr 970 milljónum á sama tíma í fyrra.

Samdráttur í kjarnarekstri og boðaðar verðhækkanir

Rekstur eldri hluta samstæðunnar, Ölgerðarinnar og Danól, var undir væntingum stjórnenda en sala þeirra jókst aðeins um 1,2 prósent. Rekstrarafkoma þeirra versnaði sömuleiðis; EBITDA Ölgerðarinnar lækkaði um 137 milljónir króna og Danól um 37 milljónir króna, sem rakið er til minni sölu til hótela og veitingastaða.

Til að bregðast við hækkandi framleiðslukostnaði vegna hækkana á olíu- og álverði á heimsmarkaði hefur Ölgerðin boðað verðhækkanir á vörum sínum sem taka gildi eftir viku. Drykkir í dós hækka um 2,1 prósent (Collab þó um 1,1 prósent), drykkir í plasti um 1,1 prósent og aðrar framleiðsluvörur um 0,8 prósent.

Áhrif á verðbólgu og kjarasamninga

Verðhækkanirnar munu að öllum líkindum hafa áhrif á þróun verðbólgu, sem mældist 5,2 prósent í síðustu mælingu Hagstofunnar. Matar- og drykkjarvörur hafa þegar hækkað um 3,9 prósent á síðustu tólf mánuðum, sem hefur aukið verðbólgu um 0,6 prósentustig.

Ef verðbólga reynist yfir 4,7 prósentum í ágústmælingu mun forsenduákvæði kjarasamninga virkjast, sem heimilar að þeir verði teknir upp að nýju. Ríkisstjórnin greip til þess ráðs í vor að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti úr 24 prósentum í 11 prósent til að milda áhrifin, sem átti að lækka vísitölu neysluverðs tímabundið um 0,3 prósentustig.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Sýn og Síminn ekki í eina sæng
Peningar

Sýn og Síminn ekki í eina sæng

Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild
Innlent

Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild

Lögreglan rannsakar grunsamlegt andlát Þjóðverja á Kanarí
Heimur

Lögreglan rannsakar grunsamlegt andlát Þjóðverja á Kanarí

30 manns létust í ruslaslysi
Heimur

30 manns létust í ruslaslysi

Segja Nýja Landspítalann tilbúinn árið 2029
Innlent

Segja Nýja Landspítalann tilbúinn árið 2029

Jón Þór fær starf hjá Samherja
Fólk

Jón Þór fær starf hjá Samherja

Intróvertinn sem þurfti að verða extróvert
Viðtal
Stjórnandinn

Intróvertinn sem þurfti að verða extróvert

15 tekjukóngar Garðabæjar afhjúpaðir
Peningar

15 tekjukóngar Garðabæjar afhjúpaðir

Steinn Ármann Magnússon er fallinn frá
Minning

Steinn Ármann Magnússon er fallinn frá

Gullfallegt hús með afþreyingaraðstöðu til sölu
Myndir
Fólk

Gullfallegt hús með afþreyingaraðstöðu til sölu

Ragnar Þór skipar nýja nefnd
Pólitík

Ragnar Þór skipar nýja nefnd

Ólafur Ragnar og heyrúllurnar
Slúður

Ólafur Ragnar og heyrúllurnar

Kristín skipuð í glænýtt embætti
Innlent

Kristín skipuð í glænýtt embætti

Peningar

Sýn og Síminn ekki í eina sæng
Peningar

Sýn og Síminn ekki í eina sæng

Eyfi lifir í draumi í nýju fyrirtæki
Peningar

Eyfi lifir í draumi í nýju fyrirtæki

15 tekjukóngar Garðabæjar afhjúpaðir
Peningar

15 tekjukóngar Garðabæjar afhjúpaðir

16 sem finnst gott að búa í Kópavogi og græða pening
Peningar

16 sem finnst gott að búa í Kópavogi og græða pening

17 tekjuhæstu Reykvíkingarnir opinberaðir
Peningar

17 tekjuhæstu Reykvíkingarnir opinberaðir

Kranakall skattakóngur 2025 á Íslandi
Peningar

Kranakall skattakóngur 2025 á Íslandi

Loka auglýsingu