
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) vekur athygli á því að Olís hefur innkallað fjórar tegundir sólgleraugna sem seldar hafa verið á bensínstöðvum fyrirtækisins vegna mögulegrar öryggisáhættu.
Ástæða innköllunarinnar er sú að gleraugun eru ekki CE-merkt og skortir jafnframt lögboðnar upplýsingar, meðal annars um síuflokk linsanna. Vegna þess er ekki hægt að staðfesta að vörurnar uppfylli gildandi öryggiskröfur.
Samkvæmt HMS er ekki hægt að útiloka að um sé að ræða sólgleraugu í síuflokki 4. Slík gleraugu hleypa mjög litlu ljósi í gegnum linsurnar og eru ekki ætluð til notkunar við akstur þar sem þau geta skert skyggni verulega og aukið slysahættu.
Olís hvetur alla sem hafa keypt einhver þessara sólgleraugna til að hætta notkun þeirra tafarlaust og skila þeim á næstu Olís- eða ÓB-stöð.
Við skil fá viðskiptavinir kaupverð endurgreitt að fullu eða geta valið önnur sólgleraugu í staðinn.
Í tilkynningu fyrirtækisins biðst Olís velvirðingar á þeim óþægindum sem innköllunin kann að valda og segir öryggi viðskiptavina ávallt vera í fyrirrúmi.
