1
Heimur

Fjarlægðu 200 tonn af blautþurrkum á vinsælum áfangastað Íslendinga

2
Fólk

Forstjóri selur höll á toppverði

3
Fólk

Guðmundur í Baggalút kominn með aðra nýja vinnu

4
Innlent

„Fyrir utan sjúkrahúsið missti hann meðvitund“

5
Innlent

Mæðgur settar í lífshættu á Langholtsvegi

6
Heimur

Fundu 300 gullstangir á heimili starfsmanns CIA

7
Innlent

Innkalla vinsæl hrísgrjón vegna skordýra

8
Innlent

Björn berst við Sigríði Elsu

9
Innlent

Lögreglumaður aumur í eistunum eftir punggrip konu

10
Heimur

Lady Gaga orðin móðir

Til baka

Regnbogabrú í Mosfellsbæ vekur áhyggjur vegna slysahættu

Vegagerðin vísar ábyrgðinni á Mosfellsbæ

Regnbogabrú í Mosfellsbæ
Heilmáluðu brúna í MosfellsbæMáluð göngubrú yfir Vesturlandsveg sögð geta orðið fljúgandi hál
Mynd: Facebook/Guðlaug Sjöfn Jónsdóttir

Íbúar og vegfarendur í Mosfellsbæ lýsa yfir þungum áhyggjum af aukinni slysahættu eftir að yfirborð göngu- og hjólabrúarinnar yfir Vesturlandsveg var heilmálað á dögunum í regnbogalitunum.

Vinnuskóli Mosfellsbæjar sá um málunarvinnuna á austari brúnni, sem á að minna á regnbogabrúna Bifröst. Þótt mörgum þyki framtakið fallegt hefur vinnan vakið upp harðar umræður um umferðaröryggi inni í hópnum Mosó-bærinn okkar. Íbúar óttast að yfirborðið verði fljúgandi hált í bleytu, en mikill fjöldi barna og fullorðinna hjólar og gengur um brúna daglega.

Guðlaug Sjöfn Jónsdóttir hrósaði Mosfellsbæ fyrir vinnuna:

„Flott framtak hjá bænum.

Austari brúin yfir Vesturlandsveginn orðin að sannkallaðri Bifröst“

Óvissa um ábyrgð og leyfi

Ingimundur Stefánsson fór á stúfana en hann var ekki viss um hvort málningarvinnan stæðist strangar kröfur um hálkuvörn. Skoðun á ákvarðanaferlinu leiddi í ljós ákveðna óvissu á milli stofnana um hver beri ábyrgð á viðhaldi brúarinnar.

Í fyrstu segist hann hafa fengið upplýsingar hjá skiptiborði Mosfellsbæjar um að Vegagerðin sæi um umsjón hennar samkvæmt vegalögum. Við eftirgrennslan hjá Vegagerðinni reyndist enginn þekkja til málningarvinnunnar þar á bæ.

Fram kom hjá fulltrúum stofnunarinnar að almennt séu fátíð leyfi gefin fyrir slíkri málun, og þá aðeins ef sérstöku íblöndunarefni sé bætt í málninguna til þess að minnka hálku.

Eftir nánari skoðun Ingimundar með lögfræðingi og samskiptastjóra Vegagerðarinnar liggur hins vegar fyrir skýring á málinu. Samkvæmt þeim er allur rekstur, viðhald og umsjón göngubrúa í höndum sveitarfélaganna sjálfra. Mosfellsbær þurfti því ekki leyfi frá Vegagerðinni til þess að mála yfirborð stígsins.

„Varúð, búið ku vera að heilmála yfirborð göngu- og hjólabrúar í Mosfellsbæ. Skv. lýsingum ku Vinnuskóli Mosó hafa gert það.

Tel þetta geta aukið sleipu og varði umferðaröryggi. Ég taldi Vegagerðin sennilega hafa umsjón með brúnni m.v. vegalög starfsmaður Mosfellbæjar í gegnum skiptiborð staðfesti umsjón Vegagerðarinnar

Ég ræddi við Pontíus og Pílatus hjá Vegagerðinni um málið og átti gott spjall um hættu af málningu fyrir umferð, fátíð leyfi, og aðeins íblöndunarefni til að minnka sleipu. Enginn hjá Vegagerðinni þekkti til málningarvinnunnar.

Í tilraunum til að rekja ákvarðanaferlið í Mosó var mér tjáð að bæði Vegagerðin og Mosó hefðu gefið leyfi, en að allir væru á stífum fundarhöldum vegna umhverfisslyss, og reyndist minnkaútsleppingar, og gætu ekki rætt málið frekar þá stundina.

