
Karlmaður hefur verið dæmdur í tíu mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir fjölda brota, þar á meðal þjófnaði, nytjastuld og umferðarlagabrot. Hann játaði brotin skýlaust fyrir dómi.
Brotin voru framin frá nóvember 2024 til apríl 2025. Meðal þeirra var innbrot í bifreið í nóvember 2024 þar sem stolið var tveimur rafmagnsgíturum og hljóðblöndunartæki. Verðmæti búnaðarins var talið um 1,5 milljónir króna.
Í mars 2025 tók maðurinn armbandsúr og tvær leðurólar úr skartgripaverslun í Reykjavík án þess að greiða fyrir vörurnar. Söluverðmæti þeirra var tæplega 47 þúsund krónur.
Nokkrum dögum síðar tók hann bifreið í heimildarleysi og ók henni um Borgartún í Reykjavík þrátt fyrir að vera sviptur ökurétti. Í blóðsýni hans mældust amfetamín, klónazepam og oxýkódon.
Maðurinn sinnti ekki fyrirmælum lögreglu um að stöðva bifreiðina. Hann ók meðal annars gegn rauðu ljósi á gatnamótum Borgartúns og Hallgerðargötu og Borgartúns og Kringlumýrarbrautar. Þá ók hann yfir á öfugan vegarhelming áður en lögreglu tókst að stöðva för hans við Sóltún.
Ítrekað dæmdur fyrir sambærileg brot
Maðurinn var einnig sakfelldur fyrir innbrot á veitingastað í apríl 2025. Þaðan stal hann peningaskúffu, spjaldtölvu og reiðufé. Þá stal hann um 100 þúsund krónum úr peningaskúffu verslunar og braust inn í bifreið við bensínstöð þar sem hann stal fatnaði.
Í dóminum kemur fram að maðurinn eigi umfangsmikinn sakaferil að baki. Hann hefur ítrekað verið dæmdur fyrir þjófnaði, önnur auðgunarbrot og umferðarlagabrot.
Með nýja dóminum hefur hann í sjöunda sinn verið fundinn sekur um akstur undir áhrifum áfengis eða ávana og fíkniefna. Þá er þetta í fjórða sinn sem hann er sakfelldur fyrir akstur þrátt fyrir sviptingu ökuréttar.
Dómurinn taldi játningu mannsins horfa honum til málsbóta en sakaferil hans til refsiþyngingar. Ekki þótti tilefni til að skilorðsbinda refsinguna.
Maðurinn var því dæmdur í tíu mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar hans áréttuð. Þá var honum gert að greiða rúmlega 1,15 milljónir króna í sakarkostnað.