1
Peningar

Icelandair skerðir þjónustu við farþega

2
Landið

Bergey valin fram yfir tíu aðra umsækjendur

3
Pólitík

Dóttir fyrrverandi forsætisráðherra aðstoðar núverandi borgarstjóra

4
Fólk

Níu matvæli sem aldrei ætti að gefa köttum

5
Fólk

Ofurkrúttlegt og agnarsmátt einbýli til sölu

6
Fólk

Einmanaleg glíma þeirra sem rjúfa fjölskyldubönd

7
Pólitík

Þórður Snær hvetur Íslendinga til að hlusta á Bjarna Ben

8
Innlent

Dæmdir fyrir að stela milljónaskartgripum í Hafnarfirði

9
Fólk

Draumaraðhús í Garðabæ sett á sölu

10
Innlent

Sækir gegn íslenska ríkinu en varar við ESB

Til baka

Rauði krossinn undirbýr viðbragð vegna sólmyrkvans

Fimm atriði til að hafa á hreinu áður en lagt er af stað að sjá sólmyrkvann.

Sólmykrvi
Sólmyrkvinn sést 12. ágústFerðalög sem þessi kefjast undirbúnings
Mynd: Daniel Gomez á Unsplash

Rauði krossinn verður í viðbragðsstöðu um allt vestanvert land þegar almyrkvi verður á sólu 12. ágúst. Neyðarvarnateymi félagsins og hópur sjálfboðaliða verða sérstaklega til taks á Snæfellsnesi og Vestfjörðum, þar sem búist er við miklum fjölda ferðamanna.

Í tilkynningu frá Rauða krossinum segir að undirbúningur hafi staðið yfir í marga mánuði í samstarfi við aðra viðbragðsaðila. Félagið verður meðal annars með sérútbúnar neyðarvarnakerrur, rúm, teppi og stórt tjald á sunnanverðum Vestfjörðum sem hægt verður að reisa hratt ef þörf krefur.

„Mottó Rauða krossins er að vera tilbúinn að bregðast við ef hættu- eða neyðarástand skapast og fólk þarf af einhverjum ástæðum á stuðningi okkar að halda,“ segir Aðalheiður Jónsdóttir, teymisstjóri neyðarvarna hjá Rauða krossinum.

Hún bendir á að búast megi við mikilli umferð bæði smærri og stærri ökutækja um svæði sem víða séu viðkvæm og utan alfaraleiða. Þá geti veður, aukin flugumferð og fjöldi skemmtiferðaskipa við vesturströndina einnig haft áhrif á aðstæður.

„Ef slys verða eða annars konar áföll henda verður Rauði krossinn tilbúinn til aðstoðar og getur komið upp fjöldahjálparstöð í tjaldinu eða hentugu húsnæði gerist þess þörf,“ segir Aðalheiður.

Rauði krossinn hvetur fólk til að nýta skipulagða áhorfsstaði í heimabyggð sinni þegar kostur er. Um 70 prósent landsmanna munu geta séð almyrkvann frá heimahögum sínum og þurfi því ekki að ferðast langar leiðir.

Jafnframt er fólk hvatt til að undirbúa ferðalög vel, leggja tímanlega af stað og gera ráð fyrir umferðartöfum.

„Við biðlum til þeirra sem ætla að vera á ferðinni að leggja tímanlega af stað og fara að öllu með gát við þessar óvenjulegu aðstæður svo að sem flest geti notið þessa stórkostlega sjónarspils sem almyrkvinn verður,“ segir Aðalheiður.

Rauði krossinn minnir einnig ökumenn á að hafa viðlagakassa í bílnum með meðal annars vatni, nesti, hlýjum fötum, teppi, hleðslubanka fyrir síma og skyndihjálpartösku, auk þess að fylla á bílinn áður en lagt er af stað og gleyma ekki sólmyrkvagleraugunum.

Hér má lesa fimm atriði sem Rauði krossinn bendir fólki á að gera áður en lagt er af stað í ferðalagið.

  1. Útbúðu viðlagakassa í bílinn. Í hann skaltu t.d. setja vatn, nesti, hreinlætisvörur, teppi, hlý föt, aukaskó, hleðslubanka fyrir símann og skyndihjálpartösku.
  2. Fylgstu vel með veðurspá og leiðbeiningum frá yfirvöldum, s.s. um umferðartakmarkanir.
  3. Fylltu á bílinn (eldsneytistankinn eða rafhlöðuna).
  4. Leggðu tímanlega af stað og ekki flýta þér heim.
  5. Mundu eftir sólmyrkvagleraugunum!
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Líkfundur við Austurbæjarskóla
Innlent

Líkfundur við Austurbæjarskóla

Lögregla vinnur nú að því að bera kennsl á hinn látna
Heilbrigðiseftirlitið innkallar krydd vegna aðskotahluta
Innlent

Heilbrigðiseftirlitið innkallar krydd vegna aðskotahluta

„Okkur þykir það mjög leitt“
Innlent

„Okkur þykir það mjög leitt“

Skilur að Ása Berglind vilji ekki mæta í spjallþátt
Innlent

Skilur að Ása Berglind vilji ekki mæta í spjallþátt

Baywatch-stjarna skellir sér á OnlyFans
Heimur

Baywatch-stjarna skellir sér á OnlyFans

Limminnsti maður heims fer í aðgerð
Heimur

Limminnsti maður heims fer í aðgerð

„Ég hugsa að við tímum ekki að selja þetta“
Peningar

„Ég hugsa að við tímum ekki að selja þetta“

Brjóstabrandari forsætisráðherra Ástralíu fór fyrir brjóstið á mörgum
Heimur

Brjóstabrandari forsætisráðherra Ástralíu fór fyrir brjóstið á mörgum

Landskjörstjórn segir Morgunblaðið fara með rangt mál
Innlent

Landskjörstjórn segir Morgunblaðið fara með rangt mál

Fyrrum bæjarfulltrúi gerður að framkvæmdastjóra
Peningar

Fyrrum bæjarfulltrúi gerður að framkvæmdastjóra

Segir múslimskar konur settar í búr á Íslandi
Myndband
Innlent

Segir múslimskar konur settar í búr á Íslandi

Sæstrengur færður vegna Harry Potter-aðdáenda
Heimur

Sæstrengur færður vegna Harry Potter-aðdáenda

Ofurkrúttlegt og agnarsmátt einbýli til sölu
Myndir
Fólk

Ofurkrúttlegt og agnarsmátt einbýli til sölu

Innlent

Líkfundur við Austurbæjarskóla
Innlent

Líkfundur við Austurbæjarskóla

Lögregla vinnur nú að því að bera kennsl á hinn látna
Segir múslimskar konur settar í búr á Íslandi
Myndband
Innlent

Segir múslimskar konur settar í búr á Íslandi

Heilbrigðiseftirlitið innkallar krydd vegna aðskotahluta
Innlent

Heilbrigðiseftirlitið innkallar krydd vegna aðskotahluta

„Okkur þykir það mjög leitt“
Innlent

„Okkur þykir það mjög leitt“

Skilur að Ása Berglind vilji ekki mæta í spjallþátt
Innlent

Skilur að Ása Berglind vilji ekki mæta í spjallþátt

Landskjörstjórn segir Morgunblaðið fara með rangt mál
Innlent

Landskjörstjórn segir Morgunblaðið fara með rangt mál

Loka auglýsingu