Eftir samtal við lögfræðing Vegagerðin og samskiptastjóra hennar G. Pétur segja þau að allur rekstur og umsjón göngubrúa séu í höndum sveitarfélaga sem ekki þurfi leyfi til að mála yfirborð göngustíga.

Ég er ekki sannfærður þar um, á eftir að skoða betur lagaábyrgð.

Óháð ástæðum fyrir heilmálun þá þarf hjólreiðafólk að hafa varann á þegar þarna er farið um. Frekari fyrirspurn til Vinnuskólans og Mosó hefur verið send, þekki ekki hvort málningunni er ætlað að vera þarna til framtíðar eða verði þvegin burt í lok ágúst mánaðar.“

Fleiri hafa lýst yfir miklum áhyggjum með þessa vinnu, þar á meðal Ingi Örn Kristjánsson

„Þó þetta sé voða fínt þá verð ég að velta fyrir mér hvort þetta verði ekki fljúgandi hált í bleytu?

Mikið af börnum og fullorðnum sem hjóla þarna yfir og það langar engum að detta í grindverkið á þessari brú.“

Varúðarorð til vegfarenda

Enn á eftir að skera úr um hvort málningunni sé ætlað að vera á brúnni til frambúðar eða hvort hún verði þvegin burt í lok ágústmánaðar. Formleg fyrirspurn þess efnis hefur verið send til Mosfellsbæjar og Vinnuskólans.

Á meðan óvissa ríkir um ábyrgð og hálkuvarnir eru hjólreiðafólk og aðrir vegfarendur hvattir til að sýna ýtrustu varkárni og hafa varann á þegar farið er yfir brúna í bleytu.

Regnbogabrú í Mosfellsbæ
Mynd: Facebook/Guðlaug Sjöfn Jónsdóttir
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Sögulegur sigur Þróttar á Laugardalsvelli
Myndir
Sport

Sögulegur sigur Þróttar á Laugardalsvelli

Mæðgur settar í lífshættu á Langholtsvegi
Innlent

Mæðgur settar í lífshættu á Langholtsvegi

Palestínski fáninn stöðvaði stórleik í New York á 11. september
Myndband
Heimur

Palestínski fáninn stöðvaði stórleik í New York á 11. september

„Fyrir utan sjúkrahúsið missti hann meðvitund“
Innlent

„Fyrir utan sjúkrahúsið missti hann meðvitund“

Fjarlægðu 200 tonn af blautþurrkum á vinsælum áfangastað Íslendinga
Heimur

Fjarlægðu 200 tonn af blautþurrkum á vinsælum áfangastað Íslendinga

Hætti að drekka eftir að hafa kjálkabrotið sambýliskonu sína
Innlent

Hætti að drekka eftir að hafa kjálkabrotið sambýliskonu sína

Þorgrímur vill tífalda verðlaunaféð
Sport

Þorgrímur vill tífalda verðlaunaféð

TikTok-grín fór rækilega úr böndunum á Wendy’s
Heimur

TikTok-grín fór rækilega úr böndunum á Wendy’s

Fundu 300 gullstangir á heimili starfsmanns CIA
Heimur

Fundu 300 gullstangir á heimili starfsmanns CIA

Banna grímur á mótmælum í Bretlandi
Heimur

Banna grímur á mótmælum í Bretlandi

Grunur um skemmdarverk eftir alvarlegt lestarslys í Frakklandi
Heimur

Grunur um skemmdarverk eftir alvarlegt lestarslys í Frakklandi

Forstjóri selur höll á toppverði
Myndir
Fólk

Forstjóri selur höll á toppverði

Innlent

Mæðgur settar í lífshættu á Langholtsvegi
Innlent

Mæðgur settar í lífshættu á Langholtsvegi

Umferðarhegðun á Langholtsvegi hefur áður vakið athygli
Björn berst við Sigríði Elsu
Innlent

Björn berst við Sigríði Elsu

„Fyrir utan sjúkrahúsið missti hann meðvitund“
Innlent

„Fyrir utan sjúkrahúsið missti hann meðvitund“

Hætti að drekka eftir að hafa kjálkabrotið sambýliskonu sína
Innlent

Hætti að drekka eftir að hafa kjálkabrotið sambýliskonu sína

Reykjavík setur ekki sérstakt bann við snjallgleraugum í skólum
Innlent

Reykjavík setur ekki sérstakt bann við snjallgleraugum í skólum

Þrjótur handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi
Innlent

Þrjótur handtekinn fyrir fjóra mismunandi glæpi

Loka auglýsingu