1
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

2
Innlent

Óska eftir nýjum presti í Kópavogi

3
Innlent

Morðinginn Matthías kominn á Vernd

4
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

5
Innlent

Matvælastofnun varar við innkölluðum baunum

6
Innlent

Arnar Már hrækti á lögreglumann

7
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

8
Heimur

Kate fagnar stórum áfanga með konungsfjölskyldunni

9
Heimur

11 ára stúlka lifði af skot í hausinn

10
Heimur

Prins Harry fær ekki að gista í Buckingham-höll

Til baka

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi karlmann í fangelsi fyrir ítrekuð ofbeldisbrot gegn sambýliskonu sinni

Hamar dómur
Dómur er fallinnMyndin tengist ekki fréttinni beint.
Mynd: Shutterstock

Karlmaður hefur verið dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir ítrekað og alvarlegt ofbeldi gegn sambýliskonu sinni á tímabilinu frá nóvember 2025 til mars 2026. Hann játaði sök fyrir Héraðsdómi Vesturlands og samþykkti jafnframt að greiða brotaþola 4,4 milljónir króna í miskabætur.

Samkvæmt dóminum beitti maðurinn konuna ítrekuðu ofbeldi í þremur aðskildum tilvikum.

Í fyrsta atvikinu, í lok nóvember 2025, réðst hann á hana utandyra þar sem hann sló hana ítrekað í andlitið, sparkaði í hana, tók hana hálstaki, kastaði henni í jörðina og dró hana eftir jörðinni. Konan hlaut áverka á andliti, hálsi, höndum og fótum auk þess að verða fyrir mikilli geðshræringu.

Í janúar 2026 tók hann harkalega utan um kjálka og háls hennar og kreisti, auk þess sem hann sló hana í höfuðið. Við árásina hlaut hún mar á hálsi og áverka á höfði.

Í mars sama ár réðst hann síðan á konuna á ný með því að slá hana í andlitið, þrýsta höfði hennar að hörðu yfirborði og taka hana hálstaki. Afleiðingarnar voru meðal annars kúla á enni, sár á nefi, gat á hljóðhimnu með blæðingu, gripför á hálsi og marblettir víðs vegar um líkamann.

Auk ofbeldisbrotanna var maðurinn sakfelldur fyrir að aka vörubifreið sviptur ökurétti í nóvember 2025. Hann missti stjórn á bifreiðinni og hafnaði utan vegar skammt frá gatnamótum Suðurlandsvegar og Ölfusvegar.

Við ákvörðun refsingar lagði dómurinn áherslu á alvarleika ofbeldisins, sérstaklega að árásirnar beindust ítrekað að höfði og hálsi brotaþolans, sem gæti haft mjög alvarlegar afleiðingar. Honum var þó gefið til málsbóta að hafa játað brotin tafarlaust og samþykkt bótakröfuna. Verjandi hans upplýsti jafnframt að maðurinn hefði leitað sér aðstoðar vegna áfengisvanda og snúið við blaðinu.

Dómurinn taldi þó brotin það alvarleg að ekki kæmi til greina að skilorðsbinda refsinguna.

Brotaþolan fær dæmdar 4,4 milljónir króna í miskabætur auk vaxta og dráttarvaxta. Þá var manninum einnig gert að greiða tæpar 2,7 milljónir króna í sakarkostnað.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust
Landið

Eldur lagði skemmu í rúst á sama tíma og fjögur sjúkraútköll bárust

„Sem fer betur búum við vel að því að hafa gott fólk og gott viðbragð“
Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum
Pólitík

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna
Heimur

Notuðu rafhlaupahjól við sölu fíkniefna

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana
Heimur

Rússar bókstaflega farnir að slást um bensíndropana

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum
Myndband
Fólk

Edda gerir stólpagrín að hvalveiðimönnum

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“
Heimur

„Þeir komu með mig hingað til að drepa mig“

Aftur gremja vegna Margrétar
Slúður

Aftur gremja vegna Margrétar

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína
Heimur

Játar loks að hafa myrt eiginkonu sína

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Prins Harry fær ekki að gista í Buckingham-höll
Heimur

Prins Harry fær ekki að gista í Buckingham-höll

Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað
Innlent

Ógnaði lífi sambýliskonu sinnar ítrekað

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi karlmann í fangelsi fyrir ítrekuð ofbeldisbrot gegn sambýliskonu sinni
Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi  þjóðaratkvæðagreiðslu
Innlent

Lofa hlutlausum upplýsingum um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni
Innlent

Innkalla föndursett sem valdið getur heilsutjóni

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu
Innlent

Kannabisræktendur gripnir glóðvolgir af lögreglu

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti
Innlent

Guðbjörg Rósa og Vera Dögg berjast um eftirsótt embætti

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Dásamar Íslendinga í erfiðum aðstæðum á Keflavíkurflugvelli

Loka auglýsingu