1
Fólk

Björgvin Franz kominn með kærustu

2
Minning

Egill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París

3
Minning

Leikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin

4
Heimur

„Looksmaxxing“ stjarnan Connor Murphy drukknaði í Taílandi

5
Minning

Hörður Torfa kveður Megas

6
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

7
Sport

Áhyggjur af veikindum í norska liðinu

8
Fólk

Björk komin með kærustu

9
Heimur

Kona og karl drukknuðu á Kanarí

10
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Til baka

Netglæpum fjölgar á Íslandi

Lögreglan hvetur fólk til að vera áfram á varðbergi

Netafbrot
NetglæponÞessi mikla fjölgun gefur til kynna að almenningur sé sífellt betur vakand
Mynd: Unsplash/Clint Patterson

Tilkynningum til Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um tilraunir til netbrota heldur áfram að fjölga það sem af er ári. Á sama tíma er ekki að sjá sömu hlutfallslegu fjölgun netbrota.

Á fyrri helmingi ársins 2026 bárust lögreglu 1.745 ábendingar um tilraunir til netbrota, samanborið við 552 ábendingar allt árið 2025 og 153 árið 2024. Þessi mikla fjölgun gefur til kynna að almenningur sé sífellt betur vakandi fyrir tilraunum af þessu tagi og láti vita af þeim.

Fyrstu sex mánuði ársins var tilkynnt um 91 netbrot. Útlit er fyrir að fjöldi netbrota verði í árslok svipaður og heildarfjöldi brota 2025, þ.e. að þrátt fyrir að ábendingum um tilraunir hafi fjölgað margfalt, fjölgi tilkynntum brotunum ekki. Aukin fræðsla til almennings og meiri árvekni virðist því vera að skila sér í því að draga úr árangri brotamanna og koma í veg fyrir fjárhagslegt tjón. 

Tjón í einstökum málum verulegt

Fjárhagslegt tjón netbrota sem tilkynnt hafa verið til LRH það sem af er ári nemur nú þegar 427 milljónum króna. Til samanburðar nam tilkynnt tjón 586 milljónum króna allt árið 2025 og 191 milljón króna árið 2024. Þrátt fyrir að brotum fjölgi ekki er tjónið í einstökum málum þó enn verulegt.

Langflestar tilkynningar til lögreglu vegna tilrauna til netbrota, eru fjarskiptasvik (e. telecom fraud) og tölvupóstveiðar (e. phishing). Þau brot sem valda hins vegar mestu fjárhagslegu tjóni eru fyrst og fremst þróaðri svik, svo sem fjárfestingasvik (e. investment fraud), ástarsvik (e. romance scam) og fölsk fyrirmæli (e. BEC/CEO fraud), en þau síðast nefndu valda að jafnaði mestu fjárhagslegu tjóni.

Þróunin í  ár gefur jákvæðar vísbendingar um að fræðsla og aukin vitund almennings geri fleiri í stakk búin til að þekkja og tilkynna netbrotatilraunir. Brotamenn halda þó áfram að þróa aðferðir sínar og beina í auknum mæli sjónum að flóknari og markvissari brotum þar sem hvert brot getur valdið mjög miklu fjárhagslegu tjóni.

Netbrot og fjárhagstjón

Lögreglan hvetur því fólk til að vera áfram á varðbergi, ræða opinskátt um netbrot og tilkynna tilraunir sem það verður fyrir. Aukin þekking á aðferðum brotamanna eykur líkurnar á að hægt sé að koma í veg fyrir brot og fjárhagslegt tjón.

Telji fólk sig hafa orðið fyrir netbroti og fjárhagstjóni er því bent á að hafa strax samband við sinn viðskiptabanka, fá þar ráðgjöf og í framhaldinu tilkynna málið til lögreglu. Það má t.a.m. gera í gegnum Ísland.is.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Hermannaveiki herjar á New York-búa
Heimur

Hermannaveiki herjar á New York-búa

Einkenni koma fram 2 til 14 dögum eftir smit
Íran sakar Bandaríkin um árás á virkt kjarnorkuver
Heimur

Íran sakar Bandaríkin um árás á virkt kjarnorkuver

„Er „Áfram Ísland!“ í raun og veru „Stopp nú, Ísland!“ hreyfingin?“
Pólitík

„Er „Áfram Ísland!“ í raun og veru „Stopp nú, Ísland!“ hreyfingin?“

Maður skar af sér liminn og bar eld að
Heimur

Maður skar af sér liminn og bar eld að

Enginn hefur hlaupið hraðar yfir Ísland
Innlent

Enginn hefur hlaupið hraðar yfir Ísland

Getur misst af tveimur milljörðum eftir mistök í verslun
Heimur

Getur misst af tveimur milljörðum eftir mistök í verslun

Kona og karl drukknuðu á Kanarí
Heimur

Kona og karl drukknuðu á Kanarí

Aukin sálarró á miðjum aldri: 8 atriði sem hjálpa
Fólk

Aukin sálarró á miðjum aldri: 8 atriði sem hjálpa

Maður sem sýndi HM-leiki á Gaza drepinn af Ísraelum
Heimur

Maður sem sýndi HM-leiki á Gaza drepinn af Ísraelum

Straumhvörf í endómetríósugreiningu
Innlent

Straumhvörf í endómetríósugreiningu

Rokkdrottningin Bonnie Tyler látin
Heimur

Rokkdrottningin Bonnie Tyler látin

Rutte krafinn svara eftir þögn við hlið Trump
Myndband
Heimur

Rutte krafinn svara eftir þögn við hlið Trump

Innlent

Netglæpum fjölgar á Íslandi
Innlent

Netglæpum fjölgar á Íslandi

Lögreglan hvetur fólk til að vera áfram á varðbergi
Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann
Innlent

Lárus Már dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumann

Enginn hefur hlaupið hraðar yfir Ísland
Innlent

Enginn hefur hlaupið hraðar yfir Ísland

Straumhvörf í endómetríósugreiningu
Innlent

Straumhvörf í endómetríósugreiningu

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur
Innlent

Fánamálið rannsakað sem hatursglæpur

Lögreglan leitar að tveimur mönnum
Innlent

Lögreglan leitar að tveimur mönnum

Loka auglýsingu