1
Minning

Kristinn V. Jóhannsson er látinn

2
Heimur

Létust með 42 mínútna millibili

3
Innlent

„Enn eitt skipulagsslysið í Reykjavík“

4
Fólk

„Jónsson fullkomnaði fjölskylduna“

5
Heimur

Dánarorsök Sam Neill kunngjörð

6
Pólitík

Eiríkur sakar ESB-andstæðinga um fölsun

7
Heimur

Faðir lést við að bjarga börnum sínum frá drukknun

8
Heimur

Leik- og söngkona rifjar upp leynilegt ástarsamband við Eðvarð prins

9
Heimur

Sjórinn við Kanaríeyjar getur ógnað heilsu ferðamanna

10
Fólk

Fimm svæði þar sem streita safnast upp og æfingar til að losa um spennuna

Til baka

Reykjavíkurborg eflir menningarlífið

Draga úr þörf fyrir eftirlit af hálfu leyfisveitanda

Reykjavík
Markmiðið með breytingunni er að efla menningar- og samfélagslíf í Reykjavík.
Mynd: Unsplash/Evelyn Paris

Breytt gjaldskrá afnotaleyfa og eftirlits hjá Reykjavíkurborg hefur tekið gildi. Breytingin felur meðal annars í sér heimild til að veita afslátt af gjöldum vegna ákveðinna viðburða á borgarlandi.

Breytingin var samþykkt á fundi borgarráðs en markmiðið með breytingunni er að efla menningar- og samfélagslíf í Reykjavík.

Samkvæmt gjaldskránni, sem skipt er upp í fimm flokka, eftir umfangi afnota og eðli þeirra, er nú heimilt að veita allt að 50% afslátt af afnotaleyfisgjaldi í tilteknum tilfellum. Breytingin nær til umfangsflokka 1a, 2 og 5 og á við um viðburði sem haldnir eru af óhagnaðardrifnum félögum, svo sem íþróttafélögum, og eru opnir almenningi.

Forsenda þess að afsláttur verði veittur er að fyrir liggi samkomulag um eftirlit, frágang og viðbrögð af hálfu viðburðarhaldara. Markmið með þessum breytingum er að draga úr þörf fyrir eftirlit af hálfu leyfisveitanda og tryggja að afnot borgarlands fari fram með öruggum og ábyrgum hætti.

Einfaldara ferli fyrir gjaldfrjálsa smærri viðburði og minniháttar afnot 

Undir umfangsflokk 5 sem er gjaldfrjáls flokkur falla smærri verkefni sem hafa óveruleg áhrif á borgarlandið og krefjast takmarkaðs undirbúnings og eftirlits af hálfu leyfisveitanda. Undir þennan flokk falla minni viðburðir á borð við hlaup, hjólreiðakeppnir og tónleika, haldna af einstaklingum, félagasamtökum eða öðrum aðilum. Einnig geta minniháttar viðhalds- og framkvæmdaverkefni, sem hafa lítil áhrif á umferð eða aðgengi almennings, fallið undir þennan flokk.

Með þessari flokkun er leitast við að einfalda umsóknarferli og tryggja að gjaldtaka og eftirlit séu í samræmi við raunverulegt umfang og áhrif afnotanna.

Borgarland landsvæði sem tilheyrir Reykjavíkurborg

Afnotaleyfi veita tímabundna heimild til að nota borgarland fyrir margvísleg verkefni, svo sem viðburði, framkvæmdir eða rof á yfirborði. Markmið leyfanna er að tryggja öryggi vegfarenda, upplýsa íbúa og gesti um afnotin og stuðla að góðri umgengni um borgarlandið. Jafnframt er afnotaleyfum ætlað að vernda verðmæti eigna Reykjavíkurborgar með því að koma í veg fyrir óþarfa slit eða skemmdir á yfirborði og undirlagi sem geta rýrt gæði og verðmæti borgarumhverfisins.

Borgarland er samheiti yfir allt það landsvæði sem tilheyrir Reykjavíkurborg. Þar undir falla meðal annars götur, gangstéttir, stígar, torg og önnur opin svæði sem almenningur nýtir daglega.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Stríðið við Íran hefur minnkað vopnabirgðir Bandaríkjanna verulega
Heimur

Stríðið við Íran hefur minnkað vopnabirgðir Bandaríkjanna verulega

Getur tekið fimm ár að fylla á birgðirnar
Íslendingar nældu sér í gullverðlaun
Innlent

Íslendingar nældu sér í gullverðlaun

FIFA lengir hálfleik úrslitaleiksins á HM
Sport

FIFA lengir hálfleik úrslitaleiksins á HM

Fyrrverandi eiginkona Eminem flutt á sjúkrahús eftir sjálfsvígstilraun
Heimur

Fyrrverandi eiginkona Eminem flutt á sjúkrahús eftir sjálfsvígstilraun

Dánarorsök Sam Neill kunngjörð
Heimur

Dánarorsök Sam Neill kunngjörð

Sanna sælleg og sæt í sólinni
Myndir
Fólk

Sanna sælleg og sæt í sólinni

Átta leiðir til að stórbæta líðan innikatta
Fólk

Átta leiðir til að stórbæta líðan innikatta

Meðalkonan ber á sig 168 efni á degi hverjum
Fólk

Meðalkonan ber á sig 168 efni á degi hverjum

Rusl úr brúðkaupi Taylor Swift selt á tugi þúsunda
Heimur

Rusl úr brúðkaupi Taylor Swift selt á tugi þúsunda

„Jónsson fullkomnaði fjölskylduna“
Fólk

„Jónsson fullkomnaði fjölskylduna“

Bestu og verstu rökin gegn Evrópusambandsaðild Íslands
Innlent

Bestu og verstu rökin gegn Evrópusambandsaðild Íslands

Kristófer Þorleifsson geðlæknir er fallinn frá
Minning

Kristófer Þorleifsson geðlæknir er fallinn frá

Leik- og söngkona rifjar upp leynilegt ástarsamband við Eðvarð prins
Heimur

Leik- og söngkona rifjar upp leynilegt ástarsamband við Eðvarð prins

Innlent

Íslendingar nældu sér í gullverðlaun
Innlent

Íslendingar nældu sér í gullverðlaun

Mótið var haldið í sögulegri smiðju
Hagkaups kokteilsósa innkölluð
Innlent

Hagkaups kokteilsósa innkölluð

Reykjavíkurborg eflir menningarlífið
Innlent

Reykjavíkurborg eflir menningarlífið

Bestu og verstu rökin gegn Evrópusambandsaðild Íslands
Innlent

Bestu og verstu rökin gegn Evrópusambandsaðild Íslands

„Enn eitt skipulagsslysið í Reykjavík“
Innlent

„Enn eitt skipulagsslysið í Reykjavík“

Heildarendurskoðun á reglum útlendingalaga
Innlent

Heildarendurskoðun á reglum útlendingalaga

Loka auglýsingu